Mosfellingur - 10.11.2016, Blaðsíða 26
- Konukvöld Lionsklúbbsins Úu26
M
yn
di
r/
Ru
th
Ö
rn
ól
fs
Konukvöld Lionsklúbbsins Úu var haldið með
pompi og prakt föstudagskvöldið 4. nóvember
á Hvíta Riddaranum sem bauð upp á ljúffengan
kvöldverð.
Þetta er árlegur viðburður og önnur af aðal-
fjáröflunarleiðum klúbbsins þar sem Úur og fleiri
konur koma saman og skemmta sér og láta gott
af sér leiða. Happdrætti kvöldsins var með fjölda
góðra vinninga frá velunnurum klúbbsins.
Margvísleg styrktarverkefni
Alfa R. Jóhannsdóttir formaður setti skemmt-
unina og fór yfir markmið og störf klúbbsins
ásamt helstu styrktarverkefnum sem eru margvís-
leg og áherslan er lögð á stuðning í nærumhverfi
klúbbsins. Núna eru Úurnar ásamt Lionsklúbbi
Mosfellsbæjar m.a. að safna fyrir hjólastólarólu
til að gefa Reykjadal sem er með sumarbúðir fyrir
fötluð börn.
Veislustjóri var Herdís Skúladóttir og fór hún á
kostum í skemmtilegheitum. Hjónin Ívar Símon-
arson og Ástrún Friðgeirsdóttir mættu og spiluðu
spænska tónlist. Haldin var tískusýning undir
merkjum Agnesar Geirsdóttur hönnuðar og gátu
konur keypt fallegan fatnað frá henni á staðnum.
Félagskonur vilja koma á framfæri þakklæti
til allra þeirra sem studdu við bakið á þeim með
happdrættisvinningum og einnig öllum þeim
konum sem mættu og skemmtu sér með þeim og
gerðu kvöldið eftirminnilegt í alla staði.
Lionsklúbburinn Úa hélt glæsilegt konukvöld á Hvíta Riddaranum 4. nóvember • Þema kvöldsins var skrautlegir skór
Mikið fjör á árlegu konukvöldi Úanna
Skemmti- og verkefnanefnd: BryndíS,
elín, erla fanney, anna maría, erna,
elíSaBet, Signý, Svanhvít og Sigríður.
Signý og vinkonur
helga og hrund
með flotta Skó
guðný, dagný
og ragna Þóra
Þóra Birna með
flottuStu Skóna
veiSluStjóri með
Ölfu formanni og
kriStínu ritara
agneS geirS með hluta
af SýningarStúlkunum una, dagBjÖrt og halldóra
fríða, Sigga og elíSaBet jóna og hildur mæðgurnar ÁSdíS og erna mæðgurnar vilBorg og ingiBjÖrg
mæðgurnar alfa
og Svanhildur halldóra og helgaguðBjÖrg og dæturnarSteinunn og kolBrún