Mosfellingur - 10.11.2016, Blaðsíða 8
- Fréttir úr Mosfellsbæ8
Fjölskyldutímar í
boði í allan vetur
Alla laugardaga
í vetur milli kl.
10:30 - 12:00
er boðið upp á
fjölskyldutíma
í íþróttahúsinu
að Varmá ætlaða
börnum á grunn-
skólaaldri og allri
fjölskyldunni. Eftir tímann fær fjöl-
skyldan svo frítt í sund. Fjölskyldu-
tímarnir hófu göngu sína í fyrra og
byggjast á samveru fjölskyldunnar.
Leiðbeinendur eru íþróttafræðing-
arnir Þorbjörg Sólbjartsdóttir og
Árni Freyr Einarsson.
Sjá sölustaði á istex.is
Gefðu hlýja jólagjöf
Ábreiða úr hinni einstöku íslensku ull gerir hverja stund hlýja og notalega...
Fyrsta skóflustungan að nýbyggingu í Hlaðgerðarkoti, meðferðar-
heimili Samhjálpar, var tekin miðvikudaginn 26. október. Bæjar-
stjóri Mosfellsbæjar, Haraldur Sverrisson, og Vörður Leví Trausta-
son framkvæmdastjóri Samhjálpar tóku skóflustunguna.
Tæpt ár er liðið frá því Samhjálp og 365 ehf. stóðu fyrir lands-
söfnun á Stöð 2 fyrir þessu verki. Þá söfnuðust um 85 milljónir í
gjöfum og loforðum þegar framkvæmdir hefjast.
Áætlað er að loka húsinu um eða upp úr næstu áramótum. Nýja
húsið, sem er fyrsti áfangi af þremur, verður 170 m2 að stærð og
tengir tvö núverandi hús saman.
Framkvæmdir hafnar við nýtt hús Samhjálpar í Dalnum • Byggt fyrir ágóða landssöfnunar
Stór dagur í
Hlaðgerðarkoti
fyrsta skóflustungan
tekin í mosfellsdal
Árlegir styrktartónleikar kirkjukórs Lága-
fellssóknar, Jólaljós, verða haldnir í Guð-
ríðarkirkju sunnudaginn 13. nóvember.
Tónleikarnir hefjast kl. 16 og eru undir
stjórn Jónasar Þóris Þórissonar og kynnir
er Örn Árnason.
Fjölmargir listamenn koma fram, m.a.
Egill Ólafsson, Diddú, Birgir Haraldsson
og Bergþór Pálsson. Allir þátttakendur í
Jólaljósi gefa vinnuna sína og rennur allur
ágóðinn óskiptur til styrkþega.
Styrkurinn rennur til Fyrstu tengsla
Að þessu sinni rennur styrkurinn til MFB
eða Fyrstu tengsla sem er miðstöð foreldra
og barna þar sem unnið er með forvarnir
og meðferð gegn þunglyndi og kvíða í eitt
ár eftir fæðingu barns. MFB hóf starfsemi
sína á Reykjalundi fyrir átta árum með
velvilja SÍBS en er nú í húsnæði þeirra að
Síðumúla 6.
Það voru þær Anna María Jónsdóttir
geðlæknir, Helga Hinriksdóttir ljósmóðir og
hjúkrunarfræðingur, Stefanía B. Arnardóttir
sérfræðingur í fjölskylduhjúkrun og Sæunn
Kjartansdóttir sálgreinir sem stofnuðu
MFB. Þær hafa langa reynslu af að vinna
með þunglyndi, kvíða og áföll.
Hjálpa við að mynda tilfinningatengsl
„Það vita allir foreldrar hvað það að eign-
ast barn kallar á miklar breytingar í lífinu
og aukið álag. Þeir foreldrar sem hafa orð-
ið fyrir áföllum eða eiga erfiða reynslu úr
barnæsku upplifa gjarnan vanmátt og ótta
gagnvart fæðingu og foreldrahlutverkinu.
Einnig ef þeir eru ungir eða njóta lítils
stuðnings fjölskyldu.
Meðferðin beinist að því að draga úr
kvíða og vanlíðan og að foreldrar finni til
gleði og njóti samvista við barnið sitt,“ segir
Helga Hinriksdóttir.
Er þakklát fyrir stuðninginn
„Við viljum stöðva hið svokallaða milli-
kynslóðasmit þar sem neikvæð mynstur
færast á milli kynslóða. Ef móðurinni líður
illa á meðgöngu eða eftir fæðingu getur
það haft áhrif á tengsl hennar við barnið.
Ef ekkert er gert getur það haft alvarlegar
afleiðingar fyrir andlega, líkamlega og fé-
lagslega heilsu og velferð barnsins og þar
með samfélagsins.
Rannsóknir hafa sýnt mikilvægi þess
að börn nái góðu tilfinningasambandi við
nánasta umönnunaraðila sem oftast er
móðirin. Þess vegna er svo mikilvægt að
barn/móðir/faðir fái viðeigandi aðstoð á
réttum tíma,“ segir Helga sem er þakklát
þessum stuðningi en frekari upplýsingar
um MFB er hægt að fá á heimasíðunni
www.fyrstutengsl.is.
Árlegir styrktartónleika kirkjukórsins haldnir í Guðríðarkirkju sunnudaginn 13. nóvember
JólalJóS til Styrktar MFB
Helga Hinriksdóttir ljósmóðir
og Hjúkrunarfræðingur
Opnuðu fjöldahjálpar
stöð í Þverholtinu
27 manns komu til aðhlynningar
í hús Rauða krossins í Mosfellsbæ
þriðjudaginn 25. október þegar
rútuslys varð á Mosfellsheiði. 42
voru um borð í rútunni sem fór á
hliðina við Skálafellsafleggjarann.
Læknar frá Heilsugæslunni skoðuðu
fólkið auk þess sem lögregla og
hjálparsveitarfólk ásamt starfs-
mönnum og sjálfboðaliðum Rauða
krossins hlúðu að fólkinu. Sam-
kvæmt starfsfólki Rauða krossins var
aðdáunarvert að sjá hversu vel allir
unnu saman til þess að aðstoða.
Meðal annars voru þrjár konur úr
prjónahópnum Föt sem framlag
sem höfðu upphaflega mætt á opið
hús til þess að horfa á myndasýn-
ingu og gæða sér á kjúklingasúpu.
Þær stóðu vaktina ásamt hinum,
færðu fólkinu te, kaffi, brauð og
súpu af miklum myndarskap.
Sigrún Ólöf hlýtur
Skúlaverðlaunin
Glerlistakonan Sigrún Ólöf Einars-
dóttir hlaut Skúlaverðlaunin 2016
á sýningunni Handverk og hönnun
sem fram fór í Ráðhúsi Reykjavíkur
um síðustu helgi. Verðlaunin hlaut
hún fyrir lampaseríuna „Ljóma“.
Tæplega 20 tillögur bárust um besta
nýja hlutinn. Skilyrðin voru að
hluturinn mátti hvorki hafa verið
til sýnis né sölu opinberlega fyrir
sýninguna. Sigrún er ein af fremstu
glerlistamönnum Íslands og hefur
rekið glerblástursvinnustofuna
Gler í Bergvík á Kjalarnesi í 36 ár.
Verðlaunin eru kennd við Skúla
Magnússon fógeta sem er frum-
kvöðull smáiðnaðar í Reykjavík.