Mosfellingur - 23.06.2016, Blaðsíða 10
- www.mosfellingur.is10
Tveir yljandi heitir pottar og vaðlaug sem er fullkomin til afslöppunar.
Huggulegt gufubað og nú hefur glænýtt eimbað verið tekið í notkun
Nóg af stólum og sólbekkjum við sundlaugarbakkann fyrir þá
sem vilja baða sig í sólinni
Lítil uppblásin rennibraut fyrir börnin til að skemmta sér í
Sundlaugin að Varmá
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ 06:30 TIL 21:00,
LAUGARDAGA FRÁ 08:00 TIL 17:00 OG SUNNUDAGA FRÁ 08:00 TIL 16:00
Róleg og notaleg sveitalaug
í heillandi umhverfi
Öll námskeiðin verða í íþróttamiðstöðinni að Varmá. Sumarfjör 2016 verður með svipuðu móti
og undanfarin ár. Lögð verður mikil áhersla á útivist og almennar íþróttir ásamt tómstundum.
Sjá dagskrá á www.mos.is. Þau börn sem þurfa á stuðningi að halda fá hann en merkja þarf
sérstaklega við það á umsókn. Skráningar eru í íþróttamiðstöðinni að Varmá.
Ath. takmarkaður fjöldi á hvert námskeið. Greiða þarf þátttökugjald við
skráningu.* Skráningu skal lokið á hádegi föstudag áður en námskeið hefst.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar í síma 663-0181, Arnar Ingi. Boðið er upp á
morgungæslu kl. 8:00-9:00 og síðdegisgæslu 16:00 -17:00, hver klst. kostar 350 kr.
Hvert námskeið 1/1 kostar 12.000 kr. Hálfur dagur kostar 7.800 kr.
Þau námskeið sem eru fram undan:
• Námskeið 3 er frá 27. júní - 1. júlí / Íþróttamiðstöðin að Varmá
• Námskeið 4 er frá 4. júlí - 8. júlí / Íþróttamiðstöðin að Varmá
• Námskeið 5 er frá 11. júlí - 15. júlí / Íþróttamiðstöðin að Varmá
• Námskeið 6 er frá 18. júlí -22. júlí / Íþróttamiðstöðin að Varmá
* Ef ekki næst lágmarksfjöldi á námskeið, má búast við að því verði frestað.
ÍTÓM
Sumarfjör
sumarfjör ÍTÓm er hafið fyrir börn fædd 2007-2010.
námskeiðin eru fyrir nemendur í yngstu bekkjum grunn-
skóla og einnig fyrir þau sem eru að hefja skólagöngu á
komandi hausti. Tilvalið námskeið fyrir þau börn sem eru
hætt á leikskólanum og eru að hefja nám í 1. bekk.
Listasalur Mosfellsbæjar
Þetta vilja börnin sjá
Farandsýning á myndskreytingum í
íslenskum barnabókum opnar í Listasal
Mosfellsbæjar laugardaginn 25. júní. Á
sýningunni sem heitir Þetta vilja börnin
sjá verða sýndar
myndskreytingar
í íslenskum
barnabókum
eftir 21 mynd-
listarmann sem
gefnar voru út á
árinu 2015. Þetta er í fjórtánda skiptið sem
sýningin er haldin með þessum hætti.
Það er Borgarbókasafnið sem stendur
að sýningunni og var hún fyrst sett upp í
Gerðubergi í janúar á þessu ári.
Sýnendur eru:
• Árni Jón Gunnarsson
• Bergrún Írís Sævarsdóttir
• Birta Þrastardóttir
• Dagmar Agnarsdóttir
• Elsa Nielsen
• Erla María Árnadóttir
• Eva Sólveig Þrastardóttir
• Fanney Sizemore
• Guðrún Magnúsdóttir
• Heiða Björk Norðfjörð
• Inga María Brynjarsdóttir
• Karl Jóhann Jónsson
• Linda Ólafsdóttir
• Margrét Einarsdóttir Laxness
• Ósk Laufdal
• Pétur Atli Antonsson
• Sigrún Eldjárn
• Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson
• Steinþór Rafn Matthíasson
• Þórey Mjallhvít Heiðar- og Ómarsdóttir
• Þórir Karl Bragason Celin
Sýningin er opin á afgreiðslutíma Bóka-
safnins og henni lýkur 16. júlí.
Minna má á að Bókasafnið og Listasal-
urinn eru einnig opin á laugardögum í
sumar frá 13 – 17.
Bókasafn Mosfellsbæjar
Gaman á
ritlistar
námskeiði
hjá Gerði
Kristnýju
26 hressir krakkar hafa
skrifað, skrafað og lesið upp
á þriggja daga námskeiði á
vegum Bókasafnsins undir
stjórn Gerðar Kristnýjar.
Gerður Kristný hefur greini-
lega unnið hug og hjörtu
krakkanna og áhugi þeirra
er mikill. Leynast ef til vill
Nóbelsverðlaunaskáld
framtíðarinnar í hópnum?
Listasalur Mosfellsbæjar
Steinunn Bergsteinsdóttir /
Ísland farsælda frón
Steinunn Bergsteinsdóttir
myndlistarmaður opnar
sýninguna ÍSLAND
FARSÆLDA FRÓN í Listasal
Mosfellsbæjar laugardaginn
23. júlí kl. 15.00 og stendur
sýningin til 13. ágúst.
Þar sýnir hún olíumálverk
og mósaíkverk tengd náttúru
Íslands og notar minni í
furðuveröld þjóðsagnanna -
Hvar er þín fornaldar frægð,
frelsið og manndáðin best?
steinunn
bergsteinsdóttir
Hressir krakkar á
ritlistarnámskeiði