Morgunblaðið - 03.09.2018, Side 29

Morgunblaðið - 03.09.2018, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2018 » Tvær sýningarvoru opnaðar í fyrradag í galleríinu Kling & Bang í Mars- hall-húsinu, annars vegar sýning Auðar Ómarsdóttur, Stöng- in-inn, og hins vegar sýning Páls Hauks Björnssonar, Dauði hlutarins. Á sýningu sinni steypir Páll Haukur saman naum- hyggjulegum skúlp- túrum við maxímal- íska umhverfishönnun og í verkum Auðar má sjá vísanir í íþrótta- menningu, tákn úr listasögunni og popp- tónlist í bland við per- sónulegar upplifanir. Auður Ómarsdóttir og Páll Haukur Björnsson opnuðu sýningar í Kling & Bang Morgunblaðið/Árni Sæberg Áhugasamir Sýningargestir voru mjög áhugasamir og veltu vöngum yfir því sem þeir skoðuðu. Listamennirnir Auður Ómarsdóttir og Páll Haukur Björnsson voru heldur bet- ur sátt með daginn og tóku vel á móti gestum sem mættu á sýningarnar. Hress og kát Þau Una Björg Magnúsdóttir, Helena Aðal- steinsdóttir og Bergur Tómas voru sátt með það sem fyrir augu bar á sýningunum. Skoða Fólk á öllum aldri mætti í Kling & Bang til að sjá hvað listafólkið hefði fram að færa. Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands stendur fyrir fyrirlestri Árna Heimis Ingólfssonar, Klassísk tón- list 101, í kvöld kl. 20 í Kaldalóni í Hörpu. Þar mun Árni Heimir stikla á stóru um sögu klassískrar tónlistar, sinfóníuformið og ólíkar leiðir til þess að njóta klassískrar tónlistar, eins og það er orðað í til- kynningu. Þar segir að kynningin sé sérstaklega ætluð þeim sem hafi lítil kynni haft af klassískri tónlist en hafi áhuga á að kynnast þeim töfrum sem hún búi yfir. Árni Heimir lauk doktorsprófi í tónlistarfræði frá Harvard-háskóla árið 2003 og skrifaði árið 2016 bók- ina Saga tónlistarinnar, sem er fyrsta og eina yfirlitsritið um tón- listarsögu eftir íslenskan höfund. Hann gegnir nú starfi listræns ráðgjafa Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands. Sérstök áhersla verður lögð á að kynna hápunkta vetrarins í dag- skrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands og að erindinu loknu verður Árni Heimir til ráðgjafar um val á tón- leikum fyrir Regnbogaáskrift. Aðgangur er ókeypis. Fróður Árni Heimir Ingólfsson er fróðleiksbrunnur þegar kemur að klass- ískri tónlist og tónlistarsögu, enda doktor í tónlistarfræði frá Harvard. Stiklar á stóru um sögu klassískrar tónlistar mánudaginn 3. september, kl. 18 Listmunauppboð í Gallerí Fold Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Listmunauppboð nr. 111 Forsýning á verkunum mánudag, kl. 10–17 Kristján Davíðsson ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.