Morgunblaðið - 03.09.2018, Side 27

Morgunblaðið - 03.09.2018, Side 27
»Plötubúðin Lucky Records við Rauðarár- stíg í Reykjavík bauð upp á tónleika í fyrra- dag og var aðgangur ókeypis. Kom þar fram hljómsveitin Bagdad Brothers og í kjölfarið Teitur Magnússon & Æðisgengið og léku lög af nýútkominni plötu Teits, Orna, sem hlaut lofsamlegan dóm hér í Morgunblaðinu í liðinni viku. Gestum var boðið upp á rjúkandi kaffi með þessum ljúfu tónum og var ekki annað að sjá en að þeir kynnu vel að meta uppákomuna. Bagdad Brothers og Teitur Magnússon & Æðisgengið komu fram í Lucky Records á laugardag Fagmenn Teitur Magn- ússon og Æðisgengið stóðu sig með mikilli prýði á tónleikunum. Hljómsveit Meðlimir Bagdad Brothers voru afar einbeittir við tónlistar- flutninginn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Allskonar Fjölbreytni var mikil meðal tónleikagestanna. Gaman Sumir skemmtu sér greinilega mjög vel. vita þá kveða lög á um að allir inn- lendir útgefendur skili eintaki til Landsbókasafns hvort sem um er að ræða dagblað, tímarit, bók, geisla- disk eða kvikmynd. „Með breyttum skilalögum var sett in klásúla sem skyldaði Landsbókasafnið til að safna saman því sem er gefið út á „almennu tölvuneti“. Nýju lögunum fylgdi viðbótarfjármagn og árið 2004 var Heritrix tilbúinn til notkunar svo að hægt var að hefja öflun og varð- veislu efnis fyrir alvöru. Fór fyrsta heildarsöfnunin fram í lok árs 2004 og alla tíð síðan höfum við gert þrjár stórar heildarsafnanir af íslenskum vefsíðum ár hvert,“ segir Kristinn. „Vefir sem metnir eru sérstaklega mikilvægir, t.d. fréttavefir og vefsíð- ur sem fjalla um dægurmálin, eru af- ritaðir oftar, enda kvikari vefsíður og jafnvel uppfærðar mörgum sinn- um á dag. Erum við bæði með viku- legar safnanir, daglegar safnanir og jafnvel enn tíðari ef umræddar vef- síður gefa út RSS-fréttastrauma sem við getum fylgst með jafn- óðum.“ Tíu terabæt á ári Að halda afrit af aragrúa vefsíðna er ekki einfalt mál enda gagnamagn- ið gífurlegt og bætast um 10 terabæt við Íslenska vefsafnið árlega. Er af- ritunarbúnaðurinn þá þegar búinn að reyna að lágmarka hve mikið af gögnum er afritað og segir Kristinn að Heritrix geti t.d. greint þegar sama myndin birtist með tveimur eða fleiri ólíkum greinum og sparað minni með því að geyma aðeins eitt afrit af myndinni. Gögnin þarf líka að geyma með öruggum hætti: „Við varðveitum safnið á gagnastæðum í kjallara Landsbókasafnsins, og í gagnastæðum utanhúss, en kerfið er þannig hannað að það á að geta þolað hvers kyns bilanir án þess að gögn glatist. Innan skamms munum við líka geyma afrit af safninu í tölvu- skýinu hjá þjónustuaðila sem spegl- ar safnið í heild sinni og vistar þann- ig að geti þolað bilanir.“ Auk tæknilegra áskorana þarf líka að leysa úr því hvaða efni á að geyma, og finna vefsíður sem hafa varðveislugildi. Kristinn segir Ís- lenska vefsafnið taka afrit af öllum síðum á íslenska þjóðarléninu, .is, en starfsmenn bókasafnsins hafa líka augun opin fyrir íslenskum síðum sem skráðar eru á erlend lén, s.s. með .com endingu eða hjá Word- press. „Við erum með rúmlega ann- að þúsund slóðir af íslensku efni á er- lendum lénum sem við höfum með í heildarsöfnunum okkar,“ upplýsir Kristinn og bætir við að gott sé ef al- menningur getur hjálpað verkefninu með ábendingum um vefsíður sem ástæða er til að varðveita. Umræðan á samfélags- miðlunum gæti glatast Stærsti vandinn sem Íslenska vef- safnið glímir við snýr að samfélags- miðlunum og segir Kristinn áhyggjuefni hve erfitt er að varð- veita umræðuna sem þar fer fram. „Ástæðan er sú að fyrirtæki á borð við Google, Facebook og Twitter vilja hreinlega ekki að þriðji aðili taki frá þeim efni og þau reyna með virkum hætti að koma í veg fyrir að hugbúnaður á borð við Heritrix geti afritað færslur og samræður á sam- félagsmiðlum, eða tekið afrit af myndskeiðum á vefsíðum eins og YouTube.“ Eins og lesendur vita eflaust flest- ir þá fer stór hluti íslenskrar þjóð- málaumræðu núna fram á sam- félagsmiðlunum og segir Kristinn leiðinlegt að ekki sé hægt að tryggja að takist að varðveita heimild um líf- leg og litrík Skoðanaskipti lands- manna á stöðum á borð við Face- book. „Þetta er umræða sem áður fyrr hefði a.m.k. að hluta til farið fram á síðum dagblaðanna, og sam- félagsmiðlarnir varðveita mikil- vægan hluta af samtímasögu okkar,“ útskýrir hann og bætir við að helst takist að afrita glefsur úr samfélags- miðlaumræðunni þegar hún ratar í fréttir hefðbundinna netmiðla. Það fer ekki milli mála hve miklu það skiptir að varðveita heimildir á internetinu. Segir Kristinn að fyrir fræðimenn framtíðarinnar verði jafn mikilvægt að geta skoðað fréttir og umræðu af internetinu eins og það er í dag að geta flett í gömlum dag- blöðum og tímaritum. „Að eiga afrit af íslenskum vefsíðum hefur ekki bara gildi fyrir þá sem rannsaka sög- una heldur geymir netið alls konar verðmætan fróðleik sem ekki má glatast og kemur kannski hvergi annars staðar fram. Er líka oft vísað í vefslóðir í dómum, fræðigreinum og hvers kyns umfjöllun og ef það efni sem þessar slóðir vísa í hverfur þá missa dómarnir og greinarnar gildi sitt að vissu marki.“ » Þetta er umræðasem áður fyrr hefði a.m.k. að hluta til farið fram á síðum dagblað- anna, og samfélagsmiðl- arnir varðveita mikil- vægan hluta af samtímasögu okkar. Morgunblaðið/Ernir Horfið? Það gæti farið svo að ekki takist að varðveita karpið og rifrildin á Facebook. Þar fer stór hluti þjóðmálaumræðu Íslendinga fram í dag. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2018 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.