Velferð - 01.05.1989, Blaðsíða 14

Velferð - 01.05.1989, Blaðsíða 14
 ENDURHÆFINGARSTÖÐIN ER ORÐIN VERULEIKI Það hefur komið í minn hlut sl. tvö ár að flytja á fundum félagsins okk- ar framhaldssöguna um undirbún- ing endurhæfingarstöðvar fyrir hjartasjúklinga. Mér er því mikill léttir að geta nú skýrt frá því, að þessi stofnun verð- ur að veruleika 1. aprfl 1989- Þá mun Endurhæfingastöð hjarta- og lungnasjúklinga í Reykjavík taka til starfa að Háaleitisbraut 11-13. Hún byrjar að vísu í smáum stfl og leigu- húsnæði — en mjór verður vænt- anlega mikils vísir. Mikið undirbúningsstarf Það er upphaf þessa máls, að stjórn Landssamtaka hjartasjúklinga ákvað fyrir tveimur árum að snúa sér til nokkurra aðila um þá mála- leitan, að undirbúa stofnun og starfrækslu fullkominnar þjálfun- ar- og heilsuræktarstöðvar, sem einkum væri miðuð við þarfir hjarta- og lungnasjúklinga. Jákvæð svör bárust frá þeim sjö samtökum og sjúkrastofnunum, sem leitað var til, og allir tilnefndu sína tvo fulltrúa í undirbúnings- nefnd. Fulltrúar Landssamtaka hjartasjúklinga í nefndinni voru Haraldur Steinþórsson, sem var formaður hennar og Ingólfur Vikt- orsson. Nefndin tók saman upplýsingar um sjúklingafjölda, endurhæfinga- Hluti fulltrúaráðsmanna á stofn- fundi, talið frá vinstri: Steinn Jóns- son, Davíð Gíslason, Kjartan Guðnason, Sigurveig Halldórsdóttir, Garðar P. Jónsson, Guðfinna Björnsdóttir og Björn Magnússon, lungnasérfrœðingur endurhœfingar- stöðvarinnar. aðstöðu, sem fyrir væri og mótaði tillögur um meginþætti starfsem- innar, þar sem bæði gæti verið um að ræða endurhæfingu í beinu framhaldi af sjúkradvöl og almenna viðhaldsþjálfun og æf- ingakerfi fyrir fyrrverandi sjúkl- inga. Áætlað var, að árlegur fjöldi nýrra sjúklinga með hjarta- og æða- sjúkdóma væri 400-500 manns, þar af má reikna með að 200-250 fari í þjálfun og endurhæfingu að Reykjalundi og sjúkrahúsum . Ár- leg fjölgun lungnasjúklinga var áætluð allt að 100. — Útilokað er að áætla fjölda þeirra, sem hefðu hug á viðhaldsþjálfun, en skiln- ingur á slíkri þörf fer sífellt vax- andi. Til þess að fullnægja þessari brýnu þörf þyrfti sennilega að ráð- ast í stofnkostnað vegna húsnæðis og tækjakaupa, sem næmi að verð- mæti í dag ca. 80-90 milljónum króna. — Var rætt í undirbúnings- nefndinni um möguleika á sam- vinnu við aðra (m.a. opinbera að- ila), en jafnframt að athuga um lík- lega staði til að hefja starfrækslu endurhæfingastöðvar til bráða- birgða. Eftir að heilbrigðisráðherra hafði svarað því til, að ríkið vildi ekki vera beinn aðili að slíku sam- starfi og ekki virtist völ á öðrum til samstarfs, þá ákváðu Landssamtök hjartasjúklinga, Hjartavernd og S.f.B.S. að stofna formlegan félags- skap, sem gæti tekiö á sig fjárhags- skuldbindingar, t.d. samið um leigu á húsnæði, ráðið starfsfólk, keypt nauðsynlegasta tækjakost og leitað eftir styrktarframlagi á fjárlögum svo og greiðsluþátttöku frá Trygg- ingastofnun ríkisins. Stofnað sameignarfélag Undirbúningsnefnd sú, sem að málinu hafði starfað, hélt síðasta fund 6. október 1988 og þar undir- rituöu fulltrúar stofnaðila skipu- lagsskrá sjálfseignartofnunar fyrir Endurhæfingarstöð hjarta- og lungnasjúklinga í Reykjavík. — Var hún síðan send dómsmálaráðu- neytinu, sem staðfesti hana sam- kvæmt skipun forseta íslands 28. nóvember 1988. — Helstu ákvæðin eru þessi. Stofnendur eru Landssamtök hjartasjúklinga, Hjartavernd og Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga (S.Í.B.S.) — Stofnfé hvers þeirra er 500 þús. kr. og bera stofnendur engar aðrar fjárhagslegar skuldbindingar vegna sjálfseignarstofnunarinnar. Markmið og hlutverk stofnunar- innar er að veita hjarta- og lungna- sjúklingum eftirfarandi þjónustu: a) Endurhæfingu íbeinu framhaldi af dvöl af sjúkrahúsi og/eða

x

Velferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.