Mosfellingur - 10.03.2016, Blaðsíða 26

Mosfellingur - 10.03.2016, Blaðsíða 26
 - Aðsendar greinar26 Það þarf ekki að tíunda það að læsi er grundvöllur til náms, það er því mikilvægt að börn- in okkar nái góðum tökum á lestri. Í leikskólum Mosfellsbæjar er starfrækt markviss læsisstefna sem hjálpar okkur foreldrum að stuðla að læsi barna okkar. Ég hef tekið eftir miklum framförum í sveitarfélaginu á þessu sviði undan- farin ár, í gegnum börnin mín. Það er mikið talað um PALS á mínu heimili. PALS er skemmtilegt hópastarf, Pör Að Læra Saman. PALS er leikur að stöfum og hljóðum þeirra, í leikskólunum læra börnin okkar að þekkja stafina og hvaða hljóð þeir gefa frá sér. Í leikskólunum er hvatning til læsis með góðum leik, ég mæli eindregið með að foreldrar kynni sér út á hvað PALS gengur og taki þátt í leiknum að læra að lesa með börnunum. Börn eru mjög móttækileg, sérstaklega gagnvart skemmtun. Það að fylgja starfi leikskól- ans eftir með læsis- hvetjandi umhverfi heima fyrir, eins og gert er í leikskólunum okkar, stuðl- ar að læsi barna. Ef b ö r n i n hafa tæki- færi til skoða stafina heima og ræða við foreldra um stafina og það sem þau voru að gera í leikskólanum, mun það hjálpa þeim að ná fyrr betri tökum á lestrinum. Við börnin förum oft í leik með stöfum ef drepa þarf tím- ann; 4ra ára stelpan fær spurn- ingar eins og „hvaða stafur er þetta?“ „Hver er fyrsti stafurinn í mjólk?“ „Hvað segir stafurinn S? „Hvaða stafur er á eftir R í stafrófinu?“ Þetta hefur þróast með þeirra mál- þroska og læsi, leikirnir verða meira krefjandi. Nú þegar ég keyri með 5 ára strákinn minn þá horfum við út um gluggann á bílnum. „Hvað stendur þarna á skiltinu?“ Með hvetjandi end- urgjöf verður þetta að leik. Hrósum börnunum okkar fyrir leik að stöfum. Það þurfa allir að geta lesið.  AntonSigurjóns- son,foreldribarna áHuldubergi, Höfðabergiog Lágafellsskóla. Hvetjum börnin okkar markvisst til læsis skóla hornið skólaskrifstofa mosfellsbæjar Helstu fregnir af félaginu eru þær að nýverið var haldinn fjölmennur aðalfundur, hinn 15. febrúar 2016, í Hlégarði. Fyrri stjórn var sam- hljóða endurkjörin. Um þetta má sjá nánar á vefsíðu félagsins www. famos.is. Lög félagsins endurskoðuð Lög félagsins voru endurskoðuð fyrir að- alfundinn, eftir að stjórn FaMos og sérskip- uð laganefnd höfðu komið fram með ýmsar tillögur um lagfæringar á lögum félagsins. Nokkur umræða varð um lagabreytingarn- ar en að öðru leyti gekk fundurinn vel og óhikað fyrir sig, undir góðri fundarstjórn Magnúsar Sigsteinssonar. Eftir fyrsta stjórn- arfund nýkjörinnar stjórnar varð skipting verka innan stjórnarinnar sú sama og verið hafði 2015. Mikill og góður rómur var gerð- ur að glæsilegu örþorrablótsmeðlæti með kaffinu sem var í boði félagsins. Kaffinefnd félagsins undir forystu Elísabetar Kristjáns- dóttur, matreiðslukennara, fékk mikið og verðskuldað lófaklapp fyrir sinn þátt í vel heppnuðum aðalfundi. Skemmtiatriði Meðan aðalfundargestir gæddu sér á þorrablótsréttum kaffinefndar, kom Pétur Bjarnason, fyrrum skólastjóri í Varmárskóla og síðar framkvæmdastjóri SÍBS, mjög á óvart, með skemmtilegum og fróðlegum fyrirlestri um hið einstaka og skemmti- lega hljóðfæri „harmónikkuna“. Hann mætti með einar fjórar mismunandi stórar harmónikkur úr safni sínu og gaf fundar- gestum hljóðdæmi frá hverri um sig ásamt því að fá um 80 fundargesti fundarins til að taka hressilega undir með sér. Einstaklega skemmtileg stemning og almenn ánægja með framlag Péturs. Sérkennileg staða Á fyrsta stjórnarfundi nýkjörinnar stjórn- ar FaMos, gerði formaður stjórnar FaMos, Harald S. Holsvik, grein fyrir þeirri stað- reynd að af 1362 einstaklingum, fædd- um fyrir 31.12. 1956, þ.e. 60 ára og eldri, eru ekki nema um 34% í félaginu. En 2/3 hlutar íbúa í póstnúmerunum 270. 271 og 276, virðast ekki hafa gert sér grein fyrir ágæti þess að gerast félagar. En ekkert er auðveldara, t.d. með því að koma við hjá Félagsstarfi eldri borgara að Eirhömrum. Þar liggja frammi umsóknareyðublöð um félagsaðild ásamt því að unnt er að afrita slík umsóknareyðublöð af vefsíðu félags- ins www.famos.is og senda upplýsingarn- ar á netfangið famos@famos.is ef fólk hef- ur tölvu til umráða. Svo einfalt er það. En hverjir eru þá kostir þess að vera skráður félagi í FaMos? Það er góð spurning. Helstu viðfangsefni FaMos 1. Félagið stendur fyrir ýmis konar menningar- og skemmti- starfsemi um vetrarmánuðina ásamt því að ljúka vetrarstarfinu með dagsferð sem kallast „Menn- ingarkvöld um miðjan dag“. Und- anfarin misseri hafa verið sögu- námskeið á vegum nefndarinnar og þá gjarnan farið í eins eða tveggja daga ferð um viðeigandi söguslóðir. Á vegum félagsins er einnig starfandi „Leshringur“ sem tekur ýmsar bókmenntir fyrir og grein- ir inntak þeirra „niður í kjölinn“, stundum í sameiningu með höfundum sem koma stundum og lesa upp með hópnum í góðri samvinnu með starfsfólki Bókasafnsins í Mosfellsbæ. 2. Félagið samræmir íþróttaiðkun félags- manna. Þar má nefna; vatnsleikfimi, bocc- ia, ringó og dansleikfimi. Mismunandi oft í viku hverri um vetrartímann. Ýmis íþrótta- mót eru haldin allt árið og hefur lið FaMos oft unnið til verðlauna undanfarin ár. 3. Einnig má nefna; Línudans, göngu- hóp, golf-pútt, olíumálun, gleriðju, hann- yrðir, módelsmíði, útskurð, spænskunám og fl. ótalið. Allt í góðu samstarfi við Fé- lagsstarfið að Eirhömrum. Þeir sem hafa aðgang að tölvu, fá, um vetrartímann, vikulegar tilkynningar um það sem efst er á baugi í félagsstarfinu. 4. Á vegum félagsins starfar einnig sér- stök Ferðanefnd sem skipuleggur og sam- ræmir skemmtilegar ferðir á vegum félags- ins innanlands og erlendis eftir atvikum. 5. Félagsskírteini FaMos, gildir sem af- sláttarkort um land allt, því félagið er aðili að Landssambandi eldri bogara, LEB en með félagsskírteini FaMos, virkjar félags- maður aðild að ýmsum afsláttarsamning- um og sérstakri afsláttarbók sem gefin er út af LEB og er einnig tiltæk á Internetinu, fyr- ir þá sem hafa tölvu við höndina. Algengur afsláttur af vöru og þjónustu getur verið á bilinu 10-15% eftir viðkomandi viðskiptum. Fyrirtækin í Mosfellsbæ hafa stutt og styrkt félagsstarfið vel og dyggilega og verið góður bakhjarl við félagið og starfsemi þess. Það er því ósk mín að allir félagar og þeirra fjöl- skyldur, þiggi þjónustu hér í bænum ef hún er til staðar, áður en leitað er annað. 6. Fyrir þá sem hafa unun af að syngja, þá er starfandi kór eldri borgara, Vorboðarnir, formaður er Úlfhildur Geirsdóttir. Í Vorboð- unum eru um 60 manns, veitt er kennsla í raddbeitingu ásamt því er um mjög öflugt félagsstarf að ræða og skemmtilegir við- burðir, stundum oft í mánuði. Bara fjör. Verið öll velkomin í hópinn til okkar, www.famos.is og famos@famos.is Harald S. Holsvik, formaður FaMos Sérkennileg staða hjá FaMos Félag aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni Stakar uppskriftir er að finna á www.lopidesign.is Íslenska ullin er einstök aðalfundur Við minnum á aðalfund Rauða krossins í Mosfellsbæ mánudaginn 14. mars kl. 18:00 í Rauða kross húsinu að Þverholti 7. Dagskrá: Venjubundin aðalfundarstörf samkvæmt 20. gr. laga Rauða krossins á Íslandi. Erindi: Átaksverkefni Rauða krossins – 3 dagar. Jón Brynjar Birgisson, sviðsstjóri neyðarvarnasviðs Rauða krossins. Boðið verður upp á kaffiveitingar. Félagsmenn og sjálfboðaliðar eru hvattir til að mæta. Stjórnin Aðalmerki | Samsetning | Mosfellsbæ

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.