Stjarnan - 01.12.1933, Page 13

Stjarnan - 01.12.1933, Page 13
kolaryk mátti sjá aS andlit námumanns- ins ljómaÖi af gleði. Hann greip hönd prestsins og spurði: “Kemur hann bráS- um. Eg hefi reynt aS vera góSur?” — Aðeins fá orS töluð af kærleika og meðaumkvun—en þau urðu til þess aS syndari bætti ráð sitt svo sál hans öðlast inngöngu í GuSs ríki. Y. I. Kurteisi Pappírspokinn rifnaSi hjá henni rétt á krossgötunum, þar sem umferðin var mest, svo kartöflur, appelsínur, kál og fleira valt hingaS og þangað út um göt- una. Meðan konan var aS reyna aS tína saman það sem fallið hafði, sagði einhver í vingjarnlegum málrómi: “Þetta er illa farið. Má eg hjálpa þér svolítiS?” og litli drengurinn haf ði brátt tínt alt saman. jafnvel minstu kartöflurnar. “Ef þú vilt bíða augnablik þá skal eg hlaupa yfir í búðina og fá annan poka,” sagði hann brosandi. AuSvitað beið hún og brátt var alt komið í tvo poka og drengurinn sagSi nú viS konuna: “Þetta er nokkuð þungt fyrir einn aS bera. Eg hefi nógan tíma til að hjálpa þér heim með það.” MeSan þau gengu niður götuna spurði konan þenna óvenjulega dreng allskonar spurninga. Hann átti ekki heima þar í bænum en var staddur þar í nokkra daga á Tjald- búðarsamkomu. “Hefir þú aldrei heyrt um S. D. AS- ventista hvernig þeir á hverju ári halda tjaldbúðarsamkomur, eg vildi þú gætir komiö að sjá hvernig vér höfum það.” “Ert þú Sjöunda dags ASventisti?” spurði hún. “Já, eg er sjálfboðaliði í fylkingu Krists, Vinur og Félagi líka. Hér hefi eg félagsmerkið. Eg hefi líka sex heiSurs- merki á silkibandi, en eg brúka þau ekki að jafnaði.” Nú kornu þau aS heimili konunnar og bögglarnir voru settir á skínandi eldhús- borSið, og svo ætlaði hún að borga drengnum fyrir ómakiS. “Eg vil enga borgun. Eg hefi ánægju af að hjálpa hvenær sem eg get En—” hann hikaði svolítið—'“viltu ekki koma út að tjöldunum, þaS er fyrirlestur þar á hverju kvöldi klukkan hálf átta?” “Eg skal vissulega koma,” sagði kon- an. “Og þakka þér ósköp vel fyrir, Robert,” hann hafði sem sé sagt henni nafn sitt. “Hjartanlega velkomiS, og eg vonast eftir að sjá þig í kvöld,” sagði hann bros- andi og gekk blístrandi niður götuna. Um kvöldið kom unga konan og mað- ur hennar og hlustuðu á fyrsta Aðvent- ista fyrirlesturinn, sem þau höfðu heyrt á æfi sinni. Nú eru þessi hjón trúboðar í fjarlægu landi, og flytja fagnaðarerindið um Frels- arann og endurkomu hans, til þeirra, sem aldrei fyr hafa heyrt um Jesúm. Lítill drengur sýndi kurteisi og rétti hjálparhönd. Hver getur reiknaS út hinn blessunarríka árangur? Y. I. Bandaríkin eru í þann veginn að stofna nýjan sjóher, sem kostar þau um $14,- 800,000. Her þessi verSur einnig reiSu- búinn til að berjast í loftinu. Óvinirnir verða áfengis-smyglarar. Floti þessi, sem á að vera flugvélar er lent geta á vatni, þær eiga aS vera 31 að tölu og svo 17 skip. Þessu verður bætt við strandgæzluherinn. Yfirmenn hans segja aÖ þetta muni verSa nauSsynlegt vegna afnáms bindindislag- anna.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.