Velferð - 01.05.1989, Blaðsíða 5

Velferð - 01.05.1989, Blaðsíða 5
Ingólfur Viktorsson. Björn Bjarman, ritari, Reykjavík; Jóhannes Proppé, gjaldkeri, Reykjavík; Sigurveig Halldórsdótt- ir, meðstjórnandi, Reykjavík. Varamenn: Emil Björnsson, Reykjavík; Reynir Eyjólfsson, Reykjavík; Björn Halldórsson, Reykjavík; Trausti Sigurlaugsson, Kópavogi; Karl Fr. Kristjánsson, Mosfellssveit. Landssamtök hjartasjúklinga fengu strax góðan stuðning úr öll- um áttum, virtist áhugi á samtök- unum vera mikill meðal almenn- ings í landinu. Var það kærkomin uppörvun í byrjun starfs. Lög fyrir samtökin voru samþykkt á stofn- fundinum. 1. gr. hljóðar svo: Félagið heitir Landssamtök hjartasjúklinga. Heimili og varnarþing samtakanna er í Reykjavík. 3 gr. hljóðar svo: Fé- lagsmenn geta allir orðið sem eru hjartasjúklingar, einnig allir aðrir, sem áhuga hafa á að styðja mark- mið samtakanna. Enda mættu á stofnfundinum auk hjartasjúkl- inga, sem að sjálfsögðu voru í mikl- um meirihluta, læknar, hjúkrunar- fólk svo og aðrir áhuga- og stuðn- ingsmenn. Markmið Markmið Landssamtaka hjarta- sjúklinga er samkvæmt 2. gr. laga: að standa fyrir öflun fjár sem notað skal til þess: a) Að annast hvers kyns fræðslu um hjartasjúkdóma, m.a. með upplýs- Meginuppistaðan ípessari grein er rœða formanns LHS á 5 ára afmœlisfundi að Hótel Sögu 8.10. 1988 ingum til hjartasjúklinga fyrir og eftir hjartaaðgerð, efna til fræðslu- funda um hjartasjúkdóma, og stuðla að því að fjölmiðlar birti efni um eðli þeirra og auki þekkingu á þeim. b) Að vinna að bættri endurhæf- ingu hjartasjúklinga á endurhæf- ingastofnunum á sem flestum stöð- um á landinu. c) Að efla og bæta aðstöðu á sjúkra- e) Að styrkja fólk til aukinnar sér- menntunar á sviði hjartalækninga og endurhæfingar hjartasjúklinga. f) Að stuðla að því að hjartasjúkl- ingar geti á hverjum tíma fengið upplýsingar hjá sérmenntuðu fólki (félagsráðgjöfum, lögfræðingum) t.a.m. um skattamál, löggjöf um alm. tryggingar, lífeyrisréttindi, fjárhagsaðstoð vegna læknismeð- ferða erlendis og öllum þeim mál- Tökum á... tækin vantar! FJAROFLUN 7. OC 8. |UNI til tækjakaupa fyrir væntanlega hiartaskurðdeild Landspitalans LANDSSAMTÖK H|ARTAS|ÚKLINCA Emil Sigurðsson og Rúrik Kristjánsson úr fjáröflunarnefnd L.H.S. húsum til lækninga og rannsókna hjartasjúkdóma og beita sér fyrir víðtækri fjáröflun í samvinnu við önnur félagssamtök til að kaupa eða útvega fullkomnustu tæki, sem völ er á hverju sinni. d)Að beina upplýsingum til við- komandi stjórnvalda um nýjustu framfarir á sviði lækninga og end- urhæfingar vegna hjartasjúkdóma og hvetja þannig til úrbóta af hálfu hins opinbera. um sem snerta félagsleg og lagaleg réttindi þeirra. g) Að beita sér fyrir samvinnu við önnur félagssamtök hjartasjúkl- inga. Öllum þessum markmiðum höfum við reynt að framfylgja af fremsta megni síðan samtökin voru stofnuð þann 8. október 1983- í nóvember 1983 fengu I.ands- samtökin afnot af skrifstofu í Lág- múla 9 húsi Hjartaverndar og var þá ákveðið að opna þar upplýs-

x

Velferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.