Velferð - 01.05.1989, Blaðsíða 16

Velferð - 01.05.1989, Blaðsíða 16
Frá stofnfundi fulltrúaráðsins 12. des. 1988. Talið frá vinstri: Ingólfur Viktorsson, Guðmutidur Steinbach, Kalla Malmquist, Gissur Gottskálks- son, Karl Friðrik Kristjánsson, Val- gerður Gunnarsdóttir og Magnús B. Einarsson, yfirlœknir endurhœf- ingarstöðvarinnar. Á minni mynd- inni er Stefán Júlíusson, formaður fulltrúaráðsins. ingu samkvæmt læknistilvísun, en telja sig þurfa stuðning og eftirlit og hafa því áhuga á að þjálfa í hóp. — Þátttakendur greiða fyrir við- haldsþjálfunina á sama hátt og um heilsurækt væri að ræða. Þettaerhópþjálfun(ca. 20íhóp), með fullkomnum tækjakosti og öryggisútbúnaði og undir stöðugu eftirliti sjúkraþjálfara og læknis. Þjálfunin hefst með áreynsluprófi til að meta ástand og reikna út þjálf- unarálag. Auk þess verður veitt ráð- gjöf og upplýsingar og áformaðir eru sameiginlegir fræðslufundir a.m.k. hálfsmánaðarlega fyrir hóp- ana. Byrjað verður með 4 hópa og seld mánaðarkort, sem kosta 4500 krónur. — Hver hópur þjálfar klukkustund í senn þrisvar í viku (þar af einu sinni utanhúss). Þátttakendur geta valið sér hóp á þeim tímum, sem henta þeim best. Tímataflan verður fyrst um sinn þessi. HópurA: Mánudag kl. 18-19, mið- vikudag kl. 18-19 og föstudag kl. 18-19. Hópur B: Mánudag kl. 19-20, þriðjudag kl. 18-19 og fimmtudag kl. 18-19. HópurC: Mánudag kl. 19-20, mið- vikudag kl. 19-20 og föstudag kl. 19-20. HópurD: Mánudag kl. 18-19, mið- vikudag kl. 19-20 og föstudag kl. 19-20. Auk þess verða sameiginlegir upplýsinga- og fræðslufundir fyrir alla hópana að kvöldlagi eins og fyrr segir. Pantanir verða teknar milli kl. 13 - 16 virka daga í móttökunni hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra að Háaleitisbraut 11 - 13. Síminn þar er 84999- 2) Endurhœfing hjartasjúklinga Þetta er ætlað þeim, sem hafa verið heima eftir sjúkrahúslegu (t.d. 6 vikur) en þurfa að mati hjartasérfræðinga á göngudeildar- þjónustu að halda. Þjálfunarstig þetta gæti einnig hentað þeim, sem eftir útskrift á Landspítala eða Borgarspítala hafa verið um skeið á endurhæfingadeildum þar. Þessi endurhæfing gæti komið í staðinn fyrir 4-5 vikna dvöl á Reykjalundi. Miðað væri þá við ca. 10 vikna þjálfunartímabil. Þrisvar í viku væri sérstök meðferð undir umsjá læknis og sjúkraþjálfara með fullkomnustu hjálpartækjum og auk þess reglubundin læknisskoð- un og álagsprófun svo og fræðslu- starfsemi og persónubundin þjálf- unarfyrirmæli. Þessi starfsemi verður væntan- lega greidd af Tryggingastofnun ríkisins, og er það mál nú á við- ræðustigi. — Áformað er að taka einn slíkan hóp í upphafi eftir til- vísun lækna. 3) Endurhœfing lungnasjúklinga Um hana gildir að mestu hið sama og lið 2 hér að framan, en ætl- unin er að hefja starfsemi t.d. tveggja hópa, sem væru í meðferð lungnalæknis og sjúkraþjálfara tvisvar í viku auk útivistar og per- sónubundinnar þjálfunar. Með kveðju H. Benediktsson hf. Suðurlandsbraut 4 — Sími 38300 Gevalia það er kaffið Rydens-kaffi — Sími 43200

x

Velferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.