Ljósmæðrablaðið - 01.07.2017, Page 17
17Ljósmæðrablaðið - júlí 2017
Síðastliðið ár hafa íslenskar ljósmæður stundað margvíslegar
rannsóknir sem geta haft áhrif á stefnumótun um barneignarþjónustu og
störf ljósmæðra á Íslandi. Ljósmæðrablaðið er sameiginlegur vettvangur
okkar og því kjörið að kynna hér þau rannsóknarverkefni sem íslenskar
ljósmæður vinna að í dag og rannsóknargreinar sem birst hafa á öðrum
vettvangi og íslenskar ljósmæður eru höfundar að.
Sigfríður Inga Karlsdóttir lauk þann 15. desember síðastliðinn
doktorsnámi í ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands þar sem hún
rannsakaði sársauka í fæðingu frá sjónarhóli kvenna. Í dag stunda
fjórar íslenskar ljósmæður rannsóknanám á doktorsstigi, en þær
eru Ingibjörg Eiríksdóttir, Sigríður Sía Jónsdóttir, Valgerður Lísa
Sigurðardóttir og Emma Swift. Íslenskar ljósmæður eru þátttakendur í
stórum samstarfsverkefnum bæði á innlendum og erlendum vettvangi.
Þau verkefni og rannsóknir sem unnið er að um þessar mundir eru:
• Barneign og Heilsa: Hildur Kristjánsdóttir og Dr. Ólöf Ásta
Ólafsdóttir.
• BIDENS rannsóknarsamstarfið (Belgium, Iceland, Denmark,
Estonia, Norway and Sweden): Hildur Kristjánsdóttir.
• COST verkefnið Childbirth Cultures, Concerns, and
Consequences: Dr. Helga Gottfreðsdóttir.
• COST verkefnið BIRTH, Building Intrapartum Research Through
Health: Dr. Sigfríður Inga Karlsdóttir og Sigríður Sía Jónsdóttir.
• MiMo módelið: Dr. Ólöf Ásta Ólafsdóttir
• The Nordic Homebirth Study: Dr. Ólöf Ásta Ólafsdóttir, Ásrún
Ösp Jónsdóttir og Dr. Berglind Hálfdánsdóttir.
• Fjölþjóðlegt rannsóknarsamstarf um mælikvarða til að meta
fæðingarótta: Emma Svift.
• Við fyrri samstarfsverkefni hefur bæst þátttaka Dr. Berglindar
Hálfdánsdóttur í rannsóknarsamstarfinu International Variations
Study í Hollandi, Brasilíu, Kanada, Chile, Danmörku, Belgíu,
Frakklandi, Þýskalandi, Íslandi, Írlandi, Möltu, Mexikó, Norður-
Írlandi, Noregi, Bretlandi og Bandaríkjunum undir stjórn Dr. Ank
de Jonge, þar sem skoðuð verður tíðni inngripa í ólíkum löndum
og tengsl inngripatíðni við útkomu fæðinga.
Aðeins ein ritrýnd grein íslenskra ljósmæðra birtist í
Ljósmæðrablaðinu á síðasta ári, eftir Ásrúnu Ösp Jónsdóttur og
Ólöfu Ástu Ólafsdóttur undir heitinu: Reynsla íslenskra feðra af
heimafæðingu „Frábær upplifun, algjörlega rétt ákvörðun fyrir okkur“
Á sama tíma hafa birst í öðrum tímaritum í það minnsta sex
ritrýndar greinar um rannsóknir sem íslenskar ljósmæður hafa gert á
efni sem snertir ljósmæðraþjónustu á Íslandi (greinar sem eru hluti af
doktorsverkefni eru stjörnumerktar):
Sigrún Ingvarsdóttir, Helga Gottfreðsdóttir og félagar birtu í
Læknablaðinu í júní 2016 greinina Viðhorf barnshafandi kvenna og
heilbrigðisstarfsmanna til fósturskimunar í móðurblóði:
http://www.laeknabladid.is/tolublod/2016/06/nr/5916
Ólöf Ásta Ólafsdóttir og félagar birtu í tímaritinu BMC Pregnancy and
Childbirth í júlí 2016 greinina Perineal injuries and birth positions
among 2992 women with a low risk pregnancy who opted for a
homebirth:
http://bmcpregnancychildbirth.biomedcentral.com/articles/10.1186/
s12884-016-0990-0
Hildur Kristjánsdóttir og samstarfsaðilar hennar í BIDENS
rannsóknarsamstarfinu birtu í tímaritinu Journal of Psychosomatic
Obstetrics & Gynaecology í september 2016 greinina Pregnant
women‘s preference for cesarean section and subsequent mode of
birth – a six-country cohort study:
http://www.tandfonline.com/doi/abs/10.1080/0167482X.2016.118105
5?journalCode=ipob20
Hildur Kristjánsdóttir, Ólöf Ásta Ólafsdóttir og félagar birtu í tímaritinu
Scandinavian journal of primary health care í desember 2016 greinina
History of violence and subjective health of mother and child:
http://www.tandfonline.com/doi/full/10.1080/02813432.2016.1249060
*Sigríður Sía Jónsdóttir og félagar birtu í tímaritinu Women and Birth
í febrúar 2017 greinina Partner relationship, social support and
perinatal distress among pregnant Icelandic women:
http://www.sciencedirect.com/science/article/pii S1871519216300919
*Emma Swift, Helga Gottfreðsdóttir og félagar birtu í tímaritinu Sexual
& Reproductive Healthcare í Mars 2017 greinina Opting for natural
birth: A survey of birth intentions among young Icelandic women:
http://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S1877575616301409
Að auki má til gamans geta þess að fjölmargar íslenskar
ljósmæður munu kynna rannsóknir sínar á alþjóðlegri ráðstefnu ICM,
alþjóðasamtaka ljósmæðra, í Toronto í júnímánuði. Ljósmæðrablaðið
hvetur íslenskar ljósmæður til að fylgjast með nýrri þekkingu sem
verður til með rannsóknum íslenskra ljósmæðra og jafnframt nýta sér
þá styrki sem í boði eru til starfsþróunar til að sækja ráðstefnur um
málefni tengd barneignarferlinu hér á landi sem á erlendri grund.
Berglind Hálfdánsdóttir
Íslenskar ljósmæðrarannsóknir
F R É T TAT I L K Y N N I N G