Mosfellingur - 22.12.2006, Page 16
Kveikt á jólatrénu við Kjarnann ORÐIÐ ER LAUST...
Hér gefst lesendum kostur á að
láta skoðanir sínar í ljós í stuttu máli.
Netfangið er mosfellingur@simnet.is
Kæru Mosfellingar
Það er ágætt að búa í Mosfells-
bæ. Bærinn er skemmtilega stór.
Það sem mig langaði hinsvegar
til að ræða er hvernig bílunum
er oft lagt kjánalega í Íþrótta-
miðstöðinni að Varmá. Þá á ég við
að einhverjum snill ing unum dett-
ur stundum í hug að taka keðjuna
niður og keyra inn á leiksvæði
fyrir fram innganginn og leggja
bílunum þar. Síðan er lagt fyrir
fram an sundlaugina og út um allt.
Afl eiðingin er sú að slysa-
hættan er mikil fyrir framan
innganginn. Þarna geta börnin og
aðrir venjulega gengið rólegir um
en allt í einu er fullt af bílum sem
eru að koma og fara. Þetta gerist
ótrúlega oft á sömu dögunum
og þá spyr maður sig hverjir séu
að æfa í húsinu. Hugsanlega er
elliheimilið með tíma í salnum og
þarf því fólkið að spara sporin fyrir
átökin inn í salnum, hver veit?
Ég er hinsvegar sannfærður
um að ef við hugsum aðeins og
tökum tillit til náungans þá er
auðvelt að laga þetta vandamál.
Ég hlakka til að sjá bílana í
bílastæðunum en ekki á gangstígn-
um fyrir framan innganginn í góða
íþróttahúsið okkar.
Áfram Mosó.
Kv. foreldri
Mosfellingur - Íþróttirsf lli r - Frét ir, bæjarmál og aðsendar greinar16
Þann 7. desember sl. voru 44
nýliðar Skátafélagsins Mosverjar
vígðir inn í hreyfi nguna.
Athöfnin fór fram á jólafundi
félagsins sem haldinn var í Lága-
fellsskóla. Sveitarforingjar Mosverja
önnuðust vígsluna sem er hefðbund-
in athöfn þar sem nýliðarnir fá
fyrsta skátaklútinn að gjöf frá félag-
inu. Skátasöngvar voru sungnir og
skemmti leg stemmning skapaðist
þegar nýliðarnir fóru með skáta-
heitið. Auk þess var Mosverjum veitt
viðurkenning Bandalags íslenskra
skáta fyrir samfélagsverkefnið „gjöf
til friðar” sem gert var nú á þessu ári
í tilefni 100 ára afmælis skátahreyfi ng-
arinnar. Fjölmargir gestir komu og
eftir fundinn var hið eina og sanna
skátakakó kneifað. Mikill kraftur er
í starfi Mosverja um þessar mundir
og verður mikið að gera á árinu 2007
þeg ar 100 ára afmælisárið hefst.
Skelfilegir pokar
Mig langaði að koma á fram-
færi skoðun minni á þessum
nýju pokum sem notaðir eru í
Krón unni. Þessir pokar eru afar
lélegir og ekki mikið sem hægt er
að setja í þá. Þá fer óttalega mikill
tími í þetta pokakerfi við kass ana.
Maður þarf stundum að bíða
og bíða eftir afgreiðslu á meðan
starfsfólkið er að berjast við þetta
pokaapparat. Sjálfur er ég mjög
ánægður með búðina sem slíka
og þetta er sú fl ottasta á landinu.
En er ekki hægt að hafa bara þessa
gömlu góðu poka sem stóðu svo
sannarlega fyrir sínu?
Gísli
Skátafélagið Mosverjar vígir nýliða
Nýir Mosverjar
Ljósadýrð, söngur og gleði
Klinkkvöld í
Varmárskóla
Hið árlega klinkkvöld í
Varmárskóla var haldið í byrjun
desember. Þetta kvöld er liður
í fjáröfl un hjá 10. bekk og allur
ágóði kvöldsins verður notaður
í þriggja daga útskriftarferð á
vordögunum. Gestir gátu borgað
sig inn á ýmiskonar uppákomur
í skólastofum skólans og þá léku
einnig hljómsveitir tónlist sína
fyrir mannskapinn.
Nemendur í
fótspor listamanna
Þann 15. desember var ný
listasýning opnuð í Listasalnum.
Sýningin ber nafnið Í fótspor
listamanna og eru öll verkin frá
nemendum 9. og 10. bekk Varmár-
skóla og Lágafellsskóla. Sýningin
er opin öllum og stendur til 15.
janúar 2007.