Mosfellingur - 04.04.2013, Qupperneq 20

Mosfellingur - 04.04.2013, Qupperneq 20
Leikur í Lengjubikar við Víði á morgun Karlalið Aftureldingar í knattspyrnu hóf þátttöku í Lengjubikarnum á dögunum með sex marka sigri á Hamar, gerði svo 1-1 jafntefli við HK í annarri umferð. Okkar menn eru í efsta sæti riðilsins með fjögur stig. Næsti leikur er á morgun, föstudag kl. 19 á gervigrasvellinum að Varmá, Afturelding - Víðir. Það verður Aftureldingarkaffi á könnunni í gervigrashúsinu og góðmennt í brekkunni, svo það er um að gera að snara sér í úlpu og kíkja á skemmti- legan leik. - Íþróttir20 Birgir Freyr lánaður til Virum í Danmörku Birgir Freyr Ragnarsson, fyrirliði knattspyrnuliðs Aftureldingar, hefur gengið til liðs við danska félagið Virum BK á láns- samningi. Birgir hefur stundað háskólanám í Kaupmannahöfn í vetur og sam- hliða því hefur hann æft með Virum sem leikur í dönsku 2. deildinni. Birgir mun leika með Virum næstu vikurnar áður en hann kemur aftur til Íslands í júní og tekur upp þráðinn með Aftureldingu. Skráning hafin í sumarbúðir KFUM Skráning er hafin í sumarbúðir KFUM og KFUK. Í sumar verður boðið upp á 52 dvalarflokka fyrir börn á öllum aldri í Vatnaskógi, Vindáshlíð, Kaldárseli, Ölveri og Hólavatni. Hægt er að skrá börn í sumarbúðir að Holtavegi 28, hringja í síma 588-8899 eða á heimasíðu félagsins www.kfum.is. Skráning hófst laugardaginn 16. mars og var þá haldin vorhátíð að Holtavegi 28. Ýmislegt skemmtilegt var í boði fyrir alla aldurshópa og fjölbreytt dagskrá. Má þar nefna hoppukast- ala, candy floss, andlitsmálun og ýmislegt fleira skemmtilegt. Kaffi og kaffiveitingar voru á boðstólum. Afturelding endaði í neðsta sæti í N1 deild karla Engin uppgjöf í handboltanum Handknattleikslið Aftureldingar tapaði síðasta leik tímabilsins gegn Val og endar því í botnsæti deildarinnar. Mikil meiðsli settu strik í reikn- ingin á tímabilinu og liðið náði ekki að sýna sitt rétta andlit. Þrátt fyrir slakan árangur er engin uppgjöf í herbúðum Aftureldingar. Konráð Olavsson mun stýra liðinu áfram en hann tók við keflinu eftir áramót af Reyni Þór Reynissyni. Aðalfundur handknattleiksdeildar fór fram í gærkvöldi og mun stjórnin starfa óbreytt áfram. Að sögn Ásgeirs Sveinssonar formanns meistaraflokksráðs munu strákarnir mæta öflugir til leiks að ári hvort sem liðið leiki í 1. deild eða þeirri efstu.“ Ákvörðun um fjölgun liða í efstu deild verður tekin á árs- þingi HSÍ í lok mánaðarins. „Við munum byggja á þessum frábæra hóp sem við erum með í höndunum og handboltinn í Mosfellsbæ verður áfram á fullri siglingu. Í vikunni var gengið frá tveggja ára samningi við hinn efnilega Birki Benediktsson og einnig er ljóst að markmaðurinn Davíð Svansson mun leika með liðinu áfram á næstu leiktíð. Samningar standa yfir við aðra leikmenn og er Ásgeir vongóður um að halda sem flestum leikmönnum á næsta tímabili. Það er því hugur Mosfellingum og menn farnir að undibúa áfram- haldandi uppbyggingu í handboltanum. konráð stýrir liðinu áfram Davíð spilar áfram með afturelDingu Birkir skrifaði unDir í vikunni Hilmar leggur skóna á Hilluna Glæsilegur árangur hjá Telmu Rut Telma Rut Frímannsdóttir úr karatedeild Aftureldingar hreppti bronsverðlaun í -61 kg flokki kvenna á opna sænska meistaramótinu í kumite í Malmö sem fram fór helg- ina, 23.-24. mars. Á dögunum var haldið bikarmót II í taek- wondo og líkt og á undangengnum mótum stóðu keppendur Aftureldingar sig einstak- lega vel. Það sem gerði mótið enn ánægju- legra var að það var haldið að Varmá og er það mál þeirra sem að mótinu komu, bæði sem keppendur og áhorfendur, að aldrei fyrr hafi jafnvel tekist til við mótahald í greininni. Rúmlega 250 iðkendur voru skráðir til leiks á laugardegi og sunnudegi og gekk mótið algerlega snurðulaust fyr- ir sig. Það voru ánægðir keppendur sem héldu heim á leið að móti loknu. Á laugardeginum, þar sem keppt var í barnaflokkum, náði Afturelding öðru sæti í heildarstigakeppni og á sunnudeginum, þegar keppt var í unglinga- og fullorðins- hópum varð félagið í þriðja sæti. Sex Íslandsmeistaratitlar Um miðjan mars var svo haldið Íslands- meistaramót í bardaga hjá Ármanni. Aft- urelding sendi 11 keppendur til leiks að þessu sinni, en alls voru um 130 keppend- ur skráðir. Afturelding náði besta árangri allra liða á mótinu, þegar horft er til fjölda iðkenda frá hverju félagi, og hreppti hver einasti keppandi félagsins verðlaunasæti. Afturelding fékk þannig hvorki meira né minna en sex Íslandsmeistaratitla, en Vig- dís Eyjólfsdóttir, Ágúst Örn Guðmunds- son, Níels Salómon Ágústsson, Erla Björg Björnsdóttir, Herdís Þórðardóttir og Hauk- ur Skúlason unnu gullverðlaun í sínum flokkum. Nýr formaður deildarinnar Aðalfundur taekwondodeildarinnar var haldinn á dögunum. Þar urðu formanna- skipti, Richard Már Jónsson lét af starfi formanns og við tók Haukur Skúlason, en báðir eru ið ricHarD már jónsson 250 iðkendur á bikarmóti að Varmá • Afturelding með frábæran árangur Íslandsmeistaramóti Uppgangur í Taekwondodeildinni fagnað að loknu íslanDsmeistaramóti M yn d/ Ra gg iÓ la GRÍPTU MEÐ ÞÉR GÓMSÆTA ELDBAKAÐA PIZZU ELDHEIT MEÐ TVEIMUR Stærri pizza með tveimur áleggstegundum. 1.590 kr. TVENNU TILBOÐ Þú kaupir eina pizzu af matseðli og brauðstangir og færð aðra pizzu sömu stærðar að auki. SÓTT SÓTT BÆJARLIND • HRAUNBÆ • GRENSÁSVEGI • MOSFELLSBÆ

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.