Ljósmæðrablaðið - 01.07.2017, Page 30
30 Ljósmæðrablaðið - júlí 2017
Ég hef um talsvert skeið haft óútskýrðan áhuga
á breytingaskeiðinu. Ég segi óútskýrðan því
sjálf er ég reynslulaus enn sem komið er af
einkennum þessa lífsskeiðs, en bíð spennt (eða
ekki) eftir því hvernig það velur að fara með
mig – eða öllu heldur hvernig ég vel að fara með
það.
Kannski stafar áhugi minn á breytingaskeiði
kvenna af þeirri staðreynd að löngum hefur það
verið svolítið tabú, sveipað dulúð og jafnvel
sætt fordómum. Litið var á breytingaskeiðið
sem sjúkdóm sem þyrfti að lækna og pískrað í
skúmaskotum um pirraðar, kynkaldar og sveittar
kellingar. Ekki nema von að þetta lífsskeið hafi
verið kvíðvænlegt í hugum margra kvenna og
er það jafnvel enn. Sem betur fer er umræðan
að opnast og fólk að verða upplýstara um þetta
eðlilega tímabil í lífi kvenna. En þó allar konur
fari í gegnum þetta skeið, þá er ljóst að upplifun
kvenna af því er mjög ólík og á meðan sumar eru
undirlagðar af einkennum finna aðrar vart fyrir neinu. Í námi mínu til
diplómagráðu í jákvæðri sálfræði og kynfræði við Háskóla Íslands
læddist breytingaskeið inn í verkefnin hjá mér. Ég hef orðið margs
vísari meðal annars með lestri fræðiefnis og rannsókna og ætla að
deila broti af því hér.
Algengustu einkenni sem konur á breytingaskeiði tjá sig um eru
svefntruflanir, hitakóf, skapsveiflur, verkir, breytt kynlöngun og
vitrænar breytingar eins og gleymska og einbeitingarskortur. Sum
þessara einkenna má rekja að einhverju leyti til hormónabreytinga,
önnur ekki. Vitrænar breytingar hefur til að mynda ekki verið hægt að
rekja til hormónabreytinga og svefntruflanir og verki aðeins að hluta
til. Flest einkenna breytingaskeiðsins má hins vegar tengja líðan eins
og kvíða, depurð, streitu og verra mati á eigin heilsu, en ekki hefur
verið unnt að tengja þessi einkenni hormónabreytingum.
Ljóst er að hugarfar og viðhorf kvenna til breytingaskeiðsins skiptir
máli, því konur sem líta neikvætt á öldrunarbreytingar og finnst
heilsan hafa versnað, upplifa meiri streitu. Því þarf að veita heildræna
meðferð og taka tillit til félagslegra þátta og sögu hverrar konu í vali
á meðferð, í stað þess að einblína á breytingaskeiðið eitt og sér eða
stakt einkenni þess. Breytingaskeiðið er nefnilega ekki eingöngu
líffræðilegt tímabil hormónabreytinga, heldur marka tíðahvörf oft tíma
mikilla breytinga í lífi kvenna, bæði sálrænna og félagslegra. Á sama
tíma og konur kveðja frjósemi sína og aldurinn færist yfir eru börnin
jafnvel að fljúga úr hreiðrinu og nýr kafli hefst í lífi konunnar með
auknum tíma og rými. Margar konur fara í víðtæka sjálfskoðun, gera
upp fortíðina og huga að framtíðinni. Á þessu lífsskeiði er oft hvati til
staðar fyrir sjálfsrækt og breytingar.
Með þessa hugsun að leiðarljósi ákvað ég að taka breytingaskeiðið
fyrir í lokaverkefni mínu í jákvæðri sálfræði. Lokaverkefnið var að
búa til námskeið sem bar titilinn „Aukin lífsfylling á breytingaskeiði
- með inngripum jákvæðrar sálfræði“. Markmiðið með námskeiðinu
var meðal annars að opna huga og efla trú kvenna á eigin getu til að
takast á við breytingaskeiðið með það að leiðarljósi að styrkja þær
og hvetja í átt að aukinni vellíðan, hamingju og lífsfyllingu. Inngrip
jákvæðrar sálfræði eins og núvitund, hreyfing, að iðka þakklæti, efla
jákvæðar tilfinningar og að kynnast styrkleikum sínum og nota þá,
hafa sýnt ítrekuð jákvæð áhrif á vellíðan og
hamingju fólks auk þess að draga úr depurð
og þunglyndi. Mig langaði að sjá hvort þessar
aðferðir gætu hjálpað konum að takast á við
einkenni breytingaskeiðsins, en þar sem jákvæð
sálfræði er ungt fag, hafa áhrif þessara aðferða
lítið verið rannsökuð fyrir þennan sértæka hóp
kvenna.
Þó komst ég að því að átta vikna hefðbundin
núvitundarþjálfun virðist bæta lífsgæði kvenna
á breytingaskeiði, draga úr streitu og bæta
svefn auk þess sem hún hjálpar konum að
takast á við einkenni hitakófa. Það sem mér
fannst áhugavert var að hitakófin mældust ekki
minni en fyrr, heldur virtust konur ná að takast
betur á við þau en áður. Það sýnir að hugarfar
og viðhorf skipta ekki síður máli hér en þegar
tekist er á við önnur verkefni í lífinu. Jákvæð
sálfræði býður upp á ótal jákvæð inngrip, sem
eru til þess fallin að breyta hugarfari og hegðun
og bæta líðan og lífsgæði. Inngripin þarf þó að stunda reglulega og þá
koma eiginleikar eins og sjálfsstjórn og þrautsegja að góðum notum,
en það eru styrkleikar sem þjálfa má upp á ýmsan hátt.
Í námi mínu í kynfræði (sexology) lék mér forvitni á að vita hvort
breytingaskeiðið hefði áhrif á kynlöngunina og hvort hún hryndi niður
eftir miðjan aldur. Ég fann með lestrinum að konur sem mældust með
lægra magn estrógens og testósterón tjáðu minni kynlöngun. Aðrir
þættir sem hafa neikvæð áhrif á kynlöngun eru streita, depurð og
kvíði, en það eru einmitt einkenni sem margar konur á breytingaskeiði
finna fyrir. Margar konur þjást af þurrki í leggöngum á þessum tíma,
en þurrkurinn einn og sér virðist ekki hafa áhrif á kynlöngun. Hins
vegar getur þurrkur valdið sársauka við samfarir, sem aftur getur
dregið úr kynlöngun og kynferðislegri ánægju. Það að eiga maka
getur haft neikvæð áhrif á kynlöngun þar sem ástríða getur minnkað
í langtímasamböndum. Þegar vaninn taki við dragi það úr kynsvörun
kvenna og hafi meiri áhrif en sjálft breytingaskeiðið. Þrátt fyrir
minni kynferðissvörun þá lýsir stór hluti kvenna á breytingaskeiði
yfir kynferðislegri ánægju sem er sterklega tengd við lífsgæði og
parsambandið, samskipti, tilfinningalega nánd, virðingu, samheldni
og ást. Kynferðisleg ánægja eykst einnig með góðu sjálfsáliti og
frumkvæði í kynlífi.
Áhugi minn á blessuðu breytingaskeiðinu kemur sér oft vel í starfi
mínu við krabbameinsleit á Leitarstöðinni. Þar hitti ég margar konur
sem eru að takast á við ólík einkenni og hafa þörf fyrir að tjá sig og
fá upplýsingar. Margar þeirra kvarta undan hitakófum, svefntruflunum
og þreytu. Enn fleiri tala um þurrk og sársauka í leggöngum. Kynlíf
heyrir aðeins sögunni til meðal sumra þeirra og einhverjar hafa
jafnvel aldrei heyrt talað um sleipiefni. Margar konur spyrja út í
fæðubótaefni, hormóna eða önnur ráð við einkennum. Upplýsingar
virðast vera af skornum skammti og þörf er á aukinni umræðu, fræðslu
og ráðgjöf. Hér getum við ljósmæður sætt færis og víkkað starfssvið
okkar enn frekar. Við höfum góða menntun og erum sérfræðingar í
barneignarskeiði kvenna. Er ekki kominn tími á okkur ljósmæður
að verða líka sérfræðingar í breytingaskeiði kvenna? Ég býð allar
áhugasamar ljósmæður velkomnar að smitast af breytingaskeiðsáhug
abakteríunni.
Blessað breytingaskeiðið
tækifæri fyrir ljósmæður?
Steinunn Zóphaníasdóttir,
ljósmóðir