Mosfellingur - 23.06.2016, Page 24

Mosfellingur - 23.06.2016, Page 24
 - Aðsendar greinar24 Þá er sumarið gengið í garð og um að gera að njóta þess til fullnustu. Margir eru nú þegar komnir í frí og enn aðrir farnir að telja niður dag- ana af tilhlökkun. Samvera og vellíðan Lífsmynstur margra breytist á sumrin og flest okkar fá tækifæri til að njóta enn meiri tíma með fjölskyld- um okkar og vinum. Njótum þess að vera saman, heimsækja fólkið okkar, tala saman, velta upp hugmyndum, skiptast á skoðun- um, gefa af okkur, prófa eitthvað nýtt, spila, leika okkur og hlæja dátt. Gerum alla þessa litlu sjálfsögðu hluti sem eru í raun félags- legur fjársjóður hverrar manneskju. Njótum náttúrunnar á hreyfingu Sumarið er ekki hvað síst tíminn til að njóta hinnar dásamlegu fegurðar náttúr- unnar og þar hefur heilsubærinn Mosfells- bær svo sannarlega upp á margt að bjóða. Nýtum okkar dásamlegu sundlaugarnar og hvernig væri síðan að gera gönguáætlun með fjölskyldunni? Við fjölskyldan erum t.d. búin að ganga á Úlfarsfellið og Mos- fell oftar en einu sinni í ár. Svo eru einnig spennandi göngu- og hjólaleiðir á láglend- inu, t.d. meðfram ströndinni, í kringum Álafosskvos, í Reykjalundarskógi, með- fram Varmánni og svo mætti lengi telja. Þess utan er líka gaman að nýta þá frábæru aðstöðu sem er t.d. í boði á Stekkjarflöt, í Hamrahlíð- arskóginum og Ævintýragarðin- um til að bregða á leik og endur- vekja barnið í sjálfum sér. Þarna er hægt að ná skemmtilegu mark- miði í hverri ferð þar sem náttúran og félagsskapurinn spila að sjálf- sögðu stærsta hlutverkið. Hugmyndirnar og möguleikar á útfærslum eru endalausir. Fjölbreyttur matur – vöndum valið Munum eftir grænmetinu og ávöxtunum, leggjum upp með hollt nesti, verum dugleg að grilla fisk og gerum í raun hvaðeina sem okkur langar til. Það er enginn alheilagur í þessum efnum en verum samt meðvituð um að gæða hráefni skiptir sköpum og er „gott fyrir kroppinn“ eins og ég segi gjarn- an við drengina mína. Fyrir hönd okkar sem stýrum Heilsuefl- andi samfélagi þá þökkum við fyrir frábært samstarf í vetur og hlökkum til að halda vegferðinni áfram í haust í samvinnu við ykkur, frábæru Mosfellingar. Njótum sum- arsins saman! Ólöf Kristín Sívertsen, lýðheilsufræðingur og verkefnisstjóri Heilsueflandi samfélags í Mosfellsbæ Njótum sumarsins saman! Það fer ekki fram hjá neinum sem leið á um Helgafellshverfi þessar vikurnar að þar er mikið um að vera. Helgafellshverfið er núna stærsti vinnustaðurinn í Mosfells- bæ, þar vinna smiðir, múrarar og fleiri iðnaðarmenn að því að reisa í kringum 400 íbúðir. Uppbyggingin í Leirvogstungu er einnig mikil en þar eru um þessar mundir um það bil 100 íbúðir í byggingu. Þessi uppbygging er öll í samræmi við áætlanir, reyndar er töluvert langt síðan þessi hverfi voru tilbúin fyrir uppbyggingu en það er ekki fyrr en núna sem byggingar- iðnaðurinn er farinn að taka aftur við sér eftir hrun. Í þessum hverfum fullbyggðum gætu búið ríflega 4000 manns, gert er ráð fyrir um 1200 íbúðum í Helgafellshverfi öllu og rúmlega 400 íbúðum í Leirvogstungu. Til samanburðar búa um 4300 manns í Vest- mannaeyjum. Óvíst er hvenær hverfin verði fullbyggð, en líklegt má telja það það gerist á næstu 10 árum. Í miðbænum hefst fljótlega bygging um 40 íbúða við Þverholt. Kvaðir er á lóðinni um að allavega 30 þeirra verði leiguíbúðir. Einnig er nú unnið að því að hefja uppbyggingu í Há- holti og Bjarkarholti, þar sem rísa munu glæsilegar íbúðir. Fjölskyldubærinn Í Mosfellsbæ er mikið af börn- um og hingað sækir fjölskyldu- fólk, því fylgir þörf á leik- og grunnskólum. Í Helgafellshverfi mun rísa leik- og grunn- skóli innan tíðar þar sem sveitarfélagið hefur hafið undirbúning að stofnun Helga- fellsskóla. Þar verða bæði leik- og grunn- skólabörn, en gert er ráð fyrir að í hverfinu rísi annar leiksskóli síðar. Í Leirvogstungu er í dag fjögurra deilda leiksskóli en börn þaðan sækja Varmárskóla þegar þau koma á grunnskólaaldur. En af hverju er svona mikill uppbyggingu í Mosfellsbæ? Ástæðurnar eru nokkrar en fyrst og fremst sú staðreynd að í Mosfellsbæ er gott að búa. Bryndís Haralds Bæjarfulltrúi og formaður skipulagsnefndar Uppbygging í Mosfellsbæ Undanfarin ár hefur Mosfellsbær veitt viðurkenningar til þeirra sem hafa skarað fram úr við að gera bæinn okkar enn fallegri. Þær hafa verið veittar í þremur flokkum: fallegasti húsagarðurinn, snyrti- legasta íbúagatan og fyrirtæki eða stofnanir sem hafa skapað fagurt og snyrtilegt umhverfi. Þessi skipting er að sumu leyti barn síns tíma því sífellt fleiri láta sig fallegt og heilnæmt umhverfi varða með fjölbreyttum hætti, bæði einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og fleiri. Þess vegna hefur verið gerð breyting á þeim ramma sem gildir um um- hverfisviðurkenningar Mosfells- bæjar. Nýjar reglur Á fundi sínum 9. júní sl. samþykkti um- hverfisnefnd Mosfellsbæjar eftirfarandi reglur: ,,Umhverfisnefnd samþykkir að breyta reglum um umhverfisviðurkenning- ar á þann veg að núverandi flokkaskipting verði afnumin. Þess í stað verði veittar við- urkenningar í einum opnum flokki. Innan hans rúmast m.a. íbúagötur, húsagarðar, fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir og ein- staklingar. Veittar verði að hámarki 5 við- urkenningar á sérhverju ári.“ Með þessum breytingum er ætlunin að ná til breiðari hóps; allir sem hafa látið sig umhverfismál og fegrun bæjarins varða með einum eða öðrum hætti koma til greina. Tilnefningar frá bæjarbúum Vert er að vekja athygli á því að allir bæjarbúar geta lagt fram ábendingar/tilnefningar um þá sem þeir telja að eigi þessar við- urkenningar skilið, hvort sem um er að ræða einstaklinga, félaga- samtök, fyrirtæki, stofnanir eða einhverja aðra. Hægt er að senda tilnefningar rafrænt á heimasíðu Mosfellsbæjar eða með tölvupósti á netfangið mos@mos.is. Með þessu móti skapast lýðræðislegur farvegur fyrir hinn almenna bæj- arbúa til að taka þátt í því ferli sem framundan er og skulu tilnefning- arnar berast fyrir 1. ágúst 2016. Í túninu heima Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar verða sem fyrr afhentar í sumarlok, á bæj- arhátíðinni Í túnina heima. Nafn þessar- ar vinsælu hátíðar er sótt í bókartitil eftir Halldór Laxness en þetta heiti má túlka á ýmsa vegu. Það er einmitt í túninu heima hjá okkur sjálfum sem bestu breytingarnar hefjast. Sérhvert okkar getur fundið farveg og verkefni til að stuðla að umhverfisvænni veröld og lagt um leið lóð á vogarskálarnar í þessum mikilvæga málaflokki. Gleðilegt umhverfissumar! Bjarki Bjarnason, formaður umhverfisnefndar Mosfellsbæjar. Örn Jónasson, varaformaður. Umhverfisviðurkenningar – nýjar reglur Við hjá Rauða krossinum í Mosfellsbæ þökkum fyrir góðar viðtökur á ýmsum verk- efnum sem við höfum verið að fara af stað með í vetur og vor. Þá viljum við þakka frábært samstarf það sem af er ári. Einnig viljum við þakka þær góðu viðtökur sem nýr starfsmaður okkar hefur fengið, en enginn starfsmaður hefur verið starfandi hjá deildinni undanfarin ár. Nú erum við hjá Rauða krossinum í Mos- fellsbæ að fara í sumarfrí og eru flest verk- efni því í hægagangi í sumar nema göngu- vinaverkefnið sem verður starfrækt í allt sumar. Starfið byrjar svo aftur af fullum krafti eftir verslunarmannahelgi. Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að fara í létta göngu í góðum félagsskap til að láta sjá sig og taka þátt í gönguvinaverkefn- inu enda nú besti tími ársins til gönguferða. Farið er frá Rauða krosshúsinu Þverholti 7 á mánudögum og fimmtudögum klukkan 17:30. Það eru allir velkomnir og hver geng- ur á sínum hraða. Þetta er upplagt tækifæri til að kynnast nýju fólki og Mosfellsbæ en í bænum okkar er mikið af gönguleiðum í einstaklega fallegu umhvefi. Hugsunin með tímasetningunni er að sem flestir komist, þ.e. þeir útivinnandi strax eftir vinnudaginn og að vera búinn fyrir kvöldmat en gangan tekur 30 til 40 mínútur. Það er ekki víst að tímasetningin sé hentug og erum við opin fyrir hugmyndum að öðrum tímasetning- um, ef þær henta fjöldanum betur. Ef þið hafið hugmynd að öðrum tíma sendið okk- ur þá línu á netfangið hulda@redcross.is. Það verður lokað í húsnæði okkar að Þverholti 7 í júlí en opnar aftur eftir versl- unarmannahelgina. Í haust verður haldið áfram þar sem frá var horfið með heimanámsaðstoð fyrir grunnskólabörn, Föt sem framlag prjóna- hópinn og skiptifatamarkað fyrir barnaföt. Nýju lífi verður blásið í heimsóknavina- verkefnið og Rauða krosshúsið verður opið reglulega. Ef þú vilt láta gott af þér leiða og gerast sjálfboðaliði eða félagsmaður hjá Rauða krossinum skaltu ekki hika við að hafa samband. Við minnum á að eindagi félagsgjalds Rauða krossins er í lok júlí, en félagsgjald- ið er mikilvægur stuðningur við deildina þó því sé mjög í hóf stillt. Félagsgjaldið er kr. 2.800 og rennur óskipt til deildarinnar. Nánar er hægt að lesa um verkefnin á heimasíðu deildarinnar: www.raudikross- inn.is/deildir/hofudborgarsvaedid/mos- fellsbaejardeild eða á Fésbókinni. Þökkum góðar viðtökur og samstarf HáHolt 14 - sími 586 1210 gott úrval af fúavörn og málningaverkfærumallt fyrir garðinn áhöld, áburður, eitur o.fl. opið á laugardögum í sumar

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.