Velferð - 01.05.1989, Blaðsíða 6

Velferð - 01.05.1989, Blaðsíða 6
Jóhannes Proppé gjaldkeri L.H.S. og Rúrik Kristjánsson fomi. fjáröflunarnefndar L.H.S. ingamiðstöð einn dag í viku, tvær klukkustundir í senn, og mættu þar alltaf sjálfboðaliðar úr samtökum okkar. Þessu var haldið áfram í rúmt ár eða fram í nóvemberlok 1984, er Landssamtökin fengu eig- in skrifstofu í Hafnarhúsinu í Reykjavík og færðu þangað upplýs- ingastarfið. Þá var hægt að fara að hyggja að frekari félagsstarfsemi. Við erum enn til húsa í Hafnarhús- inu og höfum opna skrifstofu dag- lega kl. 13 til 17. Skrifstofustjóri er Hallur Hermannsson. Fyrstu tilraunir félagsins til fjár- öflunar til kaupa á hjartasónartæki til Landsspítalans voru samskot, sem félagsmenn unnu að í sjálf- boðavinnu og jafnframt var hafin útgáfa minningarkorta. Þessi fjár- söfnun hlaut góðar undirtektir og minningarkortin eru nú seld á tuttugu stöðum á landinu, en mest af þeim er þó afgreitt um síma skrif- stofunnar í Hafnarhúsinu. Á árinu 1984 bárust félaginu strax áheit og gjafir. Auk þessara tekna voru svo árgjöld félags- manna, kr. 300.00 á mann, en eru nú kr. 500.00 árið 1989. í júní-mánuði árið 1985 hóf félagið merkjasölu undir slagorð- inu: „Tökum á ... tækin vantar“. Tilgangurinn var að safna fé til tækjakaupa á fyrirhugaða hjarta- skurðstofu á Landspítalanum. í upphafi við stofnun L.H.S. 8. okt 1983, var það eitt af höfuðmark- miðum samtakanna að vinna að því af öllum kröftum, með umfjöllun í fjölmiðlum, viðtölum við ráð- herra, fjárveitinganefnd, áskorun- um, fjáröflunum og alls kyns ráð- um, að nýtt hjartaþræðingatæki yrði keypt til landsins hið allra fyrsta. Það var keypt og komið í gagnið innan hálfs annars árs. Fjar- lægur draumur en þó ákveðinn, sem sérstaklega var tekið fram á fyrsta fréttamannafundi samtak- anna, að væri eitt af aðal markmið- um þeirra, var að stuðla að því með öllum ráðum að hjartaskurðlækn- ingar yrðu fluttar heim á Land- spítalann. Tæpum þrem árum síöar eru fyrstu kransæðasjúklingarnir skornir þar upp með prýðilegum árangri. Óskir okkar og vonir hafa því svo sannarlega ræst. Landssam- tök hjartasjúklinga eiga sinn stóra þátt í því að þetta er orðið að veru- leika, enda telja forráðamenn Rík- isspítalanna svo og læknar að nafn samtaka okkar verði skráð meðal þeirra helstu, sem þakka ber að þessum dýrmæta árangri er náð. Önnur merkjasala fór svo fram í júní 1986 undir nýju slagorði: „Ert þú hjarta-góður“. í þetta sinn var söfnunarfénu varið til tækjakaupa fyrir endurhæfingastöð hjarta- sjúklinga að Reykjalundi. Báðar þessar merkjasölur tókust mjög vel. Árin 1985, 1986, 1987 og 1988 var efnt til jólakortasölu á vegum félagsins og gaf salan nokkrar tekj- ur, einkum fyrir jólin 1987 og 1988. Það fé, sem safnaðist hjá Landssamtökunum var fljótt að hverfa á ný í tækja- og áhaldagjafir til spítalanna, eins og sjá má á eftir- farandi lista yfir þau tæki sem gefin hafa verið. ÁRIÐ 1984 Landspítalinn: Sónartæki (Ultra- sound system for eardiac and ab- dominal exam.) Segulbandstæki í tengslum við Sónarinn 3 Holter- tæki (greidd að hluta á árinu 1985). Sónarinn hefur nú hlotiö nafnið „Ómsjá", sbr. grein Snorra Páls Snorrasonar próf. hér í blaðinu.

x

Velferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.