Velferð - 01.05.1989, Blaðsíða 18

Velferð - 01.05.1989, Blaðsíða 18
Snorri Páll Snorrason er prófessor í lœknisfrœði við Háskóla íslands og starfar jafnframt sem hjarta- sérfrœðingur á Landspítala íslands. § Snorri Páll Snorrason. með hönnun hjarta-lungna vélar- innar, sem gerði kleift að taka hjart- að úr sambandi um stundarsakir, meðan skurðaðgerðir voru fram- kvæmdar. Reyndist það tæknileg forsenda fyrir kransæðaaðgerðum þeim sem nú hafa rutt sér svo mjög til rúms og marka tímamót í sögu hjartaskurðlækninga. Á þessu árabili, allt frá 1960, og til þessa dags hafa jafnframt átt sér stað framfarir í greiningu og með- ferð á háum blóðþrýstingi, hjarta- kveisu, bráðri kransæðastíflu, hjartsláttartruflunum, hjartabilun, offitu í blóði, svo að nokkuö sé nefnt. Þessar framfarir má þakka tilkomu nýrrar rannsóknartækni og nýrra lyfja. Sem dæmi má nefna að vissar hjartsláttartruflanir voru banvænar fyrir tilkomu hjartagangráða, en nú lifa menn góðu lífi með hjálp slíkra tækja. Hjartaraflosttæki hafa bjarg- að óteljandi mannslífum á sl. 30 ár- um. Sérstakar hjartagæsludeildir á sjúkrahúsum komu til sögunnar upp úr 1960, aðal tilgangur þeirra var að greina lífshættulegar hjart- sláttartruflanir og ráða bót á þeim í tæka tíð. Árangur af öllu þessu hefur ekki látið á sér standa. Sem dæmi má nefna að á árum fyrr var dánartíðni af völdum bráðrar kransæðastíflu víða um 36% en nú 10-15%, og eygja menn nú möguleika á að lækka hana enn til muna. Framþróun í læknisfræði heldur áfram, um það bera vitni nýjustu rannsóknartækin, svo sem tölvu- sneiðmyndatæki, segulsneið- myndatæki og ómsjá (hljóðbylgju- tæki). Með þessum nýja tækja- kosti hafa átt sér stað stórkostlegar framfarir við greiningu á margvís- legum sjúkdómum, jafnframt hafa ýmsar eldri rannsóknaraðferðir gengið sér til húðar. Sá böggull fylgir þó skammrifi að hin nýju tæki sum hver kosta him- inháar upphæðir. Það reynist því erfitt fyrir fámenna þjóð, eins og okkur íslendinga, að kljúfa þann kostnað sem nútímalæknisfræði hefur í för með sér. Oft á tíðum hafa því íslenskir læknar orðið að búa við úfullkominn tækjakost og þar af leiðandi ófullnægjandi lækn- ingaaðstöðu. Af þessum sökum hefur stundum orðið að vísa sjúkl- ingum á stofnanir erlendis til rann- sókna. Það er því ánægjulegt að á und- anförnum árum hafa félagssamtök og einstaklingar í vaxandi mæli hlaupið undir bagga með ríflegum fjárframlögum til kaupa á rann- sóknar- og lækningatækjum fyrir sjúkrahús og aðrar heilbrigðis- stofnanir. Hjartadeild Landspítal- ans hefur í ríkum mæli notið góðs af og er nú all vel búin tækjakosti. Má það einkum þakka rausnarlegu framlagi Landssamtaka hjartasjúkl- inga, sem hefur gert hjartadeild- inni kleift að endurnýja og bæta gjörgæslubúnað sinn. Um er að ræða tölvustýrðan hjartarafsjár- búnað sem tengja má við 8 sjúkl- inga samtímis og fylgjast þannig með og skrá starfsemi hjartans. Auk þessa gáfu Landssamtökin til hjartarannsóknarstofu ómsjá af nýjustu gerð til hjartarannsókna, gersemi mikla. Með þessu sann- kölluðu töfratæki rná meðal annars skyggnast inn í hólf hjartans, mæla vídd þeirra og fylgjast með sam- drætti hjartavöðva, horfa beinlínis á lokur hjartans að störfum, fylgj- ast með blóðstreymi gegnum hjartahólfin út í stóru slagæðar lík- amans, svo að nokkuð sé nefnt. Þannig hafa Landssamtökin allt frá árinu 1984 fært Landspítalanum hverja stórgjöfina af annarri til efl- ingar rannsóknarstarfsemi og læknisaðgerða í þágu hjartasjúkl- inga. Og enn er ekki að sjá neinn bilbug á þessum ágætu félagssam- tökum. Starfsfólk sjúkrahúsanna og ann- arra heilbrigðisstofnana stendur í mikilli þakkarskuld við þau fjöl- mörgu félagssamtök og einstakl- inga sem með framlögum sínum vinna að efldri og bættri þjónustu í þágu sjúklinganna. S.P.S. Hjartaómritari gefin af L.H.S.

x

Velferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.