Mosfellingur - 10.11.2016, Side 24
MS sjúkdómurinn er langvinnur sjúkdómur sem einkennist af endurtekinni bólgu í miðtauga-
kerfinu. Orsökin er óþekkt, en bólgan er
talin vera vegna truflunar í ónæmiskerf-
inu. Sjúkdómurinn er ólæknandi en til
eru lyf sem geta tafið framgang og eins
eru í boði einkennatengdar meðferðir
sem hafa jákvæð áhrif á líðan.
Lára Björk Bender sem er 24 ára greind-
ist með sjúkdóminn árið 2012. Lára segir
greininguna vissulega hafa verið mik-
ið áfall en henni hafi verið létt að vissu
leyti.
Lára Björk er fædd í Reykjavík 30. ágúst
1992. Foreldrar hennar eru þau Linda H.
Hammer viðskiptafræðingur og Haraldur
Þór Grétarsson Bender sjálfstæður atvinnu-
rekandi í ferðaþjónustu. Lára á eina systur,
Helgu Þóru, fædda 1988.
Grýtti hrísgrjónum í gestina
„Ég er alin upp í Mosfellsbænum og á
margar góðar æskuminningar. Ég ferðaðist
mikið um landið með fjölskyldu minni og
kynntist því vel. Við fórum í útilegur eða
fjalla- og sleðaferðir.
Mér er minnisstætt eitt sinn er við vorum
að pakka niður fyrir útilegu þá var ég beðin
um að taka með mér fín föt ef við skyldum
fara út að borða. Ég var nýbúin að vera með
gubbupest og var kannski ekki alveg upp á
mitt besta. Ferðinni var heitið í Hrísey en
þangað fórum við gjarnan á sumrin. Grun-
lausar tókum við systurnar fínu kjólana
okkar eins og okkur var sagt að gera. Í Hrís-
ey var svo komið við í kirkjunni því mamma
og pabbi ákváðu skyndilega að gifta sig og
við systur vorum brúðarmeyjarnar.
Eftir athöfnina áttum við að kasta hrís-
grjónum yfir mömmu og pabba þegar þau
gengu út en ég var eitthvað utan við mig
út af veikindunum og grýtti grjónunum í
gestina í staðinn.“
Átti erfitt vegna eineltis
„Ég gekk í Varmárskóla og
átti erfitt vegna eineltis á tíma-
bili en mér gekk vel námslega
séð. Ég stundaði einnig píanónám við
Listaskóla Mosfellsbæjar, söng í skólakórn-
um og æfði badminton í rúm 10 ár.
Unnusta mínum, Aroni Braga Baldurs-
syni, kynntist ég í Gaggó Mos. Aron starfar
hjá Raftækjalagernum en hann er mennt-
aður fjölmiðlatæknir og starfar einnig sem
kvikmyndatökumaður.“
Útskrifuðust frá sama skóla
„Eftir útskrift hóf ég nám í Borgar-
holtsskóla þaðan sem ég útskrifaðist af
viðskipta- og hagfræðibraut. Ég hef allt-
af átt auðvelt með að læra og fékk viður-
kenningar í ensku, frönsku, viðskiptum
og hagfræði þegar ég útskrifaðist. Ég hélt
útskriftarræðu fyrir hönd stúdenta en við
Aron útskrifuðumst bæði á sama tíma og
frá sama skóla.
Ég hélt einnig áfram í tónlistarnámi, á
rhythmísku píanói og í einsöng.“
Hægri hlið andlitsins lak niður
„Einn daginn árið 2010 lamaðist ég í
andlitinu. Ég var í skólanum og allt í einu
fann ég hvernig hægri hlið andlitsins lak
hægt og rólega niður. Ég gat ekki brosað
og átti erfitt með að halda auganu opnu og
fann líka fyrir dofaeinkennum
í fæti. Ég fór til læknis og var
greind með Bell´s Palsy eða
andlitstaugalömun. Lömunin
gekk svo til baka.
Í lok árs 2011 lenti ég í árekstri. Ég fékk
sjóntaugabólgu sem olli því að ég var rúm-
liggjandi með stöðugan svima og brenglaða
sjón. Einkennin gengu yfir á þremur vik-
um.“
Allt hringsnerist í kringum mig
„Í byrjun árs 2012 eða á sama tíma og við
Aron vorum að flytja saman í okkar eigin
íbúð veikist ég aftur. Ég fékk versta höfuð-
verk sem ég hef upplifað og vaknaði með
náladofa í hendi. Ég bjóst við að ég hefði
legið eitthvað einkennilega en svo var
ekki.
Ég gekk völt og allt hringsnerist í kring-
um mig. Ég reyndi allt til að koma blóð-
flæðinu af stað en ekkert gekk. Ég skellti
mér líka í bað til að slaka á vöðvunum en
það gekk ekki heldur.
Ég var á leið í fermingu hjá frænda mín-
um og þegar ég kom þangað tóku allir eftir
því að eitthvað var ekki í lagi. Dofinn í lík-
amanum færðist yfir á maga, bak og höfuð
vinstra megin og ég var hætt að finna fyr-
ir snertingu og geta framkvæmt ákveðnar
hreyfingar. Farið var með mig á bráðamót-
tökuna þar sem ég gekkst undir alls kyns
rannsóknir. Eftir þær var mér tjáð að sér-
fræðingur myndi bóka viðtalstíma þar sem
farið yrði yfir niðurstöðurnar.“
Greiningin veitti mér ákveðna ró
„Í viðtalstíma hjá lækninum fékk ég stað-
festingu á að ég væri með MS sjúkdóminn.
Ég var búin að ímynda mér allt það versta
áður en ég fór í viðtalstímann en greiningin
veitt mér ákveðna ró. Mér var tjáð að það
besta sem ég gæti gert væri að hreyfa mig
reglulega og passa vel upp á mataræðið.
Systir mín dró mig með sér í nokkra tíma
í polefitness og ég fann að í þeirri íþrótt var
allt sem ég þurfti á að halda, þ.e.a. s. blanda
af styrk, þoli og liðleika. Með þessum æf-
ingum get ég haldið sjúkdómseinkennun-
um niðri. Ég byrjaði að æfa á fullu hjá Eríal
Pole í Reykjavík
þar sem ég æfi
enn og kenni.
Ég er einnig
í fullorðinsfim-
leikum hjá Aft-
ureldingu.“
Bjartsýn á
framtíðina
„Ég hef
tekið sjúk-
dómnum sem
áskorun, á
að sjálfsögðu
mína slæmu
daga og hef
fundið fyrir
einkennum.
Með aðstoð
minna nán-
ustu og þá
sérstaklega Arons
hefur mér tekist að sættast betur við veik-
indin.
Í dag líður mér einstaklega vel, er í fullu
starfi hjá Orkuveitu Reykjavíkur ásamt því
að starfa sem bílstjóri í kvikmyndaverkefn-
um á vegum True North, Pegasus og Saga-
film. Ég er bara bjartsýn á framtíðina,“ segir
Lára Björk að lokum er við kveðjumst.Systurnar með foreldrum sínum. Helga Þóra, Lára Björk, Haraldur Þór Grétarsson og Linda H. Hammer.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
- Mosfellingurinn Lára Björk Bender24
Myndir: Ruth Örnólfs, Marinó Flóvent og úr einkasafni.
Ég var búin að ímynda mér
allt það versta áður en ég
fór í viðtalstímann en greiningin
veitti mér ákveðna ró. Mér var
tjáð að það besta sem ég gæti
gert væri að hreyfa mig reglulega
og passa vel upp á mataræðið.
Er bjartsýn á framtíðina
Lára Björk Bender starfsmaður hjá Orkuveitu Reykjavíkur greindist með MS sjúkdóminn árið 2012
HIN HLIÐIN
Furðulegasti matur sem þú hefur
smakkað? Hangikjötspizza.
Sturta eða bað?
Fer bara eftir skapinu sem ég er í.
Hvar lætur þú klippa þig?
Heima hjá Helgu systur.
Fallegasti staður í Mosfellsbæ?
Reykjafoss og nágrenni.
Uppáhaldshlutur? Trúlofunar-
hringurinn, enda er hann „one of a kind“.
Hvað heillar þig í fari fólks?
Bros, augu og jákvæðni.
Hvaða freistingu stenst þú ekki?
Að kaupa ný íþróttaföt.
Morgunhani eða nátthrafn?
Hvorugt, er einmitt mitt á milli.
Aron og lárA björk
SySturnAr árið 1994
537 7000 hringdu.is
INTERNET
3.990 kr.
50 Mb/s Mb/s
5.990 kr.
100 500
Mesti
hraðinn!7.390 kr.
Mb/s
Hægt er að leigja router
fyrir aðeins 790 kr. á mánuði
Allar leiðir Í boði á ADSL,
Ljósnet og Ljósleiðara
Mánaðarlegt
línugjald er 2.580 kr