Velferð - 01.05.2018, Síða 2
75 mg sýruþolnar töflur
Hjartamagnýl sýruþolnar töflur innihalda 75 mg af asetýlsalicýlsýru. Hjartamagnýl er ætlað sem annars stigs forvörn gegn hjartadrepi,
tll að fyrirbyggja hjarta- og æðasjúkdóma hjá sjúklingum með hjartaöng í jafnvægi, þegar saga er um hvikula hjartaöng, nema meðan á
bráðafasanum stendur, til að fýrirbyggja stíflu eftir hjáveituaðgerð (CABG), við kransæðaþræðingu (coronary angioplasty), nema meðan
á bráðafasanum stendur, sem annars stigs forvöm gegn skammvinnum blóðþurrðarköstum (TIA) og blóðþurrðarköstum í heila (CVA), að
því tilskildu að blæðingar innan heila hafi verið útilokaðar. Notkun Hjartamagnýl er ekki ráðlögð við bráðaaðstæður. Notkun þess er
takmörkuð við annars stigs forvarnir með langvinnri meðferð. Fylgið ávallt leiðbeiningum læknis um skammta og lyfjagjafir. Töflunum
skal kyngja heilum með 1/2 glasi af vatni. Vegna sýruþolnu húðarinnar skal ekki mylja, brjóta eða tyggja töflumar, húðin kemur í veg
fyrir ertandi áhrif í meltingarvegi. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
m
Actavis