Mosfellingur - 27.09.2012, Síða 36
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Stúlka fædd 17. september, þyngd
3,470 gr og lengd 51 cm. Foreldrar
eru Rakel Jóna Hreiðarsdóttir og
Björn Ingi Jóhannsson.
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Sigurður Helgi fæddist 15. apríl
2012. Hann var 4090 gr og 54 cm.
Foreldrar hans eru Sædís Jónasdótt-
ir og Daníel Már Einarsson. Hann
býr í Stórakrika 17 og á tvo bræður
Einar Björn og Jónas Inga.
Vilhelmína skorar á Sólveigu Ragnarsdóttur að deila með okkur uppskrift í næsta blaði
Fylltar kjúklingabringur
Í eldhúsinu
Vilhelmína Eva Vilhjálms-
dóttir deilir með okkur
uppskrift í þetta skiptið.
4 kjúklingabringur
skinka
ostur
1/2l matreiðslurjómi eða
rjómi
1 bakki sveppir
brokkolí
paprika
ferskur hvítlaukur, salt,
pipar, paprikuduft, ítalskt
krydd
hrísgrjón
Sker kjúklingabringurnar
til helminga langsum,
ekki alveg í gegn bara
nóg til að hægt sé að opna þær.
Krydda bæði inn í og utan á með Maldon salti
og pipar, paprikudufti og stundum ef ég á
ítalska kryddblöndu skelli ég henni á.
Raða 2 ostsneiðum á annan helminginn,
skinkusneið ofan á það (brotin til helminga)
og svo 2 ostsneiðar yfir aftur og loka kjúll-
anum.
Skelli kjúllanum á pönnu með smá olíu og
loka honum á báðum hliðum þannig að hann
sé orðin hvítur að utan
en eigi bara eftir að
eldast í miðjunni.
Set matreiðslurjóma í
skál. Krydda hann vel
með Maldon salti, pipar,
paprikudufti, fersk-
um hvítlauk og ítalska
kryddinu.
Grænmetið skorið í hæfi-
lega bita. Ég set mjög
mikið af grænmeti þannig
mótið er alveg stappfullt
en bara gera þetta eftir
smekk.
Helli smá af rjómanum
í stórt eldfast mót, raða
kjúklingabringunum í það og raða grænmet-
inu meðfram þeim, helli svo rjómanum yfir
allt saman. Set svo nokkra bita af osti hér og
þar inn á milli grænmetisins, einnig hægt að
skella osti ofan á bringurnar undir lokin.
Eldað í ofni á um 180°C í sirka 30-40 mín,
eða þangað til kjúklingurinn er tilbúinn og
grænmetið eldað. Borið fram með hrísgrjón-
um, salati og hvítlauksbrauði.
hjá vilhelmÍnu
Ferða
sumarið
Það verður ekki deilt um það að
sumarið í ár hefur verið gott ferða-
sumar.
Það hafa víða um land verið slegin
met. Eftir mikið markaðssetning-
arátak Inspired by Iceland, þá
verður að segjast að þú ert ekki
maður með mönnum nema að þú
hafir heimsótt klakann. Það byrjaði
ekki gáfulega þegar nokkrir dallar
ákváðu að heimsækja landann á
sama tíma þegar það rann upp fyrir
mönnum að að væri ekki pláss
fyrir allt þetta fólk. Og það kom á
daginn, öllum langferðabílum, fjöl-
skyldubílum, hjólbörum og hesta-
kerrum var smalað saman niður
á bryggju og andskotans túrhest-
unum var skutlað gullna hringinn
sama hvað tautaði og raulaði.
Vinsældir landsins hafa náð alla
leið til Bandaríkjanna og alla leið
til Hollywood enda hefur ekki verið
þverfótað fyrir stjörnum. Allir
pöbbar , skemmtistaðir hafa verið
yfirfullir af Hollywood, það er ekki
einu sinni hægt að fara á goldfinger
og fá einn stuttan lengur án þess að
hanga í röð á eftir Tom Cruise eða
Ben Stiller. En það eru ekki allar
Hollywood stjörnur að drekka í sig
Íslenska menningu í Kópavoginum,
heldur eru sumir komnir hingað
til að vinna. Sem er bara gott, enda
veitir ekki af landkynningunni.
Sagan segir að íslenska sjávarloftið
fari ekki vel í alla og það hafi rústað
hjónabandi Tomma og Kötu okkar
Íslandsvina frá henni Ameríku.
Það eru ekki bara stjörnurnar sem
hafa það gott , einnig hefur orðspor
Íslenska lambakjötsins náð út um
víðan völl. Og gott er að klæðast því
líka.
Gott orðspor og hróður Íslands
hefur borist víða, jú Grænlands-
bjössi veit að á hálendi Íslands er
fullt af spikfeitum Ameríkönum
og gæða lambakjöti og hann hefur
vanið komu sína oftar á klakann
enda ekki á hverjum degi sem von
er á Tom Cruise, Ben Stiller eða
einhverjum öðrum úr Hollywood á
matseðlinn.
högni snær
- Heyrst hefur...36
Tilkynning frá forseta
Gufufélags Mosfellsbæjar
Í fjarveru forseta Gufufélagsins Vals
Oddssonar tilkynnist hér með að Guðjón
aðalritari hefur tekið við sem handhafi
forsetavalds í félaginu.
Guðjón fylgdi forseta út á flugvöll og tók
við forsetavaldinu í Leifsstöð.
Á myndinni má sjá Guðjón taka við sem
hadhafi forsetavalds með faðmlagi.
Tilkynning frá Forseta Gufufélags Mosfellsbæjar.
Í fjarveru forseta Gufufélagsins Vals Oddssonar tilkynnist hér með að
Guðjón Aðalritari hefur tekið við sem handhafi forsetavalds í félaginu.
Guðjón fylgdi forseta út á flugvöll og tók við forsetavaldinu í Leifsstöð.
Guðjón tekur við sem handhafi forsetavalds með faðmlagi.
2012
Heyrst Hefur...
...að Jóhannes í Bónus hafi á dögunum
verið að skoða gamla Kaupfélags-
húsið undir verslun sína Iceland.
...að hinar árlegu stóðréttir á reykjum
fari fram laugardaginn 6. október.
...að Draumakaffi sé að fara að loka.
...að Dominos íhugi að opna nýjan
stað þar sem Draumakaffi er til húsa.
...að sálin hans Jóns míns verði með
haustball í Hlégarði á laugardaginn.
...að Pétur og Gunna séu á leið til
Alicante í dag.
...að lokahóf meistaraflokka fótbolt-
ans verði haldið á Hvíta riddaranum
á föstudagskvöldið.
...að ragnheiður ríkharðsdóttir ætli að
bjóða sig fram í prófkjöri sjallanna á
Kraganum.
...að Kalli emils og Begga séu búin að
kaupa húsnæðið þar sem Hraunhús
var áður í Völuteigi.
...að brunakerfið á Hótel Laxnesi
hafi verð sett í gang að næturlagi
á dögunum til að vekja gesti þegar
norðurljósin dönsuðu á himnum.
...að sólbaðsstofa Mosfellsbæjar
sé að hætta.
...að Kjósverjar komi töluvert við sögu
í nýjustu sjónvarpsþáttunum hans
Bubba sem nefnast Beint frá Býli.
...að einar Páll Kjærnested hafi orðið
fertugur um síðustu helgi.
...að kylfingurinn Maggi Lár
sé orðinn pabbi.
...að segull og endurskinsmerki fylgi
með Mosfellingi í dag í tilefni 10 ára
afmælis blaðsins.
...að Íbúahreyfingin vilji opna píkusafn
í Mosfellsbæ.
...að stefnt sé að því að pönksveitin
Pussy riot spili við opnun
píkusafnsins.
...að Balli og Þyrí hafi eignast stelpu á
dögunum.
...að Hvíti riddarinn hafi grillað
hamborgara á Varmárvelli á síðustu
heimaleikjum liðsins.
...að ragga eigi afmæli í dag.
...að það sé 24 ára aldursmunur á elsta
og yngsta leikmanni meistaraflokks
kvenna í handbolta.
...að næsti heimaleikur í handbolt-
anum sé á móti Val fimmtudaginn
4. október.
...að handboltakappinn Hrafn Ingvars-
son sé orðinn pabbi.
...að handboltaleikirnir í vetur verði
spilaðir í nýja salnum að Varmá.
...að nýja Útsvarslið Mosfellsbæjar
skipi Bjarki Bjarna Valgarður Már
og María Páls.
...að John Andrews eigi afmæli í dag.
...að nokkrir meðlimir úr glæpa-
samtökunum Outlaws hafi verð
handteknir í urðarholtinu á dögnum.