Velferð - 01.05.2018, Qupperneq 21

Velferð - 01.05.2018, Qupperneq 21
Forvarnaverkefni Hjartaheilla og SIBS Hjartaheill hafa um langt skeið staðið að heilsufarsmælingum meðal almennings. SÍBS hefur jafnan stutt við þetta starf en á síðustu árum hefur komist á formlegt samstarf milli þessara samtaka ásamt fleiri aðildarfélgum SÍBS með eflingu forvarnastarfsins. Heilsufarsmælingar hafa verið gerðar um allt land í góðu samstarfi við heilsugæslustöðv- ar og heilbrigðisstarfsfólk á hverjum stað. Starfsfólkið eru sjálfboðaliðar á vegum félaganna, starfsmenn þeirra og hjúkrunarfræðingar bæði á vegum Hjartaheilla og SÍBS og frá viðkomandi stöðum. Þúsundir hafa mætt í mælingar Ótímabær dauðdagi af völdum hjartasjúkdóma er óásætt- anlegur og hlýtur öll sú starfsemi sem lýtur að fræðslu og forvörnum og því að upplýsa fólk sem allra best um aðstæð- ur þess, að vera af hinu góða - þar með taldar mælingar þær sem Hjartaheill og SÍBS standa fyrir. Samtals hafa frá fyrstu mælingu árið 2000 og til þessa dags verið mældir 15.689 einstaklingar á 142 stöðum um land allt. Sem betur fer hefur mikill meirihluti þessa fólks verið með öll sín gildi í lagi en margir hafa einnig fengið upplýs- ingar um að þeir þyrftu að skoða sín mál betur, breyta lífs- háttum eða leita sér lækninga. Þó e.t.v. megi benda á einstök tilfelli þar sem mælingar hafa leitt fólk til læknis, en heim- sóknin þangað reynst óþörf, eru hin tilvikin miklu fleiri þar sem upplýsingarnar sem fólk hefur fengið um ástand mála, hafa reynst mikilvægar fyrir heilsu þess, leitt til breyttra lífshátta og jafnvel komið í veg fyrir dauðsföll. Hér á eftir fer yfirlit um mælingastarf í samstarfi þessara aðila á síðasta ári. Mælingar á Vesturlandi Laugardaginn 4. febrúar lögðu 13 einstaklingar frá SÍBS, Samtökum lungnasjúklinga og Hjartaheillum í mælingaferð um Snæfellsnesið. Mælt var í Ólafsvík, Grundarfirði Stykk- ishólmi. Ferðin tók tvo daga, en síðar í sama mánuði var mælt á Akranesi og í Borgarnesi og var það einnig tveggja daga verkefni. Allar mælingarnar fóru fram á viðkomandi heilsugæslu- stöðum og í góðri samvinnu við Heilbrigðisstofnun Vest- urlands sem útvegaði okkur hjúkrunarfræðinga á hverjum stað og færum við þeim okkar hjartans þakkir fyrir gott samstarf og íbúum fyrir góða þátttöku. Að sögn hjúkrunarfræðinganna sem störfuðu með okkur var mikið um nýgreiningar þ.e. fólk hafði ekki vitneskju um of há gildi eins og blóðfitu, blóðsykur, blóðþrýsting og súr- efnismettun. Fólki með lága súrefnismettun var boðið í frá- blástursmælingu sem Aldís Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur á Reykjalundi sá um. Alls þáðu 734 einstaklingar á Vesturlandi ókeypis mælingu. Mælingar á Vestfjörðum - taka 1 Dagana 9. til 12. maí 2017 fóru fram mælingar á Vestfjörð- um. Lagt var af stað á tveimur bílum og hélt annar hópur- inn í Búðardal og mældi 22 einstaklinga og hinn kom við á Reykhólum þar sem 22 fengu mælingu. Að mælingum loknum var haldið á Patreksfjörð þar sem 82 einstaklingar voru mældir. Daginn eftir var haldið á Tálknafjörð þar sem 58 einstak- lingar fengu mælingu og á Bíldudal voru 49 einstaklingar mældir. Ljóst var að ferðinni yrði ekki haldið áfram vegna ófærðar og var því ákveðið að fara aftur á Patreksfjörð og vona að veðrið yrði betra daginn eftir. Eftir góðan morgun- verð á Patreksfirði var haldið af stað aftur þó svo að veður- útlit væri ekki gott - á Bíldudal var okkur tjáð það að við færum ekki lengra næstu daga og var þá ákveðið að annar bílinn héldi heim en hinn færi á Drangsnes og framkvæmdi mælingar þar og á Hólmavík daginn eftir. Velferð 21

x

Velferð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.