Velferð - 01.05.2018, Blaðsíða 17

Velferð - 01.05.2018, Blaðsíða 17
Sú litla ákvörðun að drekka aldrei sykur er einfaldasta og öflugasta skrefið sem hægt er að taka í átt að bættu mataræði. Þrjú aukastig fyrir mataræði Aukastig fást fyrir að vanda sig við skammtastærðir, borða hægar og jafn- vel nota minni matardiska, og passa að snarl og sætmeti sé ekki í augsýn á borðum heldur lokað inni í skáp. Aukastig fást fyrir að sniðganga sykur og sætmeti og líta ekki á slíkt sem hluta af fæðunni heldur meira eins og kon- íaksglas - sem best er neytt í miklu hófi og á eftir alvöru mat. Aukastig fást fyrir að gefa líkamanum matarhlé í 12-16 klukkustundir á sól- arhring frá því síðasti bitinn fer upp í mann á kvöldin þar til sá fyrsti fer upp í mann næsta dag. Þetta gefur líkaman- um færi á að skipta yfir í fitubrennslu eins og hann er skapaður fyrir (fólk með efnaskiptavanda fylgi hér leiðbeining- um læknis). Þrjú Iftil atriði um hreyfingu 1. Byrja til þess að byrja Öflugasta hvatningin til að byrja að hreyfa sig er að byrja að hreyfa sig. Að fara í raun og veru út og ganga götuna á enda og aftur til baka er sjálfshvatning sem í senn veldur sterkri ánægjutilfinn- ingu með að hafa sigrast á verkefninu og brýnir til dáða að halda áfram. Hér dugir ekkert bara að hugsa, heldur gera! Það er alveg sama hvar við erum á vegi stödd í hreyfingu: Eitthvað er betra en ekkert. Jafnvel þeir sem lítið geta hreyft sig geta aukið getuna með viðeigandi þjálfun, því með þjálfunninni lærir lík- aminn að nýta betur þá orku sem er fyrir hendi. Sú litla ákvörðun að fara og gera eitt- hvað er sterkasta hvatningin til að halda áfram. 2. Nota tækifærin fyrir aukahreyfingu Hugsum um öll litlu tækifærin til að vera á hreyfingu í stað þess að sitja eða liggja. Við brennum 50% meiri orku standandi heldur en sitjandi, og tvöfalt meiri orku gangandi heldur en stand- Skráargatið er opinbert hollustumerki. Með því að taka ávallt skráargats- merkta vörufram yfir aðra vöru í sama flokki er tryggt að við séum ávallt að velja betri kostinn andi. Leggjum bílnum lengra í burtu. Göngum um meðan við tölum í síma. Breytum sjónvarpsstund í kvöldgöngu. Uppsöfnuð hreyfing telur yfir daginn. Sú litla ákvörðun að standa frekar en sitja, og að ganga meira, þýðir að við söfnum upp jákvæðum áhrifum. 3. Fara út fyrir þægindarammann Ef það er óhætt vegna heilsunnar, þá gefur álag út fyrir þægindarammann mun hraðari bætingu á úthaldi og styrk heldur en einungis róleg hreyfing. Dæmi um þetta gæti verið að ganga hratt upp brekku eða upp nokkrar hæð- ir í húsi og ná hjartslættinum vel upp. Hreyfingu á háu álagi þarf að stilla í hóf og ná góðri endurheimt á milli með ró- legri hreyfingu. Ein til þrjár háálagsæf- ingar í viku gefa miklar framfarir. Sú litla ákvörðun að fara stundum út fyrir þægindarammann þýðir hraðari framfarir og hægari afturför með aldr- inum. Þrjú aukastig fyrir hreyfingu Aukastig fást með að gera hreyfinguna reglulega. Ef það eru t.d. kvöldgöngur eða annar æfingatími á föstum tíma ákveðna daga og annað er skipulagt kringum þetta, þá fækkar afsökunun- um. Aukastig fást með að gera hreyfinguna félagslega. Það er hvetjandi og gefandi að æfa í hópi og það hefur enn jákvæðari áhrif á andlega líðan en hreyfingin Ég lifði af Skjót fyrstahjálp, hjartahnoö og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu HeartSine Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Donna Sími 555 3100 www.donna. Velferð 17

x

Velferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.