Velferð - 01.05.2018, Síða 7

Velferð - 01.05.2018, Síða 7
Veggmerkingarfyrir hjartastuðtceki. mun meiri áhætta er á alvarlegum hjartsláttartruflunum og hjartastoppi. Ofþykktarhjartavöðvakvilli liggur, sem fyrr seg- ir, gjarnan í fjölskyldum og því mikilvægt að skoða nákomna ættingja þeirra sem hafa þennan vanda. Stundum getur erfðarannsókn hjálpað við greiningu. Til frumkominna raflífeðlisfræðilegra raskana teljast sjúk- dómar eins og heilkenni lengingar á QT bili. Stökkbreytingar í ákveðnum þekktum genum geta valdið þessum sjúkdómi og leiða gjarnan til einkennandi lengingar á svokölluðu QT bili hjartalínurits. Það er hins vegar ekki að finna neina sýnilega galla á hjartanu sjálfu og þar af leiðandi sést þetta vandamál ekki beint við krufningu. Nokkrir aðrir sjúkdómar eru í þessum flokki frumkominna raflífeðlisfræðilegra rask- ana en þeir eru mjög sjaldgæfir hérlendis. Tíðni heilkennis lengingar á QT bili hefur verið talið um það bil einn af hverjum 2000 á Vesturlöndum. Ef einstaldingur greinist með þennan sjúkdóm þarf því að skoða nána ættingja með hjarta- línuriti og oftast er gerð erfðarannsókn til að kortleggja betur hvaða stökkbreyting á í hlut. Alla jafna fylgja engin sérstök einkenni lengingu á QT bili nema ef fram koma alvarlegar hjartsláttartruflanir sem geta leitt til yfirliðs eða skyndidauða. Því lengra sem QT bilið er þvf meiri er áhætt- an á hjartastoppi alla jafna. Ef ofvaxtarhjartavöðvakvilli eða heilkenni lengingar á QT bili greinast hjá einstaklingum er oftast mælt með fyrir- byggjandi meðferð gegn hjartsláttartruflunum. Algengast er að nota lyf af flokki svokallaðra beta blokka. Þessi lyf gagnast vel til að draga úr áhættu á alvarlegum hjartsláttartruflun- um. í völdum erfiðum tilvikum þarf að íhuga ísetningu á bjargráð (ígrætt hjartarafstuðtæki) í fyrirbyggjandi tilgangi. Ef einstaklingur lifir af hjartastopp er skilyrðislaus ábending fyrir bjargráð til að koma í veg fyrir að slíkur atburður endurtaki sig. Sem fyrr segir er mikilvægt að reyna að lcomast að orsökum hjartastopps. Hjá þeim sem eru endurlífgaðir og lifa af er margvíslegum rannsóknum beitt til að komast að orsökinni. Hjá þeim sem látast skyndilega án augljósrar skýringar er langoftast framkvæmd krufning. Þrátt fyrir mjög ítarlegar rannsóknir finnst orsök fyrir hjartastoppi ekki í um þriðj- ungi þeirrra sem látast undir fertugu. í slíkum tilvikum er stundum beitt erfðarannsóknum en sennilega ætti að gera það enn oftar en nú er gert. Heilraðgreining erfðamengis er nýr og afar áhugaveður kostur í tilvikum sem þessum. f mörgum tilvikum getur einnig verið nauðsynlegt að skoða nákomna ættingja. Hjartastopp hjá ungu fólki eru ekki sjaldgæf og orsakirnar aðrar en hjá þeim sem eru komnir fram yfir miðjan aldur. Mikilvægt er að rannsaka þessa sjúklinga ítarlega til að reyna að komast að undirliggjandi vanda. Það eykur líkur á mark- vissri meðferð til að fyrirbyggja annað hjartastopp hjá þeim sem eru endurlífgaðir og sömuleiðis hjá ættingjum þeirra sem greinast með arfgengar orsakir. Grein þessi var rituð vegna Hjartamánaðar GoRed og birtist áður í GoRed blaðinu ífebrúar 2018. Birt hér með góðfúslegu leyfi höfundar. Ilbelladonnan Skeifunni 8, 108 Rvík, S: 517-6460, www.belladonna.is BLUELAG00N ICELAND Alþýðusamband fslands Velferð 7

x

Velferð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.