Velferð - 01.05.2018, Blaðsíða 3

Velferð - 01.05.2018, Blaðsíða 3
Frá ritstjóra Hjartadeild Landspítalans Þegar Landssamtök hjartasjúklinga, sem nú heita Hjarta- heill, voru stofnuð fyrir hálfum íjórða áratug var hjarta- deild Landspítalans til staðar. Hún bjó að velmenntuðum læknum en var afar illa búin tækjum. Allar stærri skurð- aðgerðir voru gerðar erlendis, mest í Bretlandi en einnig í Bandaríkjunum. í upphafi varð það markmið Hjartaheilla að safna fé til tækjakaupa og búnaðar til þess að fá hjartaskurðaðgerð- irnar hingað heim, sem gerðist svo á næstu árum, þó sú braut væri nokkuð þyrnum stráð. Þetta hefur allar götur síðan verið á verkefnaskrá Hjartaheilla og hjartadeildin hefur þróast í það að standast allan samanburð hvert sem litið er. Enn er þó skortur á fjármagni til tækjakaupa og endurnýjunar og hefur verið lengst af. Nýlega kom út veglegt rit, Ársskýrsla Hjartadeildar Landspítalans, sú fyrsta sem gefin hefur verið út. Þar er að finna mikinn fróðleik um starfsemina og það umfangs- mikla starf sem þar er unnið. Davíð O. Arnar yfirlæknir og Bylgja Kærnested yfirhjúkrunarfræðingur ritstýra ársskýrslunni. í skýrslunni segir m.a.: „Fé til tækjakaupa er afar naumt skammtað á Landspítala en við höfum nýtt okkur gjafafé til hins ítrasta til að uppfæra og endurnýja mikilvæg tæki." Auðvitað ættu fjárveitingar alltaf að uppfylla viðhalds- og endurnýjunarþörf svo ekki þurfi að treysta á utanaðkomandi gjafafé. í Landspítalafréttum hér í blaðinu er farið yfir nokkra þætti í starfi deildarinnar og svo er þar samantekt um tölfræðina sem gefur ágæta mynd af umfangi starfseminnar. Það eru ekki allir sem gera sér grein fyrir hve margir koma að því að annast þá sem þurfa að leita til hjartadeildarinnar. Það hefur alltaf verið gott samstarf milli Velferðar, þessa málgagns Hjartaheilla, og hjartadeildarinnar. Sér- fræðingar þar hafa verið afar greiðviknir að skrifa í blaðið og gefa lesendum þess hlutdeild í því sem þeir eru að gera hverju sinni og segja frá nýjungum á sviði hjartalækninga. Sá sem þetta skrifar vissi ekki betur en hann væri að skrifa sitt síðasta Velferðarblað með hausteintakinu og kvaddi því kurteislega. Atvikin höguðu því hins vegar þannig að þetta breyttist skyndilega og nú hefur samist svo að ég sjái um þetta blað og tvö í viðbót. Þar sem afar skammur tími gafst fyrir þetta blað þurfti ég á aðstoð margra að halda. Þar brást starfsfólk hjartadeildarinnar vel við og aðstoðaði á allan hátt, ásamt reyndar mörgum öðrum. Fyrir það er ég sérstaklega þakklátur Pétur Bjarnason. Efni blaðsins 3 Frá ritstjóra 4 Hamingja 5 Hjartaheill og fræðslumyndir 6 Skyndidauði hjá ungu fólki 8 Formannafundur Hjartaheilla 2017 13 SÍBS viðurkenndur framhaldsfræðsluaðili 14 f Skálanesi 1981 16 Litlar ákvarðanir- mikill ávinningur 19 Endu rnýjað samstarf við Artasan ehf 22 Forvarnaverkefni Hjartaheilla og SÍBS 25 Af vettvangi Landspítalans 26 Af vettvangi Öryrkjabandalags íslands - ÖBÍ ------------------------A'Vn Velferð V málgagn og fréttabréf Hjartaheilla. Útgefandi: Hjartaheill, Síöumúla 6, 108 Reykjavík, sími: 552 5744. Heimasíða Hjartaheilla: hjartaheill.is Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Pétur Bjarnason. Ritnefnd: Ásgeir Þór Árnason, Sveinn Guðmundsson Prentun og umbrot: GuðjónÓ Forsíðumynd: Hvað er í hjallinum? Ljósmynd: Pétur Bjarnason Upplag: 7.100 Aðsendar greinar eru á ábyrgð höfunda. Velferð 3

x

Velferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.