Mosfellingur - 27.09.2012, Blaðsíða 28
Dósasöfnun fyrsta
fimmtudag í mánuði
Krakkarnir í sunddeildinni hafa
þann háttinn á að safna dósum og
flöskum í Mosfellsbæ fyrsta fimmtu-
dag í hverjum mánuði. Dagana á
undan eru krakkarnir að forsafna
til að létta verkið á hinum form-
lega söfnunardegi. Þetta er helsta
fjáröflun deildarinnar sem stendur
straum af kostnaði vegna móta og
annarrar starfsemi deildarinnar.
Þessi fjáröflun krakkanna hefur líka
gert þeim kleift að fara í æfingaferð-
ir annað til þriðja hvert ár. Þeir sem
hafa verið duglegastir að taka þátt í
dósasöfnun hafa þannig fjármagnað
stóran hluta ferðakostnaðar. Síðast-
liðið sumar fóru krakkarnir til Beni-
dorm á Spáni. Stjórn sunddeildar-
innar vill biðja alla bæjarbúa að taka
vel á móti sundkrökkunum þegar
þau banka uppá í dósasöfnun.
Nýr yfirþjálfari sund-
deildar Aftureldingar
Í sumar hætti Ragnheiður Sig-
urðardóttir sem þjálfari sund-
deildar Aftureldingar. Ragga er
búin að starfa
sem yfirþjálfari
sunddeildarinnar
um langt árabil.
Stjórn sunddeild-
arinnar hefur
ráðið Salóme Rut
Harðardóttur sem
yfirþjálfara. Sal-
óme lauk prófi í íþróttafræðum frá
Háskóla Íslands í vor og stundar nú
meistaranám við Háskólann sam-
hliða sundþjálfuninni. Yfirþjálfari
sunddeildarinnar hefur yfirumsjón
með öllum flokkum deildarinnar
en sér alfarið um þjálfun Gullhóps.
Stjórn sunddeildarinnar þakkar
Röggu fyrir gott starf innan deildar-
innar og býður Salóme velkomna.
Getraunaleikurinn
hefst á laugardaginn
Hinn ómissandi og vinsæli
hópaleikur knattspyrnudeildar í
getraunum hefst laugardaginn 29.
september kl.
11:30-13:00 á
Hvíta riddaran-
um, félagsheimili
knattspyrnudeild-
ar. Tveir mynda
hvern hóp og gefa
honum nafn. Sá
sem hefur betra
skor í hvert skipti fyrir sig, telur
fyrir hópinn í keppninni. Hópunum
verður skipt í riðla og tippað í átta
vikur. Þá tekur við úrslitakeppni í
fjórar vikur, þar sem efstu tvö lið í
hverjum riðli keppa í efri deild og
aðrir í neðri deild. Keppnin endar
á lokahófi og verðlaunaafhendingu
þar sem krýndir verða getrauna-
meistarar Aftureldingar. Allir eru
velkomnir að taka þátt.
- Íþróttir28
Samið við John til
næstu tveggja ára
Írinn John Andrews hefur skrifaði undir tveggja ára samn-
ing við Aftureldingu um að þjálfa kvennalið félagsins áfram
en hann tók við liðinu á miðju sumri 2010 og stýrði því út
tímabilið. Undir sjórn John’s náði liðið góðum árangri síð-
astliðið sumar, en það endaði í 7. sæti í deildinni. ,,Þessi
árangur telst sérstaklega góður þar sem enn fer fram mikið
uppbyggingarstarf í Aftureldingu og var að jafnaði rúmur
helmingur leikmanna liðsins ungir uppaldir leikmenn.
Með framlengingu samnings milli Aftureldingar og John
vilja báðir aðilar sýna í verki að þeir eru komnir til að vera
– og takast á við það verkefni að gera Aftureldingu að einu
besta félagi landsins. Það mun félagið gera með því að
byggja á heimamönnum, en styrkja liðið ár frá ári með 1-2
sterkum íslenskum leikmönnum og 2-3 afburða erlendum
leikmönnum á meðan á uppbyggingunni stendur.
Hallur Birgisson formaður meistaraflokksráðs Aftureldingar, John Andrews þjálfari
og Jóhann Már Helgason framkvæmdastjóri Aftureldingar.
Í lok ágúst fóru strákar í 2. og 3. flokki á
sterkt mót í Berlin í Þýskalandi. Um er að
ræða boðsmót sem Fuchse Berlín heldur á
hverju ári. Þarna spila sterkustu lið Þýska-
lands í þessum aldursflokki, og það var í
gegnum Dag Sigurðsson þjálfara F. Berlín
sem Afturelding fékk boð um að taka þátt
í mótinu í ár.
Strákarnir bjuggu á flottu gistiheimili
í einni af glæsilegum íþróttahöllum sem
eru inn Ólympiusvæðinu í Berlín, en þar
hefur handboltalið F. Berlín glæsilega æf-
ingaaðstöðu.
Sigruðu 5 leiki af 7
Liðið æfði á morgnana, spiluðu tvo æf-
ingaleiki og svo 5 leiki í mótinu, auk þess
að fylgjast með æfingum hjá Degi og læri-
sveinum hans. Árangur Aftureldingar var
mjög góður í mótinu og unnu þeir 5 leiki
af þeim 7 sem þeir spiluðu í ferðinni. Mos-
fellingar vöktu mikla athygli fyrir mjög gott
handboltalið, flotta leiki og mjög sterka
einstaklinga sem skipa þennan sigursæla
hóp. Ferðin tókst í alla staði mjög vel og
þessi góða reynsla á eftir að reynast þeim
vel í baráttunni í deildinni í vetur.
Íþróttafélagið Ösp minnir á
sundnámskeiðin fyrir fötluð börn
og unglinga sem verða í Lágafels-
laug á mánudögum 15:55-16:40
og föstudögum 17:00-17:45
Leiðbeinandi verður Friðrik
Afturelding á sterku móti í Þýskalandi
hópurinn á æfingu
hjá meistaraflokki
fuchse berlin
elvar, dagur, helgi
karl og böðvar páll
Feðgar áttust við að Varmá
bjarki sigurðsson þjálfari ír
ásamt sonunum erni inga og
kristni hrannari í aftureldingu
að loknum leik liðanna í vikunni
M
yn
d/
Ra
gg
iÓ
la
Afturelding tapaði fyrsta leik tímabilsins á mánudaginn 25-28 þegar liðið tók á móti nýliðum ÍR. Bræðurnir Örn Ingi og Kristinn Hrannar voru báðir á leik-
skýrslu hjá Aftureldingu en Bjarki Sigurðsson faðir þeirra stjórnaði liði ÍR. Næsti leikur Aftureldingar er í kvöld kl. 19:30 gegn HK og fer hann fram í Kópavogi.