Mosfellingur - 23.06.2016, Blaðsíða 2
Þarftu að kaupa eða selja bíl?
100bilar.is og isband.is • Þverholt 6, Mosfellsbæ
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
Í þá gömlu góðu...
héðan og þaðan
JÓLaFÖnDUR Í hLégaRðI 1961
Undirritaður fékk þessa ágætu 55 ára gömlu
ljósmynd nýlega í hendur. Engin nöfn fylgdu
henni, en það reynist oft þrautin þyngri að
hafa upp á og nafnsetja svona skemmtilegar
ljósmyndir. Flestar stúlknanna voru í hópi
fyrstu nemenda minna við Brúarlands-
skólann. Með dyggri aðstoð þeirra er gerð
tilraun til að nafngreina hópinn. Vinsamleg-
ast hafið samband ef leiðréttinga er þörf og
ef einhver hefur nöfnin sem vantar.
Nöfn:
1) Steinunn Oddsdóttir, Reykjalundi
2) Helga Höskuldsdóttir, Dælustöð 3) Hildur
Jörundardóttir, Litlalandi 4) Ásthildur
Jónsdóttir, Kaupfélaginu 5) NN 6) María
Hákonardóttir, Grund 7) Ólöf Ólafsdóttir,
Álfsnesi (?) 8) Erna Sigurjónsdóttir, Lyngási
9) Guðrún Jóhannsdóttir, Dalsgarði
10) NN 11) Þuríður Guðjónsdóttir,
Helgadal, 12) Helga Haraldsdóttir, Mark-
holti 13) Lilja Gísladóttir, Hlíðartúni
14) Arnþrúður Guðmundsdóttir, Markholti 2
15) Ingibjörg Norðdahl, Úlfarsfelli 16) NN.
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti Mosfellingur kemur út 23. ágúst
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn: (blaðamenn og ljósmyndarar)
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 4.000 eintök. Dreifing: Pósturinn.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti.
Bæjarhátíðin Í túninu heima fer fram síðustu helgina í ágúst. Há-
tíðin vex með ári hverju og hefur fest
sig rækilega í sessi. Skemmtilegast er
þegar bæjarbúar, félagasam-
tök og fyrirtæki taka sig til
og standa fyrir einhverju
skemmtilegu. Nú er
einmitt rétti tíminn til að
leggja höfuðið í bleyti
og undirbúa sig með
góðum fyrirvara.
Endilega sendið
póst á hátíðar-
nefndina ef
þið teljið að
ykkar við-
burður eigi heima á stóru dagskránni
sem bærinn gefur út, netfangið er
ituninuheima@mos.is.
Nú fer Mosfellingur í sumarfrí og mætir sprækur til baka fyrir
bæjarhátíð. Stórt og mikið hátíðarblað
kemur út 23. ágúst sem tileinkað
er bæjarhátíðinni Í túninu heima.
Sendið okkur póst ef þið viljið vera
með í stærsta blaði ársins.
Njótið sumarsins í faðmi fjölskyldu og vina. Hvað er dýrmætara?
Sjálfur stefni ég að því að ganga í það
heilaga í næsta mánuði.
Oddný, ég elska þig!
Framtíðin er núna
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
- Frítt, frjálst og óháð bæjarblað2
www.isfugl.is
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Kjarna • Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • S. 586 8080 • fax 586 8081 • www.fastmos.is • Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10 11 12
13
14
15
16