Mosfellingur - 23.06.2016, Blaðsíða 21
Breyttur opnunartími
á bæjarskrifstofum
Bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar verða opnar á
eftirfarandi tíma frá og með 1. júlí næstkomandi:
Mánudagur: 08-16
Þriðjudagur: 08-16
Miðvikudagur: 08-18
Fimmtudagur: 08-16
Föstudagur: 08-14
Markmiðið er að bæta þjónustuna með því að koma til móts við
þá sem þurfa að sinna erindum utan hefðbundins vinnutíma.
Fyrirkomulagið er til reynslu.
Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • Sími 525 6700 • mos@mos.is • www.mos.is
VIRÐING • JÁKVÆÐNI • FRAMSÆKNI • UMHYGGJA
Umsóknarfrestur er til 07. júlí 2016.
Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt
rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skulu berast á netfangið mos@mos.is. Nánari upplýsingar um starfið er að
finna á heimasíðu Mosfellsbæjar en auk þess veitir Þorsteinn Sigvaldason, upplýsingar í síma 525 6700. Um
framtíðarstarf er að ræða. Öllum um ók um verð r svar ð. Laun eru samk æmt kjar samningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Starfsmaður veitna í þjónustustöð
MOSFELLSBÆR AUGLÝSIR LAUST STARF VEITNA Í ÞJÓNUSTUSTÖÐ MOSFELLSBÆJAR.
Laust er til umsóknar starf starfsmanns veitna í þjónustustöð Mosfellsbæjar. Þjónustustöðin sér um alla
almenna þjónustu við bæjarbúa á sviði tækni og umhverfismála, svo sem viðhald og rekstur gatna, holræsa,
veitna, umferðarmannvirkja og opinna svæða auk snjómoksturs og aðstoð við garðyrkjudeild og vinnuskóla.
Starfsmaður veitna vinnur bæði við viðhald og nýlagnir vatns- og hitaveitu Mosfellsbæjar í samræmi við
útgefnar verkbeiðnir og í samstarfi við verkstjóra veitna. Meðal verkefna starfsmanns er uppsetning á
mælagrindum í nýbyggingum og upplýsingagjöf vegna þeirra. Starfsmaður er staðgengill verkstjóra veitna og
skal sinna útköllum í samræmi við samkomulag þar um. Um 100 % starf er að ræða. Konur jafnt sem karlar eru
hvött til að sækja um starfið.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru
leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Þjónustustöð heyrir undir umhverfissvið Mosfellsbæjar.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Menntun í pípulögnum æskileg eða önnur
sambærileg menntun
Reynsla í vinnu við dreifikerfi veitna er skilyrði
Suðuréttindi er kostur
Almenn ökuréttindi skilyrði
Dugnaður, frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæði
í vinnubrögðum er nauðsynleg
Nám í jarðlagnatækni kostur
www.mosfellingur.is - 21
Safnaðu áheitum á hlaupastyrkur.is
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka er meira en bara íþróttakeppni;
það er líka tækifæri til að láta gott af sér leiða. Með því að safna
áheitum á hlaupastyrkur.is leggurðu góðu málefni lið og færð
svakalega hvatningu í kaupbæti. Skelltu þér með og taktu þátt
í stærstu fjáröflun landsins!
minaskorun.is #mínáskorun
„ÉG TEK ÞÁTT Í
STÆRSTU FJÁRÖFLUN
LANDSINS“