Mosfellingur - 28.04.2006, Blaðsíða 13
Fax: 566-7241
namo@namo.is
NAMO ehf. - Þverholti 2 - Kjarna
S. 566-7310 og 896-0131
Afturelding leikur í íþróttafatnaði frá Jako
13Íþróttir - Mosfellingur
Ernir og Magnús
í landsliðið
Handknattleiks-
mennirnir ungu
hjá Aftureldingu,
þeir Ernir Hrafn
Arnarson og Magn-
ús Einarsson voru
fyrir páska valdir í
U-20 ára landslið
Íslands. Þeir fóru
með liðinu til
Tékklands til að taka
þátt í undankeppni
Evrópumótsins. Liðið
náði ekki að komast í loka keppni
mótsins sem verður haldið í
sumar. Þrátt fyrir það áttu okkar
menn ágætisleik í síðasta leik
á mótinu gegn Þjóðverjum þar
sem Ernir var markahæstur
íslenska liðsins með sjö mörk og
Magnús náði að skora tvö mörk.
Teikningar af nýjum golfskála tilbúnar
Samkeppni um hönnun nýs golfskála fyrir Golfklúbb inn Kjöl
er nú lokið og sigurvegari var tilkynnt ur 19. apríl síðastliðinn.
Alls bárust 13 tillögur í samkeppnina og vegleg verðlaun voru
í boði. Dómnefnd tók allar tillögur til athugunar og það var
arkitektastofan Erum arkitektar sem bar sigur úr býtum. Þeir
Erling Pedersen, Helgi Sigurðsson og Jón Þórisson sáu um
hönnunina með aðstoð Emilie Suenson. Dómnefndin taldi
heildaryfi rbragð sigurtillögunar látlaust og gott og að bygg ing-
in falli vel að umhverfi nu. Tengsl hússins við golfvöllinn er tal-
in góð og útsýni yfi r völlinn til norðurs afar gott. Það er því von
á stórglæsilegu klúbbhúsi fyrir kylfi nga Kjalar innan skamms.
Á dögunum gerði Afturelding
tveggja ára samning við JAKO um
félagsgalla Aftureldingar. Gallinn
er sameiginlegur fyrir allar deildir
innan félagsins. Hann er fáanleg-
ur hjá Namo ehf. Þverholti 2 og
fæst í barna stærðum frá 92-164
og full orðinsstærðum frá S-XXXL.
Namo ehf. mun styrkja allar deildir
félagsins í formi vöruúttektar á
samningstím anum, mismikið vissu-
lega eftir umfangi deilda. Verð gall-
ans með ísaumuðu merki félagsins í
vinstra brjósti og Afturelding á baki
er kr. 5895- í barnastærðum og kr.
7395- í fullorðinsstærðum.
Á myndinni má sjá formann Aftur-
eldingar Elísabetu Guðmundsdótt ur
og Jóhann Guðjónsson eiganda
Namo undirrita samninginn.
Samningur við JAKO
Afturelding í neðri
deild að ári
Meistarafl okkur Afturelding-
ar í handbolta verður í neðri
deild á Íslandsmeistaramótinu
á næsta ári. Möguleikarnir á því
að vera í efri deild voru litlir en
eftir tap gegn Haukum á Ásvöll-
um um síðustu
helgi er ljóst að
Afturelding er
fallin um deild.
Strákarnir okkar
voru ekki nægj-
anlega stöðugir í
vetur og ófá jafn-
tefl in urðu sem leiddu til þess
að liðið náði ekki að tryggja sér
meðal átta bestu liða á Íslandi.
Síðasti leikur liðsins er nú um
helgina að Varmá þar sem tekið
verður á móti Stjörnunni.
Sigurganga
fi mleikabarna
Börn úr fi mleikadeild Aftur-
eldingar komu sigurreif heim af
tveimur mótum sem haldin voru
í kringum páskana. P-2 hóp urinn
hreppti gullverðlaun á hóp-
fi mleikamóti sem haldið var í
Bjarkarheimilinu. Stúlkurn ar eru
á aldrinum 10-14 ára. Frá fi m-
leikadeild Aftureldingar mættu
að þessu sinni fjögur keppnislið,
P-2, P-1, M-10 og drengjalið. Öll
liðin stóðu sig frábærlega vel.
Sami hópur hreppti einnig silfrið
á hópfi mleikamóti í Þorlákshöfn
í vikunni fyrir páska.
Annar keppnishópur frá
Aftur eldingu, M-10 stúlkurn-
ar, hrepptu einnig silfur á
hópfi m leikamótinu á Þorláks-
höfn. Stelpurnar eru ungar og
sérstaklega efnilegar og er þetta
í annað sinn sem þær vinna til
verðlauna fyrir Aftureldingu.
Drengjahópur deildarinn ar tók
þátt á sínu fyrsta móti á Þorláks-
höfn og lentu strákarnir í þriðja
sæti. Börn, þjálfarar og foreldrar
eru hæstánægð með árangur
vetrarins.
Vorsýning fi mleikadeildar-
innar verður haldin 28. maí
næstkomandi kl. 15:30-17:30 og
eru allir velkomnir.
Þrumur og elding-
ar endurvaktar
Foreldrafélag í fótboltanum
hefur ákveðið að endurvekja
hinn geysi vinsæla Flóamarkað
sem félagið hélt árlega áður
fyrr við miklar vinsældir. Allt
sem er nýtilegt til endursölu
á fl óamarkaði þiggjum við
með þökkum. Við biðjum því
bæjarbúa að hugsa til okkar í
hinni árlegu vorhreingerningu
á heimilum. Tökum við varningi
að Varmá að morgni 27. maí eða
sækjum heim sé þess óskað
Á myndinni má sjá meðlimi
Gildrunnar afhenda 400.000 kr.
ávísun til lagningar gervigras-
vallarins að Varmá.
Kolbrún Kristmundsdóttir á
trampolíni. Á efri myndinni
má sjá stelpurnar í M-10.