Velferð - 01.05.1989, Síða 12
UM BRÁÐAÞJÓNUSTU OG
ENDURLÍFGUN
Eftir Gest
Þorgeirsson
sérfrœðing í
almennum lyf-
lœkningum og
hjartasjúkdómum
Nýlega gáfu Landssamtök hjarta-
sjúklinga Borgarspítalanum full-
komin tæki til endurlífgunar. Ann-
ars vegar er um að ræða æfinga-
dúkku, sem ber nafnið „Resusci
Ann“ og er framleidd af Lærdal-fyr-
irtækinu. Hún er mjög vel fallin til
kennslu í grunnþjálfun endurlífg-
unar einkum tindunarhjálp og
hjartahnoði. Fram kemur á sérstök-
um tækjum hvort hjartahnoð sé á
réttum stað á brjóstkassanum,
þrýstingur hæfilegur og hvort loft-
inu sé blásið með réttum hætti.
Hins vegar fylgir tölva, sem getur
kallað fram á skjá hjartsláttar- og
leiðslutruflanir af ýmsu tagi. Ekki
þarf að fjölyrða um hvflíkt þarfa-
þing hún er til þjálfunar í greiningu
og meðferð á slíkum hjartsláttar-
truflunum til dæmis fyrir lækna-
nema, aðstoðarlækna og annað
starfsfólk á hjarta- og gjörgæslu-
deildum. Þessi kennslutæki eru nú
í stöðugri notkun á skipulögðum
námskeiðum í endurlífgun fyrir
starfsfólk spítalans.
Mestar líkur á lífshættulegum
hjartsláttartruflunum eru á fyrstu
klukkustundum eftir kransæða-
stíflu. Vegna þess er mjög mikil-
vægt að koma sjúklingi með bráða
kransæðastíflu sem allra fyrst á
spítala, þar sem unnt er að veita
viðeigandi meðferð. Með nýjum
segaleysandi lyfjum (streptokinasi,
t-PA), sem geta í mörgum tilfellum
leyst upp blóðtappann í kransæð-
inni og dregið verulega úr skemmd-
um á hjartavöðvanum er komin
cinnur brýn ástæða til að flytja
sjúklinginn með hraði á hjartadeild
því lyfin eru lfldegri til að bera
árangur, ef unnt er að gefa þau inn-
an fárra klukkustunda frá því ein-
kenni hófust. Allir á höfuðborgar-
svæCiinu ættu því að þekkja síma-
númerið 1-11-00, neyðarsíma á
varðstofu slökkviliðsins í Reykja-
vík. Ef hringt er í þetta símanúmer
og tilkynnt um bráðatilfelli er sam-
stundis gefið merki til neyðarbfls-
ins og hann fer með hraði á við-
komandi stað. í áhöfn bflsins er nú
auk tveggja sjúkraflutningsmanna
reyndur aðstoðarlæknir. Fyrstu ár-
in var ekki læknir á bflnum að næt-
urlagi en síðustu misserin hefur
læknir verið allan sólarhringinn.
Þessi neyðarbfll Rauða Krossins,
stundum kallaður hjartabfllinn, er
mjög vel útbúinn og nánast úr garði
gerður sem lítil gjörgæsla og getur
læknir því í flestum tilfellum veitt
þá sérhæfðu læknisþjónustu, sem
nauðsynleg er þar til sjúklingur
kemst á spítala.
Ef svo illa vill til að lífshættuleg
hjartsláttartruflun veldur meðvit-
undarmissi áður en neyðarbfll hef-
ur komist á vettvang, þurfa nær-
staddir að kunna grundvallaratriði
endurlffgunar og hefja öndunar-
hjálp og hjartahnoð þegar í stað.
Það kann að vera jafnvel enn ríkari
ástæða fyrir íbúa landsbyggðarinn-
ar að geta veitt öndunarhjálp og
hjartahnoð, þar sem oft getur liðið
lengri tími þar til læknishjálp er til-
tæk þar en á Reykjavíkursvæðinu.
Þar á fólk einnig aci þekkja neyðar-
síma staðarins eða eftir atvikum
síma læknisins.
Tölur frá Bandaríkjunum benda
til þess að 60-70% svonefndra
skyndidauðatilfella vegna hjartaá-
falls verði utan spítala. Því fyrr sem
endurlífgun er beitt í þessum tilfell-
um þeim mun meiri vercla líkurnar
á því að þessir sjúklingar nái heilsu.
Þess vegna hefur Ameríska Hjarta-
félagið (American Heart Associa-
tion) lagt á það ríka áherslu að allur
almenningur og ekki síst aðstand-
endur hjartasjúklinga læri grund-
vallaratriði endurlífgunar og með