Mosfellingur - 04.04.2013, Blaðsíða 4
www.lagafellskirkja.is
Sunnudagurinn 7. apríl
Fermingarguðsþjónusta í
Lágafellskirkju kl. 10:30 og
fermingarguðsþjónusta
í Mosfellskirkju kl. 13:30
Báðir prestar
Batamessa í Lágafellskirkju
kl. 17:00
Sunnudagurinn 14. apríl
Fermingarguðsþjónusta í Lága-
fellskirkju kl. 10:30. Báðir prestar
Sunnudagurinn 21. apríl
Guðþjónusta í Lágafellskirkju
kl. 11:00
Sr. Skírnir Garðarsson
kirkjustarfið
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ64
Bæjarlistamaður
býður á vortónleika
Vorskemmtun Álafosskórsins fer
fram í Bæjarleikhúsinu laugardag-
inn 13. apríl kl. 20:30. Stjórnandi
kórsins er Magnús Kjartansson
en á tónleikunum mun Samkór
Mýramanna einnig heiðra samkom-
una með nokkrum lögum. Þá mun
Kynslóðabandið undir stjórn Hans
Jenssonar leika nokkur létt lög í hléi
og munu þeir Sigurður Hansson
og Jón Magnús Jónsson syngja
þar einsöng. Veitingasala verður
á staðnum og hægt verður að eiga
saman notalega kvöldstund. Páll
Helgason bæjarlistamaður stjórnaði
Álafosskórnum um árabil og hefur
útsett fjölda laga fyrir kórinn. Frítt
verður inn á tónleikana í boði
bæjarlistamannsins.
Vorið boðið velkomið
í Bókasafninu
Menningarvor í Mosfellsbæ
verður nú haldið í fimmta sinn.
Metnaðarfull tónlistar- og menn-
ingardagskrá mun spila stóran
sess þar sem mosfellskir listamenn
koma fram ásamt góðum gestum.
Menningardagskráin fer fram í
Bókasafni Mosfellsbæjar og er
aðgangur ókeypis. Dagskránni er
skipt á næstu þrjú þriðjudagskvöld
og hefjast viðburðirnir kl. 20. Fyrsta
kvöldið er tileinkað tékkneskri
tónlist og fer fram 9. apríl. Þá leika
Arnhildur Valgarðsdóttir og Hjör-
leifur Valsson auk þess sem lesið
verður upp úr bókinni Góði dátinn
Svejk. Þann 16. apríl verður franskt
kvöld þar sem Sigríður Thorlacius
söngkona er á meðal gesta. Loks er
það íslenskt kvöld á afmælisdegi
Halldórs Laxness þann 23. apríl.
Þá verða persónur úr Íslendinga-
sögunum sálgreindar auk þess sem
sungin verða lög eftir nóbelsskáldið.
Dagskráin hefst kl. 20 öll kvöldin og
eru léttar veitingar í boði.
HelgiHald næStu vikna
w w w. l a g a fe l l s k i r k j a . i s
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar auglýsti sam-
kvæmt skipulagslögum tillögu að aðal-
skipulagi Mosfellsbæjar fyrir tímabilið
2011-2030. Fjallað var um tillöguna á
kynningarfundi í Listasal Mosfellsbæjar
fimmtudagskvöldið 21. mars. Þar flutti
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri inngang,
en síðan lýsti Gylfi Guðjónsson arkitekt
tillögunni og helstu breytingum miðað við
gildandi skipulag, en teiknistofa hans hefur
annast aðalskipulagsvinnu fyrir Mosfellsbæ
um langt árabil.
Í aðalskipulagi setur sveitarstjórn lögum
samkvæmt fram stefnu sína um landnotk-
un, byggðaþróun, byggðamynstur, sam-
göngu- og þjónustukerfi og umhverfismál
í sveitarfélaginu til minnst 12 ára.
Stöðug fjölgun íbúa í Mosfellsbæ
Við vinnu að aðalskipulagi þarf að taka
mið af spám um íbúafjölda og íbúaþróun.
Áætluð íbúðaþörf í Mosfellsbæ miðað við
fyrirliggjandi spár eru um 140-200 íbúðir á
ári. Stöðug fjölgun hefur verið í Mosfellsbæ
síðustu ár en áhugavert er að fjöldi íbúa í
bænum á aldrinum 0-54 ára er meiri en að
meðaltali á landinu. Með öðrum orðum þá
er Mosfellbær ungt, barnmargt sveitarfélag.
Hinsvegar mun fjöldi íbúa sem eru 75 ára
og eldri fjórfaldast fram til ársins 2030 mið-
að við þær spá sem verið er að vinna eftir.
Meðaltalsfjölgun í sveitarfélaginu var 3,9%
á árunum 1990-2008, en í aðalskipulaginu
er gengið út frá árlegri fjölgun um 3,3%
fram til 2030.
nýtt hesthúsahverfi í landi Hrísbrúar
Svo eitthvað sé nefnt þá lýtur helsta
breytingin í tillögunni varðandi íbúðabyggð
að fyrirhuguðu íbúðarhverfi í Lágafells-
landi, sem er stækkað talsvert í tillögunni
miðað við gildandi skipulag eða upp í það
að rúma 740 íbúðir. Í kynningu Gylfa kom
fram að mikill tími hafi farið í vinnu við
að huga að „sambúð vegar og byggðar“
við Vesturlandsveg en sú vinna hafði í för
með sér þá áherslubreytingu að mislæg-
um gatnamótum er fækkað og ákveðið að
kanna raunhæfni þess að Vesturlandsveg-
urinn fari í stokk þar sem hann fer í gegn-
um miðbæinn. Þá má nefna að í tillögunni
er gert ráð fyrir nýju hesthúsahverfi í landi
Hrísbrúar í Mosfellsdal.
Kynningarfundur um aðalskipulag Mosfellsbæjar var haldinn í Listasalnum á dögunum
Helstu breytingar á skipulagi
Áhugasamir geta kynnt sér nýtt aðalskipulag
á vefsíðu Mosfellsbæjar, www.mos.is.
Gylfi Guðjónsson arkitekt fer yfir helstu
breytingar miðað við gildandi skipulag.
Bjarni Benediktsson,
Garðabæ
Ragnheiður
Ríkharðsdóttir,
Mosfellsbæ
Jón Gunnarsson,
Kópavogi
Vilhjálmur
Bjarnason,
Garðabæ
Friðjón R. Friðjónsson,
Garðabæ
Árni Grétar Finnsson,
Hafnarfirði Unnur Lára Bryde,
Hafnarfirði
Bryndís
Loftsdóttir,
Seltjarnarnesi
Elín Hirst,
Seltjarnarnesi
Karen Elísabet
Halldórsdóttir,
Kópavogi
Óli Björn Kárason,
Seltjarnarnesi
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins
í Suðvesturkjördæmi
Valkosturinn er skýr. Við munum lækka skatta á heimili og fyrirtæki. Aðrir munu ekki gera það.
› Lækkum tekjuskatt - aukum ráðstöfunartekjur
› Lækkum gjöld á eldsneyti - lækkum verð á bensíni
› Lækkum tolla - lækkum matvöruverð
› Lækkum skatta - aukum hagvöxt
Það er bara einn flokkur
sem mun lækka skatta
Sjálfstæðisflokkurinn í Suðvesturkjördæmi NÁNAR Á 2013.XD.IS
Varmárskóli í úrslit • Lágafellsskóli lenti í 3. sæti í riðlinum • Mikill stuðningur í stúkunni
skólahreysti slær í gegn
Varmárskóli og Lágafellsskóli tóku þátt í
Skólahreysti MS á dögunum. Báðir skól-
arnir stóðu sig frábærlega og hrepptu 2.
og 3. sætið í sínum 14 skóla riðli. Lið Var-
márskóla náði það góðum árangri að hann
verður annar tveggja uppbótarskóla sem
fer í úrslit í Skólahreysti MS 2013 í Laugar-
dalshöll. Sjónvarpað verður frá úrslitunum
í beinni útsendingu 2. maí kl. 20. Þar munu
tólf skólar keppa til úrslita.
Það var um talað hve stuðningsmenn
skólanna úr Mosfellsbæ voru flottir og
öflugir. Varmárskóli hefur ekki áður keppt
til úrslita en það er einstök upplifun fyrir
keppendur og stuðningsmenn að upplifa
stemninguna sem fylgir slíkri keppni.
Mosó riðillinn var sýndur á Rúv á þriðju-
daginn. Á myndunum má sjá hrausta og
glaða krakka úr grunnskólum bæjarins. Á
baksíðu blaðsins má svo sjá lið Varmárskóla
sem keppir í úrslitum Skólahreysti.
flott innkoma hjá
stuðningsmönnum
varmárskóla
krakkarnir í lágó
styðja sitt lið
lið lágafellsskóla áfram varmárskóli