Velferð - 01.05.2018, Side 9
GoRed
Febrúarmánuðurinn var tileinkaður GoRed
átakinu á ýmsan máta. Árið 2009 fór ísland í
samstarf með Alþjóðlegu hjartasamtökun-
um og GoRed sem leggur megináherslu á
konur og hjartasjúkdóma. Verkefnið hef-
ur síðan þróast hjá okkur í gegnum árin.
Að þessu sinni var allur febrúar mánuður-
inn undir, efni fræðslunnar óháð kyni og aldri
því hjartaheilsa varðar alla.
Rauði dagurinn var að þessu sinni föstudagurinn 3. febrú-
ar með áherslu á að sem flestir sýndu lit og mættu í rauðu.
Einnig voru nokkrar byggingar lýstar rauðar í tilefni af hjarta-
mánuðinum. Hjartaheill hefur tekið virkan þátt í kynningar-
starfi GoRed samtakanna ásamt Neistanum, Hjartavernd,
Heilaheill og fleirum.
Verslun SÍBS
Verslun SÍBS er rekin án hagnaðarsjónarmiða, og allur arður
af rekstrinum fer í að bæta þjónustu, auka vöruúrval og lækka
vöruverð. Félagsmenn í aðildarfélögum SÍBS, öryrkjar og elli-
lífeyrisþegar fá 10% afslátt af öllum vörum í versluninni.
Þrekhjól og styrkir
15. febrúar 2017 fór fram formleg afhending á tveimur þrek-
hjólum til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík sem
munu verða notuð af skjólstæðingum stofnunarinnar. Gef-
endur voru Styrktarsjóður hjartasjúklinga og Hjartaheill
Þingeyjarsýslum.
Þá styrkti Hjartaheill íjóra hjúkrunarfræðinga af Reykjalundi
til námsferðar í mars 2017 en þær skoðuðu m.a. endurhæf-
ingarstöðvar í nágrenni Kölnar í Þýskalandi.
Merkjasala Hjartaheilla
Efnt var til merkjasölu dagana 7. til 21. apríl. Guðrún Berg-
mann Franzdóttir annaðist að mestu merkjasöluna fyrir
Hjartaheill. Notast var við tímalausa auglýsingu sem birtist
á samfélagsmiðlum Hjartaheilla, s.s. Facebook, Instagram og
fl. Söfnunin gekk mjög vel - hagnaður var fjórar milljónir og
sex hundruð þúsund. Þeir peningar, sem og gott umtal sem
Hjartaheill fékk á meðan salan átti sér stað, komu sér vel.
Mælingar Hjartaheilla og SÍBS
Eitt allra viðamesta og tímafrekasta verkefni ársins eins og
oft áður voru mælingar þær sem Hjartaheill og SÍBS hafa
staðið fyrir á undanförnum árum. Mældur hefur verið blóð-
þrýstingur, blóðfita, blóðsykur, púls, súrefnismettun í blóði,
gerð öndunarpróf, mittismál mælt og gripstyrkur mældur.
Mælingar þessar hafa jafnan verið gerðar í nánu samstarfi við
heilbrigðisstofnanir, framkvæmdar af heilbrigðisstarfsfólki og
starfsmönnum Hjartaheilla og SÍBS, sem tileinkað hafa sér
þekkingu og kunnáttu á þessu sviði undir handleiðslu fag-
fólks.
Mælingaverkefnið er óumdeilanlega hryggjarstykkið í
fræðslu- og forvarnastarfi Hjartaheilla - þjóðinni sjálfri til
heilla. Heilbrigðiskerfinu ætti að vera mikill fengur í slíkum
microlirc
Blóðþrýstingsmælar
Microlife BP A2 - Vnr: 100099
• Sjálfvirkur mælir
• Auðveldur í notkun
• Minni fyrir 30 mælingar
• Nemur hjartsláttaróreglu (PAD)
• íslenskar leiðbeiningar
Microlife BP A6 - Vnr: 100101
• Sjálfvirkur mælir
• Stilling fyrir tvo notendur
• Nemur gáttatif (AFIB)
• Val um eina mælingu eða þrjár
mælingar í röð (MAM)
• íslenskar leiðbeiningar
500 kr. af hverjum mæli rennur til styrktar Hjartaheilla
HjartaHeill
Velferð 9