Morgunblaðið - 03.09.2018, Side 20

Morgunblaðið - 03.09.2018, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2018 ✝ Þuríður Eyj-ólfsdóttir fæddist á Hofi í Öræfum 6. desem- ber 1918. Hún lést í Reykjavík 23. ágúst 2018. Foreldrar henn- ar voru Eyjólfur Eyjólfsson, f. 4. september 1878, d. 14. maí 1953, og Guðlaug Odds- dóttir, f. 12. júní 1887, d. 13. nóvember 1987. Systir Þuríðar var Guðrún Eyjólfsdóttir, f. 11. maí 1923, d. 28. febrúar 2011. Þuríður var ógift og barn- laus, foreldrum sínum og systur rún (Gugga) árið 1923. Þuríður var heilsuveil frá fæðingu og var send til læknis á Breiðaból- stað í Vestur-Skaftafellssýslu þegar hún var enn á barnsaldri, í von um að hann gæti bætt heilsu hennar og það tókst að einhverju leyti. Þrek Þuríðar leyfði þó hvorki langar göngur né líkamlegt erfiði en hún var vel gefin og þráði meira nám en stóð til boða á hennar uppvaxt- arárum. Hún stundaði nám við bréfaskóla SÍS, keypti dönsk blöð og las þau og naut aðstoðar Páls Þorsteinssonar barnakenn- ara í Öræfum (síðar alþingis- manns) við sjálfsnámið. Þuríður las allt sem hún náði í og naut félagsskapar af bókunum. Þuríður fylgdist vel með þjóð- málum og hafði sínar skoðanir á þeim. Jarðarför Þuríðar fer fram frá Áskirkju í dag, 3. september 2018, klukkan 11. dýrmætur stuðn- ingur, en þær mæðgur héldu heimili saman alla tíð, þar til Þuríður og Gugga fluttu í þjónustuíbúð á Dal- braut 27, fyrir um 20 árum. Æsku- heimili Þuríðar var í Vesturhúsum á Hofi, þar sem einn- ig bjuggu Oddur faðir Guðlaugar (Laugu) og Jón bróðir hennar og síðar einnig fjölskylda hans. Fyrsta barn Laugu og Eyjólfs var andvana fædd stúlka árið 1916, en Þur- íður fæddist árið 1918 og Guð- Þuríður var heilsuveil frá fæð- ingu og dvaldi sem barn um tíma hjá Snorra lækni á Breiðabólstað (V-Sk.) í von um að hann gæti bætt heilsu hennar sem tókst að einhverju leyti. Þrek hennar leyfði ekki langar göngur eða lík- amlegt erfiði en hún var ákaflega vel gefin og þráði meira nám en stóð til boða á hennar uppvaxt- arárum. Hún stundaði fram- haldsnám í bréfaskóla SÍS, keypti dönsk blöð og las þau sér til skemmtunar og til að víkka sjóndeildarhringinn. – Æskuvin- konurnar mamma (Munda) og Hallbera spurðu Þuríði fyrir fá- einum árum hvernig hún hefði farið að því að ná tökum á dönsk- unni. Þuríður sagði það hafa ver- ið sjálfsnám en hún hefði fengið tilsögn í upphafi hjá Páli Þor- steinssyni barnakennara. Nokkrar stuttar sögur sem Þuríður þýddi komu út í ritinu Félagsvininum og bera þýðand- anum fagurt vitni, sögurnar fyndnar og málfarið fallegt. Margar ungar stúlkur úr Öræfum réðu sig í vist til að víkka sjóndeildarhringinn eða fóru til Vestmannaeyja í fisk- vinnu, en aðstæður Þuríðar leyfðu það ekki. Samgöngur voru erfiðar, ekki búið að brúa árnar og ferðast þurfti ríðandi á hest- um eða fótgangandi því fyrsti bíllinn kom ekki í Öræfin fyrr en árið 1942. Eina ævintýraferð fékk Þuríður þó að upplifa. Sum- arið 1952 tók hún þátt í margra daga hópferð kvenna úr Öræfum. Kaupfélag Skaftfellinga í Vík bauð upp á ferðina sem mikil ánægja var með eins og vænta mátti. Flogið var frá Fagurhóls- mýri að Klaustri og ekið að Þing- völlum með viðkomu og nætur- dvöl á ýmsum stöðum. Á Þingvöllum beið hópur af brott fluttum Öræfingum og þar urðu fagnaðarfundir. Einnig var farið að Laugarvatni, Geysi, Gullfossi og í Fljótshlíðina og loks flogið heim frá Skógasandi. Var það samdóma álit ferðafélaganna að hver dagurinn hefði verið öðrum betri, margar náttúruperlur skoðaðar og móttökurnar alls staðar framúrskarandi. Ferða- söguna skráða af Guðrúnu Karls má lesa í Félagsvininum. Fyrsta dráttarvélin kom í Öræfin árið 1946, fram að því var flest unnið á höndum eða með hestum. Eftir lát Eyjólfs hjálp- uðu Sigurjón, Doddi og nágrann- ar á Hofi til með útiverk. Þjóð- minjavörður fékk systrasynina Jón Odds (afa) og Jón Stefáns til að endurbyggja Hofskirkju. Kirkjan var rifin og Þuríður mundi vel eftir því þegar tóftin stóð ein eftir, búið að fjarlægja allt timburverkið. Nafnarnir héldu til í Vesturhúsum, en ekki minntist Þuríður á það einu orði að það hefði verið auka fyrirhöfn að hafa þá frændur í fæði þessar vikur, né að sjá um þvotta sem efalítið hafa fylgt með. Þuríður var svo lánsöm að bæði kirkjan og samkomuhúsið í Öræfum voru á Hofi svo hún hafði tækifæri til að taka þátt í fé- lagslífinu án þess að leggja á sig löng ferðalög, enda lét hún sig sjaldan vanta. Hún var í Ung- mennafélagi Öræfa og í Kirkju- kór Hofskirkju frá stofnun hans 1954. – Fram að því hafði ekki verið kór við kirkjuna heldur söng söfnuðurinn: Eyjólfur faðir Þuríðar hafði verið forsöngvari og meðhjálpari um langt árabil. Mikla ánægju hafði ég af því að rifja upp með móður minni lífshlaup Þuríðar og okkar góðu kynni. Sigrún Sigurgeirsdóttir. Árið 1956 var tvöfalt systkina- brúðkaup í Öræfum þegar Munda (mamma) giftist Sigur- geiri (pabba), þau tóku við búi í Neðribænum á Fagurhólsmýri og Sigurjón (bróðir mömmu) kvæntist Sigríði systur pabba og þau settust að á Malarási. Árið 1961 ákvað fjölskyldan á Mal- arási að bregða búi og flytja til Reykjavíkur og Sigurjón bauð frænkum sínum í Vesturhúsum að vera þeim innan handar ef þær vildu flytja líka. Þær ákváðu að gera það og fluttu líka til Reykjavíkur sama ár. Mamma segist hafa séð mikið eftir þess- um stóra hópi úr samfélaginu í Öræfum þegar þau fluttu suður: pabba sínum, Sigurjóni, Siggu og börnunum Ágústi og Helgu Jón- ínu, sem fluttu frá Malarási og svo Laugu, Guggu og Þuríði sem fóru úr Vesturhúsum. Flutningurinn reyndist mæðg- unum heilladrjúgur. Gugga hafði alla tíð verið heilsuveil, en komst til betri heilsu þegar hún gat sótt sér lækningar í borginni. Sigur- jón stóð við það sem hann hafði lofað og reyndist þeim tryggur frændi og hjálparhella alla tíð. Til að byrja með fengu Lauga, Gugga og Þuríður inni hjá Guð- ríði Finnbogadóttur, uns þær fengu íbúð við Mánagötu 7. Næst keyptu þær sérhæð í Stórholti 18 Þuríður Eyjólfsdóttir Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GRÍMUR M. BJÖRNSSON tannlæknir, Hrauntungu 7, Kópavogi, sem lést að Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn 17. ágúst, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju þriðjudaginn 4. september klukkan 13. Ragnheiður Þóra Grímsdóttir Björn Grímsson Lísbet Grímsdóttir V. Soffía Grímsdóttir Margrét Rósa Grímsdóttir Magnús Orri Grímsson tengdabörn, afabörn og langafabörn Ástkær stjúpfaðir okkar og móðurbróðir, INGI ÞORBJÖRNSSON frá Kirkjubæ í Vestmannaeyjum, síðast til heimilis í Safamýri 81, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 25. ágúst verður jarðsunginn frá Háteigskirkju miðvikudaginn 5. september klukkan 13. Guðmunda Kristinsdóttir Sigríður H. Kristinsdóttir Hjörleifur H. Helgason Hannes Kristinsson Þóra Kristinsdóttir Rögnvaldur Möller Ingibjörg Bragadóttir Þorsteinn Árnason Jóhannes Þór Ingvarsson Margrét Lilja Kjartansdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN PÁLSDÓTTIR frá Hjarðarbóli í Eyrarsveit, andaðist miðvikudaginn 22. ágúst á hjúkrunarheimili Hrafnistu við Boðaþing í Kópavogi. Útför hennar fer fram frá Grundarfjarðarkirkju mánudaginn 10. september klukkan 14. Pálmar Einarsson Elín Snorradóttir Sigríður Einarsdóttir Hallbjörn Þorbjörnsson Jakobína H. Einarsdóttir Guðlaugur Einarsson Sædís Einarsdóttir Magnús Jónasson Svandís Einarsdóttir Kristján J. Kristjánsson Svava Einarsdóttir Birgir Sigurðsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi, langafi, tengdafaðir og bróðir, ERLING GARÐAR JÓNASSON, fyrrv. rafveitustjóri, lést á Landspítalanum í Fossvogi síðastliðinn fimmtudag. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 6. september kl. 13.00. Jóhanna Guðnadóttir Karl Guðni Irma Jóhanna Rósa Guðrún Jónas Garðar Hneta Rós, Margrét Rán og Jóhann Garðar Þorbjörnsbörn; Ignas, Rebekka, Gríma, Monika, Svanhildur, Hildur Agla, Jóhanna Katrín og Erling Geir, Vaiva og Otti Hólm Guðrún Marsibil og Kristín Sigurrós Jónasdætur Yndislegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN SKÚLI ÞÓRISSON klæðskeri, áður Suðurbraut 20, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk föstudaginn 31. ágúst. Úför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 6. september kl. 15. Jóhanna Þórey Jónsdóttir Ragnheiður Helga Jónsdóttir Arnfinnur Bragason Berglind Jónsdóttir Rikharð Sigurðsson Ragnar Gunnar Þórhallsson Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn ✝ IngveldurStella G. Sveinsdóttir fædd- ist 27. febrúar 1933 í Grindavík. Hún lést á LSH, Foss- vogi, 9. ágúst 2018. Ingveldur var dótt- ir hjónanna Sveins Guðmundssonar, f. 19.11. 1898, d. 29.7. 1969, og Sigur- laugar Elísdóttur, f. 6.12. 1896, d. 4.3. 1934. Bræð- ur Stellu voru Guðjón, sem lést áður en hún fæddist, og Guð- mundur Óskar, sem lést 1983. Þegar Stella var aðeins rétt rúmlega ársgömul lést móðir hennar. Seinni kona Sveins var Ásta Guðrún Jónsdóttir, f. 27.1. 1917, d. 7.9. 1993. Þau eignuðust valdason, f. 15.5. 1959, m. Inga Rún Ólafsdóttir, f. 3.5. 1963. Börn þeirra eru Vignir Val og Valdís. 3) Sigurlaug Ásta Val Sigvaldadóttir, f. 13.2. 1968, m. Páll Rúnar Guðjónsson, f. 6.3. 1960. Dóttir þeirra er Steinunn Bjargey, en synir Páls frá fyrra hjónabandi eru Sigurður Rúnar, Guðjón, Egill og Páll Kristinn. Stella og Sigvaldi hófu bú- skap sinn á Framnesvegi í Reykjavík, en þegar Sigvaldi fékk kennarastöðu í Mosfells- sveit flutti fjölskyldan þangað. Stella vann á leikskólanum í Mosfellssveit í 10 ár eða til maí 1983. Í júlí sama ár hóf hún störf á Héraðsbókasafni Kjósarsýslu og vann þar í 11 ár eða þar til starfsferlinum lauk. Síðust árin bjuggu þau Sigvaldi í Sólheim- um í Reykjavík. Eftir að Sig- valdi lést síðla árs 2015 flutti Stella í Furugerði 1 og síðar á Hrafnistu í Reykjavík. Útför Stellu fór fram í kyrr- þey að ósk hennar 24. ágúst 2018. eina dóttur, Aðal- heiði Sigurlaugu. Stella gekk í Austurbæjarskól- ann og lauk þaðan gagnfræðaprófi. Nokkru eftir að skólagöngunni lauk byrjaði Stella að vinna í bókabúð Lárusar Blöndal og þar vann hún þegar hún kynntist eigin- manni sínum, Sigvalda Val Stur- laugssyni. Hinn 23. maí 1953 gengu þau í hjónaband og eign- uðust þau þrjú börn. Þau eru: 1) Sveinn Val Sigvaldason, f. 7.9. 1953, m. Úlfhildur Guðmunds- dóttir, f. 24.6. 1955. Dætur þeirra eru Anna Ýr, Stella og Karitas. 2) Steinar B. Val Sig- Það er eitt víst þegar við fæð- umst í þennan heim og það er að við munum að lokum deyja. Hún tengdamóðir mín yfirgaf þessa jarðvist rétt fyrir miðnætti fimmtudaginn 9. ágúst síðastlið- inn. Okkar Stellu fyrstu kynni, fyr- ir rúmlega 23 árum, voru afar ánægjuleg og góð þó að ég hefði reyndar kviðið svolítið fyrir að hitta hana; ég fjögurra barna faðir, nýlega fráskilinn, að taka saman við einkadótturina og yngsta barn þeirra hjóna. Það sló aldrei skugga á okkar samband og á ég henni mikið að þakka fyr- ir alla góðvildina og hlýhuginn í okkar garð og Steinunnar, dóttur okkar Sigurlaugar. Á dánarbeði hennar sá ég glitta í bros þegar hún tjáði mér að ég væri uppá- haldstengdasonur hennar, raun- ar er ég sá eini en látum það liggja á milli hluta. Það var alltaf stutt í brosið og glettnina hjá Stellu alveg fram á síðustu stundu. Stella átti við veikindi að stríða seinni hluta ævi sinnar og kom það í hlut Sigvalda, eigin- manns hennar, að bera hitann og þungann af umönnun hennar ásamt börnum þeirra þegar því varð við komið. Mörkin milli sjúkdómsgreininga hennar, þ.e.a.s. andlegra og líkamlegra, voru oft óljós og reyndi það oft á Stellu og fjölskylduna alla. Eftir að Sigvaldi dó fyrir tæpum þremur árum kom það í hlut Sig- urlaugar og Steinars, barna þeirra hjóna, að annast mömmu sína. Það tók oft á hjá þeim en samheldnin og kærleikur systk- inanna kom þá sterkt í ljós og er í raun aðdáunarverður, öfunds- verður. Viku þau varla frá móður sinni síðustu sólarhringana og voru við hlið hennar þegar hún kvaddi þennan heim. Ég tel mig mikinn gæfumann að hafa kynnst Stellu og þakka henni samfylgdina í nærri ald- arfjórðung. Hvíldu í friði, elsku tengdó. Þinn tengdasonur, Páll Guðjónsson. Liðin eru 78 ár síðan tvær sjö ára stelpur kynntust í Austur- bæjarskóla í bekk hjá Stefáni Jónssyni rithöfundi, þeim önd- vegis kennara. Vinátta stelpn- anna hélst á meðan báðar lifðu. Nú hefur Stella Sveinsdóttir horfið til betri heima. Hún giftist ung Sigvalda Val Sturlaugssyni kennara og smiði. Fyrstu árin bjuggu þau í Reykjavík, en reistu sér síðan fallegt hús í Mosfells- sveit. Það var ávallt yndislegt að heimsækja þau hjón. Tíminn líð- ur hratt – og börnin þeirra þrjú uxu úr grasi, sannkallað barna- lán. Dag einn fyrir 35 árum kvaddi dyra hjá okkur ungur, myndar- legur maður og spurði eftir eldri dóttur okkar, Ingu Rún. Þar var kominn Steinar Bjarni, yngri sonur Stellu og Valda. Nokkru seinna var hann orðinn tengda- sonur okkar. Þessi ungu hjón báru gæfu til að eignast tvö ynd- isleg börn – og ömmurnar ljóm- uðu af gleði Fjölskyldurnar hitt- ust oft til að fagna, þegar tilefni gáfust. Voru það miklar ánægju- stundir. Það er söknuður og þakklæti, sem fyllir hugann, nú þegar Stella hefur kvatt, en við munum áreiðanlega hittast aftur fyrr er varir. Innilegar samúðarkveðjur til afkomendanna. Þuríður Einarsdóttir. Ingveldur Stella G. Sveinsdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.