Morgunblaðið - 03.09.2018, Blaðsíða 23
Ritzau‘s 1977-81, framkvæmdastjóri
Sambands norrænu félaganna 1984-
88. Hann starfrækti Fréttaþjónustu
Borgþórs Kjærnested í Reykjavík
1975-1984 og aftur 1988-90. Borgþór
var ráðinn framkvæmdastjóri Nor-
ræna flutningamannasambandsins
1990-96 og var stjórnarmaður sem
fulltrúi íslensku aðildarfélaganna
1996-2002. Árin 2005-09 var hann
framkvæmdastjóri Landssambands
eldri borgara.
Borgþór hefur verið leiðsögu-
maður norrænna ferðamanna á Ís-
landi og starfað sem túlkur og þýð-
andi úr norðurlandamálum frá 1974.
Hann annaðist útvarpsþætti um Ís-
land í finnska útvarpinu, hefur ritað
fjölda greina um íslensk málefni og
flutt fyrirlestra um Ísland.
Borgþór þýddi bókina „Ísland,
land frosts og funa“, ferðabók dr. Iiv-
ari‘s Leiviskä um Ísland 1925 og
1926, sem var gefið út af Hinu ís-
lenska bókmenntafélagi 2007 og bók-
ina „Napóleon“ eftir Herman Lindq-
vist 2010 hjá sama forlagi. Árið 2017
gaf bókaútgáfan Skrudda út bókina
„Milli steins og sleggju, Saga Finn-
lands“ eftir Borgþór vegna 100 ára
afmælis fullveldis Finnlands.
Borgþór var trúnaðarmaður skrif-
stofumanna hjá Karl Fazer 1971-75.
Hann var formaður Félags leiðsögu-
manna 1998-2002 og formaður Sam-
bands norrænna leiðsögumanna IGC
2002-2004 og 2008-2012.
Borgþór er búsettur í Helsinki en
er mikið á Íslandi og leiðsegir er-
lendum ferðamönnum þar. „Svo er
ég að skipuleggja ferð til Palestínu
um næstu páska. Ég hef verið farar-
stjóri þar nokkrum sinnum.“
Fjölskylda
Borgþór kvæntist Vivan Ann-Mari
Sandelin, f. 12.7.1945, árið 1965, en
þau skildu 1973. Börn þeirra: Magn-
ús Kjærnested, f. 5.7. 1966, d. 21.5.
2015, viðskiptafræðingur, og Ann-
Marie Erna Elísabet Kjærnested, f.
12.8. 1969, skipstjóri.
Borgþór kvæntist síðari konu
sinni, Sólveigu Pétursdóttur, f. 21. 6.
1953, félagsráðgjafa, árið 1978, en
þau skildu 2003. Börn þeirra: Sólveig
Fríða Kjærnested, f. 3.5. 1979, sál-
fræðingur, gift Tryggva Ingasyni
sálfræðingi, og Pétur Friðfinnur
Kjærnested, f. 9.1. 1983, kvikmynda-
gerðarmaður, sambýliskona hans er
Bethina Elverdam Nielsen hönn-
uður.
Barnabörn: Ásdís Sólveig Kjærne-
sted Tryggvadóttir, f. 2007, Þórdís
Katla Kjærnested Tryggvadóttir, f.
2010, og Sigdís Anna Kjærnested
Tryggvadóttir, f. 2014; Gústav Þór
Elverdam Kjærnested, f. 2013, og
Ea Líf Elverdam Kjærnested, f.
2017.
Systur Borgþórs eru Ragnheiður,
f. 20.6. 1947, bókasafnsfræðingur,
bús. á Akureyri, og Erna, f. 28.7.
1950, vann hjá Strætó, bús. í Garða-
bæ.
Foreldrar Borgþórs: Svavar Frið-
finnsson Kjærnested, f. 9. 2. 1920, d.
25.12. 2011, garðyrkjumeistari, og
Hjálmfríður Ólöf Þorsteinsdóttir,
garðyrkjufræðingur og forstöðukona
á Bifröst, f. 15.1. 1916, d. 20.12. 2003.
Borgþór V.
Kjærnested
Elísabet Tómasdóttir
ráðskona,m.a. á Atlastöðum og Görðum, Sléttuhr, N-Ís.
Guðmundur Ólafsson
bóndi í Aðalvík
Hólmfríður Ragnheiður Guðmundsdóttir
húsfreyja í Neðri-Miðvík
Hjálmfríður Ólöf Þorsteinsdóttir
garðyrkjufræðingur og forstöðukona í Rvík
Þorsteinn Bjarnason
bóndi í Neðri-Miðvík í Aðalvík
Sigríður Kristjánsdóttir
húsfreyja í Neðri-Miðvík
Bjarni Þorsteinsson
bóndi í Neðri-Miðvík
Geirþrúður
jarnadóttir húsfreyja
á Hofteigi á Jökuldal
B
arni Benediktsson
frá Hofteigi
rithöfundur í Rvík
BjKolbeinnBjarnason
autuleikari og
rithöfundur
fl
Jóhann Bjarni
Kolbeinsson
fréttamaður
á RÚV
Pálína
Þorsteins-
dóttir húsfr.
á Akranesi
Bryndís
óhannsdóttir fv.
stuðningsfulltr.,
ús. í Mosfellsbæ
J
b
Ragnar
Bragason
leikstjóri
Kristinn Þorsteinsson
árnsmiður í Reykjavíkj
Kristinn Guðjón
Kristinsson
félagsráðgjafi á
Selfossi
Guðrún Sigurðardóttir
húsfr. á Sólmundarhöfða
Bjarni Gíslason
útvegsbóndi á Sólmundarhöfða á Akranesi
Guðrún Bjarnadóttir
húsfreyja á Akranesi
alldór Kjærnested brytiHGuðmundur H.Kjærnestedskipherra
Friðfinnur Árni Elíasson Kjærnested
togaraskipstjóri í Rvík
Jóhanna Jónsdóttir
húsfr. í Þverdal
Elías Friðfinnsson Kjærnested
bóndi í Þverdal í Aðalvík
Úr frændgarði Borgþórs V. Kjærnested
Svavar Friðfinnsson Kjærnested
garðyrkjumeistari í Reykjavík
Afmælisbarnið Borgþór.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2018
95 ára
Elínborg Pálsdóttir
90 ára
Aðalbjörg Baldursdóttir
Bjarni Guðnason
85 ára
Gunnar Zebitz
Gunnlaugur Guðmundur
Magnússon
Sigurbjörg H. Þorkelsdóttir
80 ára
Ágústa Guðmundsdóttir
Gréta Jónsdóttir
Ingibjörg Ásgeirsdóttir
Jón Andrés Jónsson
75 ára
Einar Jakobsson
Margrét
Guðmundsdóttir
Sigurður Finnbogason
70 ára
Ásta Björg Björnsdóttir
Björn Einarsson
Eiríkur Ágústsson
Gerður Þórðardóttir
Margrét Jónsdóttir
Ragnheiður Hulda Hauksd.
Sigurþór Mortensen
Óskarsson
Skúli Margeir Óskarsson
Þórarinn Ólafsson
60 ára
Áki Áskelsson
Hávar Sigurjónsson
Hilmar Halldórsson
Sædís Gunnsteinsdóttir
50 ára
Ari Bergþór Franzson
Arnljótur Davíðsson
Edelito Caneda Villaespin
Eilífur Friður Edgarsson
Eydís Björk Benediktsdóttir
Gestur Helgason
Hafsteinn H. Ágústsson
Hafsteinn H. Hreiðarsson
Hallgrímur Erlendsson
Hjalti Gíslason
Indriði Björnsson
Jón Kristbjörn Jónsson
Laufey Vilmundardóttir
Otilia Hechavarria Carrion
Ólafur Eiríksson
Simpio Jabiniao Conejos
Sólveig Ásgeirsdóttir
Úlfhildur Dagsdóttir
Wojciech Artur Matuchin
40 ára
Ari Karlsson
Björn Jakobsson
Guðný Benediktsdóttir
Jens Þór Sigurðarson
Ragnar Skúlason
Sigurbjörg Jónsdóttir
Svanur Már Grétarsson
Ugis Rozensteins
Þórdís Gunnarsdóttir
30 ára
Andrea Björnsdóttir
Andri Þór Magnússon
Anna Þrúður Guðbjörnsd.
Antonio Miglionico
Ari Baldur Baldursson
Arnar Ragnarsson
Azahara Bejarano Arroyo
Bergur Thomas Anderson
Ewelina Aneta Kubielas
Helena Hyldahl Björnsd.
Helen Lilja Helgadóttir
Kamil Jacek Zaranski
Karolina Rynkowska
Katrín Sveina Björnsdóttir
Kjartan Þórsson
Lubomír Murcík
Margrét Guðrún Gunnarsd.
Ólöf Helga Adolfsdóttir
Úlfar Bjarki Stefánsson
Til hamingju með daginn
40 ára Jens er frá Bol-
ungarvík en býr í Reykja-
vík. Hann er þyrluflug-
maður hjá Landhelgisg.
Maki: Katrín Árnadóttir, f.
1983, hjúkrunarfr. en er
flugfreyja hjá Icelandair.
Börn: Kristján Uni, f.
2004, og Eyþór Óli, f.
2008.
Foreldrar: Sigurður
Viggó Bernódusson, f.
1944, d. 1993, rafvirki, og
Halldóra Haflína Krist-
jánsdóttir, f. 1946, kenn-
ari.
Jens Þór
Sigurðarson
40 ára Ragnar er bóndi á
Ytra-Álandi í Þistilfirði.
Hann er íþróttakennari að
mennt og er einnig með
BS í búsvísindum.
Maki: Úlfhildur Ída Helga-
dóttir, f. 1985, vinnur í
Landsb. á Þórshöfn.
Börn: Elva Sóldís, f.
2005, Dagrún Sunna, f.
2006, Þórey, f. 2015, og
Lára, f. 2017.
Foreldrar: Skúli Ragnars-
son, f. 1945, og Bjarnveig
Skaftfeld, f. 1945, bændur
á Ytra-Álandi.
Ragnar
Skúlason
30 ára Gerður er Reyk-
víkingur og listmálari, fa-
cebook.com/getzen138,
myndskreytir barnabæk-
ur og vinnur í frístunda-
miðstöð.
Maki: Ívar Kristján Ívars-
son, f. 1980, kvikmynda-
tökumaður.
Sonur: Tristan Stígur, f.
2015.
Foreldrar: Tómas Örn
Stefánsson, f. 1958, flug-
virki, og Kristín Lára
Ragnarsdóttir, f. 1961,
bókasafnsfr.
Gerður Erla
Tómasdóttir
Meira til skiptanna
Matthias Kokorsch hefur varið dokt-
orsritgerð sína í landfræði við Háskóla
Íslands. Heiti ritgerðarinnar Seigla ís-
lenskra sjávarbyggða (e.Mapping Resili-
ence – Coastal Communities in Iceland).
Leiðbeinandi var dr. Karl Benediktsson,
prófessor við líf- og umhverfis-
vísindadeild HÍ.
Spurningum um áhrif íslenska fisk-
veiðistjórnunarkerfisins á svæði og
byggðir hefur aldrei verið svarað á afger-
andi hátt. Tiltæk gögn hafa ekki verið
nýtt að fullu til skilnings á þeim flóknu
ferlum sem hafa verið að verki í sjávar-
byggðunum. Hugtakið „seigla“ getur
varpað ljósi á spurningar um þessi efni. Í
verkefninu var þess freistað að leggja
mat á seiglu íslenskra sjávarbyggða.
Kenningar um breytingar á formgerð at-
vinnulífs – frá félags- og landfræðilegum
sjónarhóli – eru reifaðar og settar í sam-
hengi við fræðilega umfjöllun um grund-
vallargildi á borð við samstöðu og rétt-
læti. Gerð var megindleg greining á
landsvísu, þar sem margvísleg fyrirliggj-
andi gögn um sjávarútveginn og stað-
bundna þróun efnahagslífs og sam-
félags voru nýtt. Til viðbótar hinni
tölfræðilegu greiningu voru gerðar til-
viksathuganir þar sem eigindlegum
gögnum var safnað. Tvö byggðarlög sem
hafa þróast með ólíkum hætti voru rann-
sökuð til að fá
dýpri skilning á
þeim atriðum
sem hafa stuðlað
að meiri eða
minni seiglu.
Verulegur munur
á seiglu kom í ljós
í þessum tveimur
sjávarbyggðum.
Greiningin leiðir í ljós tvenns konar
takmarkanir seiglu-hugtaksins, eins og
því hefur verið beitt í félagsvísindum. Oft
hefur hugtakið leitt til þröngrar áherslu
á byggðaþróun sem sprottin sé af inn-
rænum forsendum, án þess að veitt sé
athygli þeim ramma sem félags- og hag-
fræðileg formgerð setur. Fjallað er
fræðilega um þessa veikleika í
ritgerðinni.
Doktorsverkefni þetta tekur á efni
sem er mikilvægt í íslensku samhengi,
en leggur einnig til fræðilegrar umræðu
á afar mikilvægum sviðum, þar sem
fengist er við seiglu, svæðisbundna þró-
un og fiskveiðistjórnun. Lagt er til að hin
stífa tvíhyggja sem gerir ráð fyrir ofan-
stýrðri nálgun annars vegar eða neðan-
stýrðri hins vegar verði aflögð. Í staðinn
verði unnið að mótun sveigjanlegri nálg-
unar, þar sem stjórnvöld leiða en heima-
fólk er einnig virkir gerendur.
Matthias Kokorsch
Matthias Kokorsch er fæddur 17. júní 1984 í Mülheim an der Ruhr í Þýskalandi.
Hann nam landfræði og félagsvísindi ásamt kennslufræði við Universität Duis-
burg-Essen og brautskráðist þaðan árið 2013. Nú starfar hann við rannsóknir við
Johann Heinrich von Thünen-Institut í Braunschweig í Þýskalandi.
Doktor