Stjarnan - 01.12.1933, Page 1
STJARNAN
g~^~
Friðarhöfðinginn
Það stendur á sama hvar maÖurinn er staddur í
heiminum á þessum tíma, það er hvergi nokkursstaðar
friÖur. í Austurálfunni sjáum vér púiður-reykinn
þyrlast í háaloft yfir hæÖunum í Manchuria. Meðfram
jaðri Sahara eyðimerkur má heyra frakknesku fall-
byssurnar gelta, í Afríku. í Norðurálfunni sjáum vér
óveðurskýin hanga lágt yfir þjóðunum. Að minsta
kosti tvö lýðveldi berjast með ákefð í Suður-Ameríku.
Og jafnvel í Norður-Ameríku gjalla hamarshöggin þeg-
ar stálplöturnar eru festar á rif fjölda herskipa. All-
staðar eru blöðin að prédika kenninguna urn að vera
undir stríð búinn. — Sannleikurinn er sá, þótt menn
tali um frið, þá er enginn friður í heiminum, >ví að
heimurinn þekkir ekki FriSarhöfðingjann mikla. Allar
mannlegar ráðstafanir hafa brugðist algjörlega. Það
eina, sem þeir, er vilja friðinn öðlast, geta gjört, er að
koma til hans, sem er “vor friður.” Hann er reiðu-
búinn til að veita öllum, er til hans koma, þann frið,
sem er öllum skilningi æðri. Leitaðu þess friðar áður
en það verður um seinan.
—D. G.
']
ÐES., 1933
WINNIPEG, MAN.