Velferð - 01.05.2018, Blaðsíða 25
Af vettvangi Landspítalans
S-merkt lyf færast til LSH
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að
færa fjárhagslega ábyrgð og umsýslu vegna S-merktra og
leyfisskyldra lyíja frá Sjúkratryggingum íslands til Landspít-
ala. Horft er til þess að fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á inn-
leiðingu og notkun nýrra og dýrra lyfja í landinu fari betur
saman með þessu móti.
S-merkt lyf eru m.a. sérhæfð, dýr og vandmeðfarin lyf, not-
uð á sjúkrahúsum eða í tengslum við þau vegna sérhæfðr-
ar meðferðar og er ávísun þeirra háð ströngum skilyrðum.
Leyfisskyld lyf eru lyf sem eingöngu eru notuð í samræmi
við klínískar leiðbeiningar og eru að jafnaði kostnaðarsöm
og vandmeðfarin.
Landspítala hefur verið falið að hefja undirbúning að þessari
yfirfærslu í samráði við Sjúkratryggingar fslands og heil-
brigðisstofnanir. Þegar áætlun um verkefnið liggur fyrir
mun ráðuneytið tilkynna frá hvaða tíma Landspítalinn tek-
ur við umsýslu S-merktra og leyfisskyldra lyfja.
stórefla tækifæri til vísindarannsókna. Þetta skapar einnig
áhugaverða möguleika á gagnkvæmum vistaskiptum lækna
og hjúkrunarfræðinga til skemmri tíma sem geti nýst mjög
vel til að efla starfsþróun.
Samkomulag við Karolinska
Hjartadeild Landspítala og svið hjartalækninga á Karolinska
sjúkrahúsinu í Stokkhólmi gera samkomulag um víðtækt
samstarf.
Davíð O. Arnar yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala og
Frieder Braunschweig yfirlæknir á sviði hjartalækninga á
Karolinska sjúkrahúsinu undirrituðu í janúar s.l. samkomu-
lag um víðtækt samstarf. Samkomulagið var kynnt á fundi
sem var liður í heimsókn forseta íslands á Karolinska sjúkra-
húsið í Stokkhólmi að viðstöddum forsetahjónunum og
Sænsku konungshjónunum í Wallenbergsal Nóbelshússins.
Að sögn Davíðs felur samkomulagið í sér möguleika á fjöl-
þættu samstarfi hvað varðar framhaldsmenntun, vísinda-
rannsóknir og klíníska þjónustu. Davíð segir að þetta gæti
orðið góður samningur fyrir báða aðila og auðveldar til að
mynda aðgengi íslenskra lækna að framhaldsmenntun í
hjartalækningum á Karolinska sjúkrahúsinu auk þess að
Frystiaðgerðir vegna gáttatifs
Hjartsláttartruflunin gáttatif er eitt af stærstu viðfangsefn-
um hjartadeildar. Frysting umhverfis lungnabláæðar í
vinstri gáttinni með sérhönnuðum legg sem komið er fyr-
ir í bláæð í nára er nýr valkostur sem meðferð við þessari
hjartsláttaróreglu. Með þessu er markmiðið að einangra vef
í Iungnabláæðum raffræðilega frá vinstri gáttinni og koma
þannig í veg fyrir að gáttatif geti komið upp. Kristján Guð-
mundsson og Sigfús Gizurarson hafa haft veg og vanda af
því að innleiða þessa starfsemi hérlendis.
Micra gangráður
Landspítali er eitt af völdum sjúkrahúsum sem hafa fengið
að taka í notkun nýja tegund af hjartagangráð frá fyrirtæk-
inu Medtronic. Gangráðurinn er agnarsmár, mun minni en
hefðbundnir gangráðar og settur inn með þræðingartækni
gegnum nára en ekki skurðaðgerð eins og vanalegt er. Raf-
hlaða gangráðsins dugar í tólf til fimmtán ár.
Velferð 25