Velferð - 01.05.2018, Qupperneq 16

Velferð - 01.05.2018, Qupperneq 16
Guðmundur Löve framkvæmdastjóri SIBS Litlar ákvarðanir - mikill ávinningur Það getur virst yfirþyrmandi verkefni að takast á við lífsstílinn. Það hljómar stundum eins og allir eigi að fara út að hlaupa eða í ræktina og á okkur dynja misvísandi skilaboð um hvað sé hollt og hvað óhollt. láta ofan í okkur. Það er mikill munur á jarðarberjajógúrt með múslí þar sem viðbættur sykur er í öllu, eða hreinni AB-mjólk með haframjöli, hnetum og rúsínum þar sem við sjáum hvaðan sæta bragðið kemur. Auk unninna matvara mega óunnar vörur svo sem kjöt, fiskur, ávextir og grænmeti langflestar bera skráargatíð þótt í mörgum verslunum vanti upp á í slíkum merkingum. Sjá meira um skrá- argatið á skraargat.is. Þegar betur er að gáð eru engar töfra- lausnir til varðandi lífsstíl og áhrif hans á langvinna sjúkdóma svo sem hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki, sum krabbamein og fleiri sjúkdóma. Þetta felst allt í smáatriðunum. Lífsstíll er ekkert annað en samsafn lítilla ákvarðana sem við tökum á hverj- um degi, og með því að bæta þessar ákvarðanir mun mikið ávinnast hvað varðar heilsu og líðan. Hér á eftir eru sett fram þrjú atriði um þrjá grunnþætti heilbrigðs lífsstíls til að hjálpa þeim af stað, sem vilja bæta lífsstílinn. Þrjú lítil atriði um mataræði 1. Matur án innihaldslýsinga Reynum að kaupa mat sem er nálægt upprunanum og sem minnst unninn. Vörur án innihaldslýsinga ætti að taka fram fyrir annað ef hægt er, eins og til dæmis fisk og kjöt, hreinar mjólkurvör- ur, hnetur, fræ, rúsínur, korn, ávexti og grænmeti. Þetta er einföld regla sem tryggir að við vitum hvað við erum að Þegar við kaupum unna matvöru eins og til dæmis brauð eða morgunkorn þarf að skoða innihaldið og velja vörur með sem minnstum viðbættum sykri og sem mestu af trefjum. Þetta er strax farið að verða svolítið snúið, en hér getur skrárgatsmerkið komið okkur til bjargar - meira um það hér á eftir. Sú litla ákvörðun að taka ávallt mat í upprunalegu formi fram yfir unna mat- vöru tryggir að við séum ávallt að velja betri kostinn. 2. Skráargatsmerktar vörur Skráargatið er samnorrænt opinbert hollustumerki sem hollustuvörurnar í hverjum flokki mega bera. Skráargats- merktar vörur innihalda minni sykur og minna salt, meiri trefjar og heilkorn og minna af óhollum fitum en aðrar vörur í sama flokki. Skráargatið er fljótleg leið til að finna hollari mjólkurvörur, hollara morgunkorn, brauð, álegg og jafnvel til- búna rétti. Sú litla ákvörðun að taka ávallt skrá- argatsmerkta vöru fram yfir aðra vöru í sama flokki tryggir að við séum ávallt að velja betri kostinn. 3. Sykraðir gosdrykkir Fyrir utan tóbaksreykingar eru sykrað- ir gosdrykkir um það bil það eina sem allur almenningur ætti alfarið að taka út úr neyslunni. Sykur í gosdrykkjum er það sem kallast tómar hitaeiningar, engum til gagns og öllum til ama, setj- ur orkubrennsluna úr jafnvægi og er stærsti einstaki áhættuþáttur slæms mataræðis íslendinga. Mikilvægt er að hafa í huga að ávaxtasafar innihalda jafn mikinn sykur og gosdrykkir og því verður að stilla neyslu þeirra mjög í hóf. Einnig er ástæða til að minnast á að gervisæta liggur undir vaxandi grun um að brengla seddustjórnun og boð- efnakerfi líkamans og stuðla þannig að fitusöfnun. Því gæti verið ráð að forðast einnig sykurlausa gosdrykki með gervi- sætu og taka kolsýrt vatn fram yfir, eða bara drekka kranavatnið! 16 Málgagn Hjartaheilla

x

Velferð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.