Ljósmæðrablaðið - 01.07.2017, Side 9
9Ljósmæðrablaðið - júlí 2017
auglýsingum fyrir blaðið ákvað að hætta því þar sem hún er flutt til
Svíþjóðar. Skrifstofa Ljósmæðrafélagsins, Áslaug og Birgit, tóku
þetta verkefni að sér og hefur það gengið alveg ágætlega. Höfum við
svo hjálpast að við að pakka blaðinu.
Fylgjan var gefin út árið 2015 til tveggja ára svo ekki var hún
prentuð í fyrra. Ekki hefur verið tekin ákvörðun hvort hún verður
gefin út aftur. Ekki eru allar ljósmæður sáttar við þessa breytingu og
greinilegt að ljósmæðrum þykir vænt um Fylgjuna sína.
Skýrsla sjóðanefndar
Rannsóknar- og þróunarsjóður greiddi höfuðstól sinn inn á
Þórdísarsjóð samkvæmt aðalfundarsamþykkt frá árinu 2016.
Sjóðurinn er enn að veita styrki sem þegar var búið að úhluta, frestur
var veittur um eitt ár til að klára þau verkefni sem áttu inni styrki áður
en honum er lokað. Ekki munu berast frekari tekjur inn á þennan sjóð
nema vaxtatekjur. Búist verður við því að reikningi verði lokað og
sjóður gerður upp í nóvember 2017.
Úthlutað var einum styrk úr Minningarsjóði Jóhönnu Hrafnfjörð
(MJH) að upphæð 59.000 krónum. Fleiri umsóknir bárust en einungis
ein umsókn reyndist styrkhæf úr sjóðnum.
Eftir úthlutunarfund í nóvember 2016 voru haldnir nokkrir fundir í
nóvember og desember. Fór sjóðanefnd í að breyta úhlutunarreglum
MJH-sjóðsins. Það var gert því reglurnar virtust ekki nógu skýrar
og hnitmiðaðar og ollu misskilningi við umsóknir um styrki úr
sjóðnum haustið 2016. Þess vegna setur sjóðanefnd nú inn tillögur að
breytingum á reglum MJH á 98. aðalfundi LMFÍ 2017.
Skýrsla siðanefndar
Í siðanefnd eru Birna Gerður Jónsdóttir, formaður, Anna Rut
Sverrisdóttir, Guðrún Halldórsdóttir, Til vara: Gróa Margrét
Jónsdóttir og Margrét Guðmundsdóttir, eldri. Siðanefndin hefur ekki
fengið erindi á sitt borð frá síðasta aðalfundi.
Skýrsla Norðurlandsdeildar LMFÍ
Aðalfundur Norðurlandsdeildar var haldinn að Draflastöðum í
Fnjóskadal 26. maí 2016. Fjórtán félagar mættu til fundar. Hefðbundin
aðalfundarstörf fóru fram, þar sem skipti urðu á gjaldkera félagsins
en stjórn situr að öðru leyti óbreytt. Núverandi stjórn skipa: Birgitta
Níelsdóttir, formaður, María Egilsdóttir, varaformaður, Hrafnhildur
Ævarsdóttir, gjaldkeri, Ingibjörg H. Jónsdóttir, ritari og María
Bergþórsdóttir, meðstjórnandi. Einn félagi lést á árinu. Freydís Laxdal
ljósmóðir lést í febrúar 2016 og var hennar minnst á fundinum. Einn
nýr félagi bættist í hópinn. Í maí 2016 voru því 42 félagar á skrá í
Norðurlandsdeildinni.
Önnur mál sem rædd voru á fundinum voru meðal annars aðkoma
Norðurlandsdeildar að haustþingi Læknafélags Akureyrar í október
2016. Þema þingsins var kvensjúkdómar og fæðingahjálp og stefnt
var að því að fá sem flestar ljósmæður til að vera með fyrirlestra.
Vakin var athygli á því að árið 2018 yrði Norðurlandsdeildin 50 ára.
Málfríður Þórðardóttir og Sigfríður Inga Karlsdóttir sögðu frá ferð
sinni á Norðurlandaráðstefnu ljósmæðra í Gautaborg í maí 2016.
Tæptu þær á nokkrum áhugaverðum fyrirlestrum sem þær sátu.
Sigfríður Inga sagði síðan frá því að til umræðu væri við Háskólann
á Akureyri að bjóða ljósmæðrum að 30 einingar af þeirra námi
yrði metið til meistaranáms eins og gert er nú við Háskóla Íslands.
Að fundi loknum snæddum við þriggja rétta matseðil að hætti
staðarhaldara og fengum Vilhjálm B. Bergmann skemmtikraft sem
fór með gamanmál í söng og undirspili öllum til ómældrar ánægju
og veltust ljósmæður um af hlátri á köflum. Auk aðalfundar voru
tveir stjórnarfundir haldnir á árinu. Fyrir utan það, fara samskipti
stjórnar talsvert fram með tölvupóstum eða í gegnum facebook
messenger. Norðurlandsdeildin kom síðan að nokkru leyti að
skipulagningu haustþings Læknafélags Akureyrar í samvinnu við
lækna Fæðingardeildar Sjúkrahússins á Akureyri, sem báru þungann
af því að ákveða efni og útvega fyrirlesara. Þrjár ljósmæður fluttu
fyrirlestra á þinginu og voru stéttinni að sjálfsögðu til mikils sóma.
Norðurlandsdeildinni var gefinn doppler til að hafa í
heimafæðingatösku deildarinnar. Það voru kvenfélögin Hjálpin og
Iðunn í Eyjafjarðarsveit, Tilraun í Svarfaðardal og Hlín á Grenivík
sem gáfu fé til kaupanna. Norðurlandsdeildin hélt sinn árlega
aðventufund 23. nóvember. Átján félagar mættu til fundar. Kom
Soffía Einarsdóttir sjúkraþjálfari á fundinn og hélt fræðslu um
grindarbotninn og mikilvægi þjálfunar hans. Hún sagði frá ýmsu í
sínu starfi en hún hefur meðal annars sérhæft sig talsvert í meðferð
þvagleka og vandamála á grindarbotni eftir barnsburð. Lesnar voru
frásagnir af ljósmæðrum frá árunum 1910-1930 sem sinntu fæðandi
konum um jól og áramót í íslenskri vetrarveðráttu eins og hún getur
verið verst. Skipst var á jólapökkum og að sjálfsögðu var kroppurinn
nærður með dýrindis kræsingum.
Skýrsla Ljósanna
Starfsemi deildarinnar breytist lítið milli ára. Eftir áramótin 2016
bættust 15 nýjar Ljósur í hópinn. Fyrir aðalfundinn 19. október
síðastliðinn voru send út 249 fundarboð þannig að okkur fer fjölgandi
í deildinni. Starfsmaður á skrifstofunni ásamt formanni LMFÍ hafa
aðstoðað við að bæta á póstlista þeim ljósmæðrum sem verða sextugar
á árinu og búa á Íslandi.
Ljósmæðrafélagið hefur borið kostnað af ljósritun og
póstsendingum. Það hefur reynst mjög vel að leita til félagsins með
ýmislegt sem viðkemur starfsemi deildarinnar og sömuleiðis er
starfsfólk BHM í Borgartúni afar hjálplegt. Starfsemi deildarinnar
er svipuð frá ári til árs. Einn almennur fundur var haldinn í mars
og aðalfundurinn í október. Haldnir voru þrír stjórnarfundir, en
upplýsingaflæði innan stjórnar fer mikið gegnum síma og tölvu.
Eins og allir vita verður Ljósmæðrafélagið 100 ára 2. maí 2019.
Á aðalfundi félagsins 2015 lagði Sigríður Sía Jónsdóttir fram
áhugaverða tillögu um að kanna hvort hægt væri að merkja þá
fæðingarstaði í Reykjavík og jafnvel nágrenni þar sem fæðingar fóru
fram á tuttugustu öldinni. Formaður félagsins fór þess á leit við stjórn
Ljósanna að kanna þetta og í þeirri umræðu kom fram sú hugmynd
að merkja frekar staðinn þar sem félagið var stofnað, það er að
Laugavegi 20 eða 20b í Reykjavík. Voru þessar hugmyndir ræddar
á vorfundi og var það mál okkar að kanna þá hugmynd frekar. Haft
var samband við Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar og
tillagan tekin fyrir þar. Þessi hugmynd þótti áhugaverð hjá borginni
og vorum við í stjórn boðaðar að Laugavegi 20 eða 20b þar sem
líklegt er að félagið hafi verið stofnað. Þar áttum við fund með
fulltrúa frá Skipulagsráði (Hildi Gunnlaugsdóttur) og útskýrðum
hvernig við höfðum hugsað okkur útfærsluna. Hugmyndin var að
setja steinhellu 50x50 cm með merki og nafni Ljósmæðrafélagsins,
nýja merkinu, í gangstéttina við Laugaveg 20 og undir merkinu stæði
Stofnað 2. maí 1919. Borgin er búin að svara þessu og samþykkja
að sjá um vinnuna við að setja helluna niður, en Ljósmæðrafélagið
þarf að borga fyrir gerð hellunnar. Stjórn Ljósanna er að kanna verð
hjá steinsmiðjum í Reykjavík og er búin að fá tilboð frá Steinsmiðju
S.Helgasonar upp á 84.ooo kr. Næsta skref er að kynna þetta fyrir
stjórn Ljósmæðrafélagsins sem fyrst.
Vorferðin var farin 1. júní og var ferðinni heitið um Snæfellsnes
í blíðskaparveðri. Metþátttaka var, gott skipulag í alla staði og fékk
ferðanefndin mikið hrós fyrir góðan undirbúning. Ferðanefndina
skipuðu: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Svanborg Egilsdóttir og Margrét
Guðmundsdóttir. Samkvæmt reglum deildarinnar er hvert kjörtímabil
2 ár. Úr stjórn áttu að ganga Halldóra Ásgrímsdóttir og Ásta Lóa
Eggertsdóttir. Þær gáfu báðar kost á sér áfram og voru kosnar einróma
með miklu lófaklappi. Utan formlegra starfa í Ljósudeild er fastur
liður að fara í Perluna í kaffi fyrsta miðvikudag hvers mánaðar, en sá
fundur er opinn öllum ljósmæðrum óháð því hvort þær eru skráðar í
deildina eða ekki. Vegna framkvæmda í Perlunni síðan í haust hafa
þessar samverustundir fallið niður og þurfum við að finna okkur
annan stað sem fyrst. Einnig er orðin hefð fyrir því að fara saman út að
borða á aðventunni. Að þessu sinni var farið á veitingastaðinn Skrúð
á Hótel Sögu og var góð mæting, milli 40-50 ljósmæður. Skemmtu
allar sér konunglega, frábær matur og mikil gleði. Ljósudeildin heldur
áfram að eflast og stækka með hverju ári.