Morgunblaðið - 03.09.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 03.09.2018, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú þarft að draga þig í hlé í smá- stund í dag. Misstu ekki kjarkinn þótt ein- hver afturkippur komi í það mál sem þú vinnur að þessa dagana. 20. apríl - 20. maí  Naut Nú gefst tækifæri til þess að sýna umhyggju fyrir öðrum og umhverfinu. Lækn- aðu gömul sár með því að vera fyrst/ur til þess að fyrirgefa. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þótt þú berir ábyrgð þýðir það ekki að þú þurfir að gera allt sjálf/ur og megir ekki þiggja aðstoð. Með því að gera það þá gætir þú misst af góðum hlutum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert skýr og full/ur af eldmóði, og ættir að umgangast fólk sem kann að meta þá kosti. Klappaðu þér á bakið fyrir að reyna svona á þig og slakaðu svo á í kvöld. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er ekki nóg að hafa svörin á reiðum höndum ef maður getur ekki unnið rétt úr þeim. Þótt aðrir séu ósammála þér er ástæðulaust að fara í fýlu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Varastu að ganga of langt í erfiðu máli svo ekki komi til eftirmála. Skoðaðu hug þinn vandlega og gerðu svo það sem hann segir þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nærvera öfundsjúkrar manneskju þreytir þig, enda getur þú ekki verið þú sjálf/ur í kringum hana. Skoðaðu hug þinn vandlega og gerðu svo það sem hann segir þér. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú gerir þér ekki grein fyrir hversu mikið þú vilt trúa einhverjum fyrir til- finningum þínum. Íhugaðu hvað hjarta þitt þráir og gríptu það. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Mundu að þú hefur sjálf/ur mik- ið um það að segja hvernig mynd aðrir fá af þér. Taktu frumkvæðið í þínar hendur og þá ertu ofan á þegar til kastanna kemur. 22. des. - 19. janúar Steingeit Traust þitt á tiltekinni manneskju endurnýjast og þú uppgötvar margt í fari hennar sem hægt er að líta upp til, meta og elska. Einhver tekur eftir breytingu í þér. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Reynstu vini þínum vel, þegar hann leitar til þín með sín trúnaðarmál. Bíddu með að segja skoðun þína á málinu þar til þú hefur hugleitt allar hliðar þess. 19. feb. - 20. mars Fiskar Finnist þér þú verða að skipta um skoðun á einhverju máli, skaltu ekki hika. Hertu upp hugann því breytingarnar munu að öllum líkindum verða til bóta. Hér tekur Helgi R. Einarsson sérþað fyrir hendur að yrkja um „Staðreyndir“: Tannkremið er í túpunni og súpukjötið í súpunni, en yfirleitt finnst ekki neitt inni í höfuðkúpunni. „Sjálfsbjargarviðleitni“ er ekki síð- ur áleitið yrkisefni: María litla frá Mön mönnum var harla vön. Er baslið á knúði í blindni hún trúði á boðorðin 10,– á skjön. Þær eru margar Maríurnar. Krist- ján Karlsson þekkti aðra (og er góð limra aldrei of oft kveðin): Sagði María litla frá Læk „ég er ljóðelsk og hefi þann kæk að svipta mig fötum og þar fram eftir götum. En á fáguðum prósa er ég tæk.“ Páll Imsland heilsar leirliði á kóln- andi síðsumri undir langtíma regnspá fræðinga: Það er heilmikill bullandi hagvöxtur og hreint alveg ferlegur grasvöxtur, en bágara’ um annað eins og berlega’ er sannað: Á kolli mér hlálegur hárvöxtur. Gunnar J. Straumland gefur „Dróttkveðið heilræði“ á Boðnarmiði: Gamnið þykir grámað gys er mönnum lýsir alheims vefur velur værðarspjöll að göllum. Mál að linni mæli marðartungna harðra veitum leið að viti vísum orðum lýsum. Gunnar færir síðan sömu skilaboð í einfaldri hringhendu: Tungukorða temja skal, taum og skorður finna. Gaspur forðast, göfga tal, gæta orða sinna. Magnúsi Halldórssyni segist svo frá: „Árla morguns í góðu næði ákvað ég að yrkja eina ódauðlega vísu og hætta svo. Hvorugt varð raunin“: Sit ég gneipur, sinnið grátt, sýður’á keipum andans, undan hleypur efnið hrátt allt í greipar fjandans! Kveðið var við utanverðan Eyjafjörð: Svo út glennir seglin vönd svalur næturandi, að liðugt rennur áraönd út með henni Látraströnd. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af sjálfsbjargarviðleitni og hárvexti „NÚ ÞEGAR JÓLAVERTÍÐIN ER AÐ SKELLA Á OKKUR AF FULLUM ÞUNGA SKULUM VIÐ BIÐJA FYRIR ÞEIM SEM ERU AÐ LEITA SÉR AÐ BÍLASTÆÐI.“ „SEGÐU SÖNDRU AÐ ÁSTARPUNGURINN SÉ MÆTTUR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að leyfa henni að fara með þig eitthvað annað. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG MUN FYLGJAST MEÐ ÞÉR HVERJA VÖKUSTUND! HEY, GRETTIR, HVAÐ SEGIRÐU UM AÐ VIÐ FÖRUM Í MEGRUN SAMAN? OG ÉG MUN BORÐA MEÐAN ÞÚ SEFUR! Ó JÁ! ÉG SKAL PASSA UPP Á AÐ ÞÚ BORÐIR BARA ÞAÐ SEM ÞÚ ÁTT AÐ GERA! AUÐVITAÐ! ÞÚ ÆTTIR AÐ LÆRA AÐ LESA! EFTIR ÞVÍ SEM ÞÚ VERÐUR ELDRI FÆRIR LESTUR ÞÉR MEIRA YNDI! ÞAÐ ER RÉTT… ÉG MYNDI VERÐA MJÖG GLAÐUR VIÐ AÐ LESA MINNINGARGREINAR UM ÓVINI MÍNA Einn af mörgum áhugaverðum við-burðum sem efnt var til í sumar var tónleikar rokkaranna í Guns N’ Roses á Laugardalsvelli undir lok júlímánaðar. Á myndum sást að margir sem mættu voru á aldrinum milli fertugs og fimmtugs þó að krakkar kynslóðinni yngri, fæddir um aldamót, hafi auðvitað verið stærsti hópurinn. Þetta var merki- legt dæmi um hvernig kynslóðir og menning breytast. Ef við færum okkur í huganum kynslóð framar og lítum til fólks sem er fætt á árunum 1940-50 er það hópurinn sem fór á rokksýningarnar á Broadway, en þær voru toppurinn í skemmtanalífi þjóðarinnar frá um 1985 og fram yfir 1990. Fínar skemmtanir með góðum tónlistarmönnum og gestir fengu sér vodka í kók. x x x Á engan er hallað þótt Víkverjifullyrði að meðal þessa fólks sem nú er að nálgast sjötugt hefði mjög fjarlægt fyrir um þrjátíu árum að fara á rokktónleika í Laugar- dalnum með krökkunum. Þeim hefði raunar þótt pínulítið púkalegt að láta sjá sig með mömmu og pabba við þessar aðstæður. Núna finnst öll- um slíkt vera alveg ljómandi fínt, enda er alveg frábært þegar fjöl- skyldur eru sterkar og samheldnar og kynslóðabil ekki til. Munum líka að áherslur í forvarnamálum á und- anförnum árum hafa meðal annars verið hvatning til fjölskyldna um fylgjast að og njóta samverunnar og það liggur eiginlega í augum uppi að slík tryggðafesti gerir lífið betra. x x x Það er svo sérstakur kapítulihvernig sumarleyfismenning Ís- lendinga hefur breyst á undan- förnum árum. Nú tekur fólk frí gjarnan í nokkrum bútum í stað þess að vera utan vinnu vikum saman. Notar síðan dagana til þess að enda- sendast landshorna á milli með krakkana á fótboltamótin sem eru víða um landið. Á veturna er æft og keppt í ýmsum öðrum greinum sem líka kalla á að foreldrar séu á hliðar- línunni. Allt er þetta hið besta mál; mamma, pabbi, börnin, amma og afi eru saman sem er gaman og öll dýr- in í skóginum vinir. vikverji@mbl.is Víkverji Nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur (Fyrra Korintubréf 13.13) Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.