Ljósmæðrablaðið - 01.07.2017, Blaðsíða 38
38 Ljósmæðrablaðið - júlí 2017
Nálastungunámskeiðin 15 ára
GV 20 (Du 20) Ht 7 Sp 6. Hvaða stafir og tölur eru þetta? Svar:
Meðferðartillaga um nálastungupunkta sem hægt er að nota til að
undirbúa fæðingu, til að efla orkuflæði og hafa jafnvægi milli yin
og yang.
Undirbúningur fyrir fæðingu nálastunguljósmæðra á Íslandi hófst
fyrir 15 árum. Þá var fyrsta nálastungunámskeiðið haldið af Lilleba
Anckers og Guðlaugu Maríu Sigurðardóttur nálastungufræðingum
og ljósmæðrum menntuðum í Svíþjóð og Danmörku. Námskeiðið
var haldið í kennslustofu ljósmæðra í Eirbergi í samstarfi
Ljósmæðrafélagsins og náms í ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands
og í fyrsta hollinu lærðu 14 ljósmæður meðal annars að stinga
í þessa punkta. Gert var samkomulag við Landlæknisembættið
um að ljósmæður sem hefðu lokið þessu námskeiði gætu nýtt
nálastungumeðferð í starfi.
Nálastungunámskeiðin hafa verið vinsæl og þær ljósmæður sem
hafa komist upp á lag með að beita nálastungum sjá oft undraverðan
árangur. Í námskeiðinu er fjallað um þekkingargrunn og samþættingu
vestrænna og kínverskra heilbrigðismeðferða. Samkvæmt kínverskri
hugmyndafræði flæðir Qi lífsorkan um orkubrautir líkamans og
skiptir hún máli fyrir heilbrigði. Truflun á flæði Qi hefur áhrif
á jafnvægi milli andstæðra krafta Yin og Yang og nálastungur í
ákveðna punkta leiðrétta eða viðhalda jafnvægi og hafa áhrif til
bættrar heilsu. Kennsla um nálastungur fyrir ljósmæður miðar að
því að gera allar ljósmæður hvort sem þær vinna í meðgönguvernd,
við fæðingar eða sinna konum eftir fæðingu, í stakk búnar til að
veita konum einfalda og oft áhrifaríka meðferð sem gagnast til
dæmis gegn meðgöngukvillum, linar sársauka og styður við eðlilega
fæðingu, sængurlegu og brjóstagjöf.
Guðlaug María sem starfar sem ljósmóðir í Keflavík er
frumkvöðull á þessu sviði ljósmóðurhjálpar hérlendis en síðustu
árin hefur kennslan eingöngu verið í hennar höndum. Námskeiðið
stendur yfir í sex daga og er tvískipt. Fyrst fer fram kennsla í fjóra
daga og svo sex vikna æfingatímabil þar sem ljósmæður skrá og
nota nálastungumeðferð í starfi áður en námskeiðinu lýkur á tveimur
dögum. Þá er meðal annars farið yfir tilfelli og árangur meðferða
metinn af þátttakendum. Nú eru námskeiðin yfirleitt haldin í BHM
salnum í Borgartúni.
Á þessum 15 árum hafa 217 ljósmæður sótt námskeiðin. Ekki eru
til upplýsingar á einum stað um hversu mikið þær hafa nýtt þekkingu
sína í starfi. Hér eru mikilvæg rannsóknarverkefni að vinna fyrir
íslenskar ljósmæður, á skráningu og mati á nálastungumeðferð.
Til að konur í barneignarferlinu geti valið nálastungumeðferð á
upplýstan hátt er þörf á að rannsaka hvar og hvernig ljósmæður nota
nálastungur, hver sé reynsla kvenna og árangurinn.
Ólöf Ásta Ólafsdóttir
50 ára ljósmæður, Guðrún, Elín, Halldóra og Guðrún Þór, mættu í málstofu ljósmæðra 2017.
Hópurinn sem útskrifaðist í apríl 2017.