Velferð - 01.05.2018, Page 11

Velferð - 01.05.2018, Page 11
Ásgeir Þór fundarritari. hefur hreyfmg, mataræði, líkamsklukkan og jafnvel hugsanir áhrif á heilsu og langlífi? Einnig var rætt um hvernig komandi kynslóðir geti lifað í sátt og samlyndi við lífríki jarðarinnar. Ráðstefnugestum var boðið upp á heilsufarsmælingar á með- an ráðstefnan stóð yfir og fengu 35 einstaklingar mælingu þennan dag - erlendu gestirnir áttu eiginlega ekki orð yfir það að Hjartaheill og SÍBS gætu staðið fyrir svona öflugu forvarnarverkefni og það án gjaldtöku. Það voru glaðir starfs- menn sem héldu heim fullvissir um að þetta verkefni væri forvörn af bestu gerð. Alþjóðlegi hjartadagurinn Alþjóðlegur hjartadagurinn er haldinn 29. september ár hvert. Á íslandi sameinast Hjartavernd, Hjartaheill, Neistinn og Heilaheill um að halda daginn hátíðlegan. Ellefta hjarta- dagshlaupið fór fram laugardaginn 23. september s.l. við erf- iðar aðstæður. Hlaupnir voru 5 og 10 km að venju. Þann 29. september 2017 kl. 17:00 var hjartagangan haldin. Gengið var um Elliðaárdalinn undir forystu Hjartaheilla. Veðrið lék við göngufólk á meðan ganga stóð yfir en hún var fámenn. Heilbrigður lífsstíll er mikilvægasta forvörn gegn hjarta- og æðasjúkdómum og var þema hjartadagsins í ár er Share the Power. Annað líf Hjartaheill hefur tekið virkan þátt í samstarfsverkefninu „Annað líf". Er þar íjallað um málefni Iíífæragjafa og líffæra- þega og áfram lögð áhersla á að ná fram breytingu á lögum um líffæragjafir þannig að meginreglan verði „ætlað sam- þykki". Fjölmörg félög standa að þessu verkefni en okkar fulltrúi í hópnum er Kjartan Birgisson sem hefur að mestu leitt verkefnið. Þá hafa fulltrúar frá íslandi þrisvar tekið þátt í „Heimsleikum líffæraþega". en í ár var Kjartan Birgisson eini þátttakandinn frá íslandi. Leikarnir fóru fram á Malaga á Spáni. Hjartaheill styrkti Kjartan með því að greiða þátttöku- gjaldið fyrir hann. Kjartan Birgisson og Kristján Smith. Söfnunarbaukar Kjartan Birgisson hefur séð um losun söfnunarbauka á höf- uðborgarsvæðinu og á Keflavíkurflugvelli. Þessi fjáröflun er samtökunum afar mikilvæg og er orðin ein af stærstu tekju- lindum samtakanna. Gera þarf sérstakt átak í því að fjölga söfnunarbaukum á landsbyggðinni. I sumar tók gamla kemp- an Rúrik Kristjánsson tímabundið við að losa söfnunarbauka á höfuðborgarsvæðinu og eru honum færðar bestu þakkir fyrir. Velferðarráðuneyti styrkir Þó nokkur vinna er lögð í að skila inn greinargóðum umsókn- um til Velferðarráðuneytisins. Eins og undanfarin ár voru umsóknirnar þrjár þ.e. til reksturs samtakanna, fræðslu- og forvarnarverkefnisins og til útgáfumála. Á síðasta ári fengu samtökin 7.000.000,- kr. en styrkurinn fyrir árið 2017 var skorinn niður í 6.500.000,- kr. Stórsveit SÍBS Frá árinu 2000 hefur verið starfrækt hljómsveit sjálfboðaliða sem kennd er við SÍBS. Þessi hljómsveit hefur allar götur síðan leikið á jólaböllum á vegum ýmissa félagasamtaka s.s. hjá Neistanum, Foreldrafélagi Öskjuhlíðarskóla, Astma- og ofnæmisfélagi fslands, Foreldrasamtökum fatlaðra og SÁÁ svo eitthvað sé nefnt. Hljómsveitameðlimir eru flestir tengdir Hjartaheill og SÍBS á einhvern hátt og þegar allir mæta eru um 15 manns á sviðinu. Hjartavinir - fjölgun félagsmanna f septembermánuði hófu samtökin átak í að fjölga félags- mönnum. Öflun ehf. sem hefur séð um söfnun styrkja í Vel- ferð tók að sér þetta verkefni sem felst í því að hringja í lands- menn og bjóða þeim að gerast Hjartavinir og greiða kr. 3.900 á ári. Alls hafa 1.469 einstaklingar gerst Hjartavinir á árinu 2017. Þetta verkefni er tímalaust og mun halda áfram næstu árin. Félagafjöldi Hjartaheilla er nú kominn upp í tæplega 4.400 og hafa aldrei verið fleiri. Velferð 11

x

Velferð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.