Velferð - 01.05.1989, Blaðsíða 8
Núverandi stjórn ásamt skrifstofu-
stjóra samtakanna. Frá vinstri:
Flallur Herttiannsson, Sigurveig
Halldórsdóttir, Jóhannes Proppé,
Haraldur Steinpórsson, Ingólfur
Viktorsson og Alfreð G. Alfreðsson.
ÁRIÐ 1989
Brompton-spítalinn i London:
Styrkur til velunnara spítalans til að
talsetja með íslensku fræðslumynd
í þágu hjartasjúklinga.
Landspítalinn: Styrkur til utan-
ferðar og náms hjúkrunarfræðings
á vegum hjartadeildar.
Þá hefur einnig verið samþykkt
nýskeð að gefa á næstu vikum:
Landakotsspítalinn: Fullkomið
Telemonitorkerfi, vegna hjarta-
deildar.
Landspítalinn: Videoprentari (há-
gæða professional tæki) vegna
hjartaskurðdeildar.
Endurhœfingastöð hjarta- og
lungnasjúklinga: Þegar hefur
stofnframlag verið greitt og fé lagt
fram til tækjakaupa, svo sem fram
kemur á öðrum stað í blaðinu.
Öll þessi tæki og áhöld hafa verið
keypt og gefin í samráði og sam-
vinnu við yfirlækna viðkomandi
stofnana, og í einstökum tilfellum
hefur verið leitað til Landssamtak-
anna um aðstoð í aðkallandi þörf
fyrir tæki.
Ég hef stiklað hér á stóru til að
gefa dálitla hugmynd um starfsemi
félagsins, en fjárhæðir þær sem við
höfum getað látið af hendi rakna á
þessum 5 árum nema um 20 millj-
ónum króna. Auk þess höfum við
fengið eftirgefin aðflutningsgjöld
eins og önnur líknarfélög, og nema
þau stundum álíka upphæð og inn-
kaupsverðið. Það er því ekki fjarri
lagi að ætla að tæki þau og áhöld,
sem Landssamtökin hafa gefið, séu
að verðmæti 40 til 42 milljónir
króna.
Síðasta merkjasala okkar undir
slagorðinu „Söfnum kröftum" var
í júní 1988 og gaf hún mjög góðan
árangur. Söfnunarféð rennur allt til
Endurhæfingarstöðvarinnar, sem
hefur starfsemi núna 1. apríl, og
sagt er nánar frá í grein Haraldar
Steinþórssonar hér í blaðinu.
Svo sem kunnugt er hófust
hjartaskurðaðgerðir hér á Land-
spítalanum í júní 1986 og gangast
að jafnaði tveir sjúklingar á viku
undir skurðaðgerð hér heima, en
því miður er ekki aðstaða á Land-
spítalanum til að taka fleiri viku-
lega, því að talið er að minnst þyrfti
4 uppskurði á viku til að anna þörf-
inni. Nú hefur myndast biðröð við
skurðarborðið, og hafa undanfarið
verið sendir þrír til fjórir sjúklingar
á viku til London í uppskurð
og/eða útvíkkun (blásningu), og
nægir þó ekki til, enn er biðröð.
Það munu vera um 160 til 170
sjúklingar, sem gengist hafa undir
hjartauppskurði hér heima, en um
2000 sem sendir hafa verið utan, til
London eða U.S.A. frá því slíkar
skurðaðgerðir hófust um 1970.
Félagsmenn í Landssamtökum
hjartasjúklinga eru nú 1400.
Félag okkar vill jafnt berjast fyrir
því með forvarnarstarfi að hjarta-
sjúklingum fækki, og hinu að veita
alla þá hjálp sem við megnum,
þeim er þegar eru komnir íhópinn.
I.V.
FUNDARBOÐ
Aðalfundur Landssamtaka hjartasjúklinga verður
haldinn ( hliðarsal Hótel Sögu þann 15. apríl 1989 og
hefst hann kl. 14.00.
DAGSKRÁ:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Skýrsla gjaldkera.
3. Umræður um skýrslu stjórnar og gjaldkera.
4. Kosning formanns.
5. Kosning tveggja meðstjórnenda og fimm til vara.
6. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara.
7. Erindi: Uggi Agnarsson, hjartasérfræðingur.
8. Samþykki nýrra félaga.
9. Ákveðin upphæð árgjalds næsta árs.
10. Önnur mál.
Stjórnin