Velferð - 01.05.1989, Blaðsíða 4
OííKAR OG VONIR
HAFA RÆST
OSKIR
Landssamtök hjartasjúklinga eru fimm ára gömul, þau voru
stofnuð 8. okt. 1983, það er ekki langur tími í sögu félags-
samtaka, en óhætt er að fullyrða að þau hafa staðið af sér alla
erfiðustu byrjunarörðugleika, eflst og styrkst með hverju ári
og staðið fyllilega við þau markmið og stefnu, sem þau settu
sér í upphafi með lögum sínum. Ég vil nú í stuttu máli lýsa að-
draganda að stofnun samtakanna, svo og starfi þeirra í stórum
dráttum á þessu fimm ára tímabili:
Eftir
Ingólf
Viktorsson
formann
Landssamtaka
hjartasjúklinga
Aðdragandi: Á síðustu áratugum
hefur enginn sjúkdómaflokkur
verið þunghöggari hérlendis en
hjarta- og æðasjúkdómar. Á árabil-
inu 1971 - 1980 mátti rekja tæplega
helming dauðsfalla íslendinga til
þessa ófögnuðar, hlutfallið mun þó
hafa farið eilítið minnkandi hin
síðari ár.
Þrátt fyrir linnulausar rannsókn-
ir og tilraunir hæfustu vísinda-
manna vítt og breitt um heims-
byggðina, hafa hvorki fundist
óbrigðular lækningar á þessum
mannskæða vágesti né óyggjandi
niðurstöður um orsakavald hans,
en engu að síður hefur lækningum
á hjartasjúklingum fleygt fram á
undanförnum árum bæði með
lyfjagjöfum og skurðaðgerðum, og
hafa framfarir orðið ótrúlega mikl-
ar nú síðari ár.
Eins og að líkum lætur hafði sú
hugmynd oft skotið upp kollinum
meðal íslenzkra hjartasjúklinga að
stofna þyrfti til sjálfstæðra samtaka
til að leggja lóð á vogaskálina í
baráttunni við þennan óvíga stríðs-
mann. Þá var jafnan hafður í huga
sá árangur sem ýmis félög fatlaðra
hafa skilað þjóðfélaginu og nægir
að nefna grettistak það sem SÍBS
hefur lyft.
Það var þó ekki fyrr en árið 1982
sem skriður komst á nefnda hug-
mynd. Fyrsta alvörusporið í áttina
til stofnunar samtaka hjartasjúkl-
inga var stigið sjöunda dag ágúst-
mánaðar 1982 í samsæti sem hópur
hjartasjúklinga, sem þurft höfðu að
ganga undir aðgerð í London, hélt
frú Önnu Cronin í Súlnasal Hótel
Sögu til að sýna henni örlítinn
þakkarvott og fagna því að frúin
hafði verið sæmd riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu fyrir ein-
stæða ósérplægni við að veita sjúk-
um lfkn, aðstoð og ómetanlega
hjálp í sjúkrahúsum Lundúna-
borgar. í þessu samkvæmi rituðu
tæplega tvö hundruð manns nöfn
sín á lista þar sem þeir lýstu yfir
vilja sínum til að taka þátt í stofnun
samtaka hjartasjúklinga.
Framhald þessa máls var það, að
boðað var til fundar í Domus
Medica 26. maí 1983, og mættu þar
um það bil hundrað manns. Á fundi
þessum var samþykkt að hefjast
handa um undirbúning stofnunar
sjálfstæðra og óháðra samtaka
hjartasjúklinga. Fundarmenn voru
ásáttir um að stefnt yrði að því að
samtökum þessum skyldi formlega
komið á laggirnar um mánaða-
mótin september og október að
hausti. Til að hrinda þessum fund-
arsamþykktum í framkvæmd var
kjörin níu manna nefnd, og var
henni falið að annast allan undir-
búning stofnfundar. Sjá mynd á bls.
6.
Stofnun
Stofnfundur Landssamtaka
hjartasjúklinga var haldinn í
Domus Medica í Reykjavík 8. októ-
ber 1983- Á fundinum voru mættir
230 stofnfélagar og voru það fleiri
en þeir bjartsýnustu þorðu að
vona. Stjórn samtakanna, sem kos-
in var á stofnfundinum, var þannig
skipuð eftir að stjórnin hafði skipt
með sér verkum:
Aðalstjórn: Ingólfur Viktorsson,
formaður, Reykjavík; Alfreð G. Al-
freðsson, varaformaður, Reykjavík;