Stjarnan - 01.12.1933, Blaðsíða 11

Stjarnan - 01.12.1933, Blaðsíða 11
Lúðvíks hefSi komiÖ fyrir veraldlegan rétt, þá hefði hann barist til hins síÖasta fyrir máli sínu hvort sem hann hefÖi á réttu eÖa röngu aÖ standa. En aö vera stefnt fyrir dómstól Guðs svona fyrir- varalaust, það var meira en hann gat staðist. Hann kastaði því frá sér penn- anum og reif bréfið í sundur. Hann vildi ekkert meira eiga við þann mann, sem gat lagt bréf sín fram fyrir Guð. Hann var nærri því hræddur við þá hugsun. Nú liðu fleiri vikur. Lúðvík R. var orðinn forviða yfir því að hann haf'öi ennþá ekkert heyrt frá mótstöðumanni sínum. “Eg hefi ekkert heyrt frá Mr. E. allan þennan tíma,” sagði hann einn dag við systur sína. “Skrifaðir þú honum ekkert meira seinna um þetta málefni ?” “Nei, því þegar eg hugsaði rólega um málið þá var það eiginlega engu að svara. Það var hans að sanna orð sín. Hvað sem eg hefði skrifað þá hefði það engin áhrif haft á hann, svo eg áleit bezt að þegja.” “Þú varst þó á annari skoðun til að byrja með,” sagði Guðrún. “Já, eg var svo reiður, en seinna fylgdi eg þínum ráðum, og lagði bréfið fram fyrir Guð. Það var það eina sem eg gat gjört. Var það ekki líka bezt?” “Eg vona það og trúi því, kæri LúSvík, en ertu nú viss um að Mr. E. muni ekki framkvæma það, sem hann hótaði þér?” Eg er ekki viss um það, en þó held eg að eg hefði heyrt um það fyrir þenna tíma. Hvað mig snertir þá skiftir mig litlu hvað hann gjörir.” Lúðvík þurfti ekki lengi að vera í óvissu þessu viðkomandi, því sama kvöld- ið kom Mr. E. að heimsækja hann. “Eg skrifaði þér ónotabréf fyrir nokkru síðan,” sagði hann dræmt. Lúðvík gat ekki borið á móti því, svo hann þagði. “Þú aftur á móti sendir mér ágætt svar. Eg er kominn til að þakka þér fyr- ir það.” “Það gleður mig að þú lítur þann veg á það,” svaraði Lúðvík. “Eg leit öðru vísi á það fyrst. Mér gramdist þaS meira en eg get með orðum lýst, en það var ágætt svar, og nú kann- ast eg við að eg hafði alveg á röngu að standa. Viltu fyrirgefa mér og rétta mér hönd þína?” Lúðvik tók með gleði í höndina sem rétt var að honum. “Eg hefi fleira, sem eg þarf að segja þér,” hélt Mr. E. áfram, “eg hefi verið veikur síðan eg skrifaði þér.” Nú veitti Lúðvík því fyrst eftirtekt að gestur hans var fölur og veiklulegur útlits. “Og þeg- ar eg var veikastur-þá gjörði bréfið þitt mig svo órólegan, þú sagðist hafa lagt fram fyrir Guð bréf það, er eg skrifaði þér, og það minti mig á að hann sér allar mínar hugsanir, orð og gjörðir. Eg gat ekki afborið þá hugsun.” “Og hvað svo?” “Eg lagði sjálfur alt mitt synduga líf- erni fram fyrir hann, og hrópaði frá djúpi sálar minnar: “Ó Guð, gakk þú ekki í rétt við mig því eg hefi syndgað.” “Og hvernig f ór það svo ?” spurði Lúð- vik hrærður. “Fyrir Guðs náð opnuðust augu mín svo eg sá og skildi þetta dýrmæta fyrir- heit: “En ef nokkur svndgar þá höfum vér talsmann hjá Föðurnum, Jesúm Krist hinn réttláta,” og “ef vér viðurkennum vorar syndir, þá er hann trúfastur og rétt- vís, svo hann fyrrigefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti.” “Og nú bið eg þig aftur svo innilega að fyrirgefa mér þetta ókristilega bréf, sem eg skrifaði þér.” Þess er varla þörf að taka það fram, að þeir skildu sem vinir og bræður. ‘ T. L. Bandaríkin hafa nú sem stendur 604 víðvarpsstöðvar. Skýrslur sýna að tekjuskatturinn í Bandaríkjunum fyrir 1933 hefir lækkað um 29 af hundraði frá því sem hann var árið sem leið.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.