Stjarnan - 01.02.1932, Blaðsíða 7

Stjarnan - 01.02.1932, Blaðsíða 7
STJARNAN 23 skjótt til valda og sigra'ði heiminn, þar á meðal Eigyptaland, en var seinna sigruð sjálf af villimönnum aÖ nor'Öan. Ennþá var Egyptaland au'Öugt, voldugt og fjöl- ment. A'Ö lokum hófu Arabar strí'Ö á móti því. HJfifu'Öborgin, Alexandría var umsetin í 14 mánuöi, á því tímabili mistu Arabar 23,000 menn. Svo féll borgin í hendur umsátursmanna, ekki fyrir dugn- að eða herkænsku þeirra, heldur fyrir svikráð nokkurra, sem innanborgar voru. Arabar undru'Öust yfir auð og fegurð borgarinnar. Þeir brendu bókasafn borg- arinnar, það veitti sigurvegurunum nógan eldiviÖ í 6 mánu'Öi. Auður Alexandríu bar vott um velgengni þjó'Öarinnar. ÞaÖ hefÖi verið ómögulegt fyrir Araba, þrátt fyrir hreysti þeirra, a'Ö ná landinu undir sig, hef'Öu ekki landsmenn og borgarbúar veri'Ö orðnir þreyttir á, og óánæg'Öir meö yfirráð Grikkja, og því kosið heldur að ganga á hönd umsátursmanna. “Þótt spádómurinn hafi tekið langan tíma þá er hann þó uppfyltur orðinn, þó hægt hafi farið þá hefir Egyptaland lengi verið á afturfara skeiði. Vér skulum hér tilfæra nokkur orð frá Volney og Gibbon : “Þannig er ástand Egyptalands,” segir Volney í “Travels” 1. bindi, bls. 74, 103, 110, 198. “Þeir voru sviftir stjórnendum sínum fyrir 2300 árum. Hin frjósömu akurlönd þeirra urðu herfang fyrir Persa, Makedóníumcnn, Rómverja, Grikki, Araba eða Georgíumanna, loks komst landið undir yfirráð Tyrkja. Þræl- ar, sem gjörðir voru að hermönnum risu upp, kusu sér höfðingja úr sínum eigin flokki og hrifsuöu síðan völdin undir sig. “Byrjun þessarar þrælastjórnar var ein- kennileg og áframhald hennar ekki síður, þvi eftir þá tóku aðrir þrælar við stjórn- inni, sem hinir fyrri höfðu flutt inn, frá hinu forna heimkynni sínu. Þeir hafa reglubundna harðstjórn. Alt, sem fyrir augun ber, minnir á, að maður er staddur í landi þrældóms og harðstjórnar.” “Gibbon segir að engin harðstjórn geti verið ranglátari en sú, sem dæmir inn- byggjendur landsins til ævarandi þræl- dóms undir stjórn útlendinga og þræla. En þetta hefir Egyptaiand orðið að líða í meir en 500 ár.” (Decline and Fall of the Roman Empire,” chapter 59). “Þannig vitna vantrúaðir rithöfundar um stöðuga afturför Egyptalands, þar til hin síðastliðnu 500 ár, þaö hefir verið al- veg í því ástandi sem spámaðurinn segir fvrir, lítilf jörlegt ríki stjórnað af útlend- ingum. “Takið eftir því, að fyrst 2500 árum eftir að spádómurinn var gefinn, fyrst á vorum tímum geta menn séð hina undra- verðu nákvæmni spádómsins. Því betur sem hann er rannsakaður, því meir sann- færist maður um áreiðanlegleika hans. Er nokkur hér, sem ber á móti því, að Egyptaland sé í því ástandi, sem spádóm- urinn talar um? Ef ekki, hvaða ástæðu getið þér þá gefið fyrir því, að hann tal- aði sannleikann, því það verðið þér þá að kannast við?” Hr. Einarsson stóð nú upp og svaraði: “Það er ekkert undravert í uppfyllingu þessa spádóms. Rithöfundurinn hefir tek- ið eftir því, að aðrar þjóðir hafa verið yfirunnar, og þá orðið undirgefnar sigur- vegurum sínum. Hánn hafði séð Assýríu, Babýlon og ýms smærri ríki falla í óvina hendur. Þótt Egyptaland væri gamalt ríki og voldugt, gjörði hann sér hugmynd um, að það einnig með tímanum mundi sæta sömu kjörum.” “Þér yfirsést i einu atriði, hr. Einars- son, Egyptaland hefir ekki sætt sömu kjörum og hin ríkin. Babýlon, Assýría og önnur ríki umhverfis voru algjörlega eyöi- lögð. Hefði Ezekíel bygt spádóm sinn á reynslu þeirra, þá hefði hann sagt að Egyptaland mundi verða eyðilagt. Setjum nú svo að Ezekíel hefði spáð að Egypta- land mundi alveg undir lok líða eins og iBabýlon og Kaldea, og standa í eyði um aldur og æfi, hversu hreyknir mundu þá ekki vantrúarmennirnir benda á, að Egyptaland hefir á yfirstandandi tíma (Framh. á bls. 25)

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.