Mosfellingur - 28.04.2006, Blaðsíða 10
Velferð fjölskyldunnar er eitt af
forgangsmálum VG í Mosfellsbæ og
þess vegna er brýnt að leikskólagjöld
verði felld niður í áföngum á næsta
kjörtímabili. Vinstri grænir eru í farar-
broddi hvað þennan málaflokk varðar
með því að vera fyrsta stjórnmálaflið
sem vill að leikskólinn sé gjaldfrjáls.
Skólayfirvöld og almenningur líta
svo á að leikskólinn sé fyrsta skóla-
stigið og það er tímaskekkja að sveit-
arfélögin innheimti skólagjöld.
Viðhorf til leikskólans endurspegl-
ast í þeim mismun sem gerður er með
því að innheimta gjald af foreldrum
með börn á fyrsta skólastigi en ekki
þeim sem eru með börn í grunnskóla
og þessu vill VG breyta.
Þess vegna mun VG í Mosfellsbæ
beita sér fyrir því á næsta kjörtíma-
bili að kennslu- og fæðisgjald í leik-
skólum verði fellt niður í áföngum og
jafnframt að gjald fyrir skólamáltíðir
í grunnskólum verði nemendum að
kostnaðarlausu. Þessi málaflokkur
varðar kjör barnafjölskyldunnar þar
sem um verulega kjarabót er að ræða.
Þessar áætlanir eru hreint ekki svo
fjarstæðukenndar og Vinstri grænir
sjá ekki að 20% lækkun á leikskóla-
gjöldum, sem tekur gildi 1. maí n.k.
hér í Mosfellsbæ, jafni þann mismun
sem gerður er á leik- og grunnskólum
landsins.
Fyrir börn, sem eru í sex tíma
vistun í leikskólum Reykjavíkur, er
greitt 17.630 á mánuði. Hins veg-
ar borguðu foreldrar í Mosfellsbæ
21.450 á mánuði fyrir sama vistunar-
tíma sinna barna áður en lækkun
leikskólagjaldanna kom til sögunnar.
Námsmenn eru einnig betur settir í
Reykjavík, þar er veittur afsláttur ef
annað foreldrið er í námi en í Mos-
fellsbæ er einungis veittur afsláttur ef
báðir foreldrarnir eru í fullu námi.
Það má öllum vera ljóst að fjöl-
skyldufólk, sem hyggst flytja í Mos-
fellsbæ, horfir í þennan mismun á
milli sveitarfélaganna. Neikvæður
samanburður kemur ekki til með að
vera hagstæður fyrir bæjarfélagið.
Það er ekki nóg að kappkosta að bjóða
upp á barnvænt og aðlaðandi umh-
verfi fyrir fjölskylduna. Ungt fólk, sem
er að fjárfesta í sínu fyrsta íbúðarhús-
næði ásamt því að ala önn fyrir börn-
um sínum, ber saman gjaldtökur
bæjarins við nágrannasveitarfélögin.
Það er því keppikefli okkar í VG að
álögum bæjarins verði stillt í hóf.
En hvað kemur niðurfelling leik-
skólagjaldanna til með að kosta
bæjarsjóð? Í dag eru um 120 börn í
fimm ára árgangnum og miðað við
þá tölu væri bæjarsjóður að verða af
28.314.000 á ári. Það er hægt að stilla
dæminu upp á ýmsan hátt, lóðarverð
í Mosfellsbæ hefur hækkað verulega
hin síðari ár og nemur útgjaldaaukn-
ingin um það bil söluverðmæti tveggja
einbýlishúsalóða. Þetta er spurning
um forgangsröðun og vilja bæjaryfir-
valda til að rétta hlut leikskólanna og
jafnframt stuðla að því að fjölskyldurn-
ar nái betur endum saman.
Bryndís
Brynjarsdóttir
Skipar 2. sæti
á lista Vinstri
grænna
Litir:
Grænn: pantone 356cvu
Rau•ur: pantone 485cvu
Mosfellingur - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar10
Í tilefni af mjög góðri rekstrarniður-
stöðu bæjarsjóðs Mosfellsbæjar fyrir
árið 2005 lagði meirihluti sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn Mosfellsbæjar
fram tillögu á bæjarstjórnarfundi 12.
apríl um að endurgreiða bæjarbúum
15% af fasteignagjöldum ársins 2006.
Einnig lagði meirihlutinn til á sama
fundi að veita 20% afslátt af dagvistar-
gjöldum frá 1. maí nk. sem og að
hækka um sömu prósentutölu niður-
greiðslur til foreldra sem eru með
börn hjá dagforeldrum. Mosfelling-
ar njóta nú þess góða árangurs sem
náðst hefur í fjármálum bæjarins.
Hvað þýðir þetta í
raun og veru?
• 30 þús. kr. lækkun á almennum
leikskólagjöldum fyrir eitt barn í
8 tíma vistun
• 20 þús. kr. hækkun á greiðslu til
foreldra sem eru með barn í vistun
hjá dagforeldri í 8 tíma
• greiði þessi fjölskylda t.d. 100 þús.
kr. í fasteignagjöld þá lækka þau um
15 þús. kr.
• góð rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs
Mosfellsbæjar árið 2005 færir þessari
fjölskyldu 65 þús. kr. sem verður að
teljast góð búbót
En hvers vegna er þetta gert nú?
Það er vegna þess að bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins gefa ekki út inni-
stæðulausa tékka, við biðum þess að
sjá niðurstöður ársreiknings og þar
sem ávinningur var meiri en áætlun-
in gerði ráð fyrir þá var lagt til að þeir
nytu sem ættu það skilið.
Oddvitar B – og G lista keppast nú
við að eigna sér þessar tillögur með
einum eða öðrum hætti en staðreynd-
in er einfaldlega sú að þeir komu á
þessum sama bæjarstjórnarfundi
ekki með eina einustu tillögu um að
bæjarbúar nytu þess árangurs sem
sýnilegur er í ársreikningi 2005. Af
hverju ekki? Svari nú hver fyrir sig.
Niðurstaða ársreiknings
2005 – breyttar áherslur
Ársreikningur Mosfellsbæjar 2005
var samþykktur á bæjarstjórnarfundi
12. apríl sl. og sýna niðurstöður hans
eina bestu rekstrarniðurstöðu í sögu
Mosfellsbæjar. Rekstrarniðurstaða A-
hluta bæjarsjóðs var jákvæð um 542
mkr. samanborið við 63 mkr. jákvæða
áætlaða afkomu í fjárhagsáætlun.
Byggingarréttur vegna Krikahverf-
is er 392 mkr. þannig að án hans er
rekstrarniðurstaða jákvæð um 151
mkr. sem er töluvert betri niðurstaða
en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.
Veltufé var jákvætt um 348 mkr. eða
12,4 % af tekjum. Eiginfjárstaða batn-
ar verulega og er eiginfjárhlutfall A-
hluta nú um 29%.
Ársreikningur 2005 er árangur
þeirrar fjármálastefnu sem mörkuð
var í upphafi þessa kjörtímabils.
Fjármálastefna sem byggðist á metn-
aði, samvinnu, trausti, aðhaldi og hag-
ræðingu. Metnaðurinn hefur verið
fólginn í því að leggja fram raunsæjar
áætlanir og skapa skilyrði til þess að
þeim yrði fylgt. Aðhald og hagræðing
hafa verið fólgin í því m.a. að for-
stöðumenn hafa haft fjárhagslegt
sjálfstæði til að ákveða innan áætl-
unar ráðstöfun fjár og hafa því getað
tekið mið af markmiðum og þörfum
sinnar stofnunar. Breyttar áherslur
og vinnubrögð, sem felast í samvinnu
og samábyrgð forstöðumanna sviða,
stofnana og stjórnenda bæjarins
ásamt aðhaldi í rekstri Mosfellsbæjar,
skila bæjarbúum ávinningi og árangri,
það sýnir ársreikningur 2005 sem og
ársreikningur 2004.
Þeir sem lögðu grunninn
Ársreikningur Mosfellsbæjar ár-
ið 2005 er glæsilegur og þar hafa
margir lagt gjörva hönd á plóginn.
Þáttur starfsmanna Mosfellsbæjar
er ómetanlegur í þeim árangri sem
náðst hefur en með samvinnu hefur
tekist að skapa liðsheild sem hefur
verið tilbúin að leggja sitt af mörkum
til þess að bæta hag allra bæjarbúa.
En ekki má gleyma þátttöku bæjarbúa
sjálfra sem með sköttum og þjónustu-
gjöldum hafa lagt grunn að þeirri
velferð sem við búum nú við. Þeirra
er ávinningurinn og því var lagt til
að þeir nytu þess árangurs sem náðst
hefur á þessu kjörtímabili og er sýni-
legur í ársreikningi 2005.
Til hamingju Mosfellingar
og gleðilegt sumar.
Bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Haraldur Sverrisson
Herdís Sigurjónsdóttir
Hafsteinn Pálsson
Mosfellingar njóta árangursins
og fá greiddan arð
Gjaldfrjáls leikskóli