Stjarnan - 01.02.1932, Page 15
STJARNAN
3i
Smávegis
ASeins þrjár prentsmiðjur á Englandi,
Oxford, Cambridge og konunglega prent-
smiðjan, hafa leyfi til að gefa út Biblíur.
Nú hefir Rússland hætt við 5 daga
vikuna, en í stað hennar innleitt 6 daga
viku. Vinnutíminn er 6 klukkustundir á
dag.
Nú hafa menn fundið upp á aö nota
x-geisla pípu, sem tekur mynd á einum
þúsundasta úr sekúndu. Þessi nýja pípa
er bygð á uppgötvun þeirri að safna má
rafmagni, líkt og þegar stífla er sett í
straum, til að auka vatnskraftinn, svo er
stíflan tekin alt í einu. Með þessu tæki
vænta læknar að geta séð upptök sjúk-
dóma í líkama mannsins, sem áður voru
hulin eða óljós vegna hreifingarinnar.
Nú er farið að drepa rottur með raf-
magni. Ostur er látinn milli víra, sem
festir eru við kopar plötu, en platan er i
sambandi við rafmagnsstraum þann, sem
notaður er til að raflýsa húsið. Rottan
nær ekki í ostinn án þess að snerta vírana,
en þegar hún gjörir það þá fer 110 volta
rafmagnsstraumur í gegn um hana og er
hún dauð samstundis.
Samkvæmt ákvæði þjóðþings Banda-
ríkjanna fyrir tveimur árum, þá höfðu
17,389 mæður rétt til að fá fría ferð til
stríðs-stöðvanna í Evrópu. Aðeins 5,437
hafa notað sér þetta leyfi. Flestar þeirra,
sem fóru voru um eða yfir 60 ára að
aldri.
Sápugerðarfélag í New Jersey hefir
fundið upp á því að búa til gegnsæja sápu
með skínandi kopar centi í miðjunni.
Þetta á að vera uppörfun til hreinlætis,
einkum fyrir börn, sem eru hrædd við
vatnið.
STJARNAN
kemur út mánaðarlega
Útgefendur: The Western Canadian
Union Conference S.D.A. Stjarnan kost-
ar $1.50 um áriS í Canada, Bandaríkj-
unum og á tslandi. (Borgist fyrirfram).
Ritstjóri og rdðsmaður:
DAVIÐ GUÐBRANDSSON.
Skrifstofa:
306 Sherbrooke St., Winnipeg, Man.
Phone: 31 708
Nýlega hefir það komið upp úr kafinu,
að George Washington muni hafa verið
hinn fyrsti, sem bjó til ísrjóma. í minnis-
bók hans um útgjöld 17. maí 1782 stend-
ur “Rjómavél fyrir ís.” Áður héldu menn
að D. Madison, kona fjórða forsetans,
hafi verið sá fyrsti, sem bjó til og notaði
ísrjóma.
Það hefir verið bæði uppörfun og á-
nægja fyrir mig, að lesa hin mörgu vin-
gjarnlegu bréf, sem mér hafa borist frá
lesendum Stjörnunnar, þessar síðastliðnu
vikur. Það besta, sem eg get sagt er:
Guð blessi ykkur vinir mínir.
Eg votta einnig hér með innilegt þakk-
læti mitt fyrir þau góðu skil, sem sýnd
hafa verið með borgun blaðsins, einnig
fyrir allar þær gjafir, sem sendar hafa
verið inn til starfsins, bæði frá nefndum
og ónefndum.
Kann, seni ekki lætur vatnsdrykk ó-
launaðan mun ríkulega endurgjalda þeim,
sem vinna og gefa til útbreiðslu hans ríkis
á jörðunni, því oft er þörf, en nú er nauð-
svn að vinna meðan dagur er.
Náð og friður Guðs sé með yður öllum.
51. Johnson.
Kaupendur Stjörnunnar í Bandaríkj-
unum eru vinsamlega beðnir, ef þeim er
það jafn þægilegt, að senda inn andvirði
blaðsins í póstávísunum heldur en í gegn
um banka.—S. Johnson