Morgunblaðið - 03.09.2018, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 246. DAGUR ÁRSINS 2018
Hljómsveitin Grúska Babúska gaf
út hljómplötuna Tor síðastliðinn
laugardag. Platan er að mestu samin
í Glastonbury í Englandi og er inn-
blásin af bænum, sem er þekktur
sem eins konar mekka seiðmanna og
gyðja. Á miðvikudag klukkan níu
verður hægt að hlýða á Grúsku
Babúsku á skemmtistaðnum Húrra.
Grúska Babúska
kemur fram á Húrra
Íslandsfrum-
sýning heimildar-
myndarinnar
Dominion eftir
Chris Delforce
verður í Bíó Para-
dís í kvöld klukk-
an átta. Myndin
fjallar um slæma
meðferð manns-
ins á dýrum.
Samtök grænmetisæta á Íslandi og
Vegan-samtökin standa að sýningu
myndarinnar en aðgangur er ókeypis.
Heimildarmynd um
slæma meðferð dýra
Fáir, fátækir, smáir, nýtt íslenskt
leikverk, verður leiklesið í Hannesar-
holti í kvöld klukkan átta. Vonar-
strætisleikhúsið stendur að uppá-
komunni, en forsprakkar
þess, Vigdís Finn-
bogadóttir og
Sveinn Einars-
son, segja að
höfundur óski
nafnleyndar.
Árni Kristjánsson
leikstýrir.
Höfundur nýs verks
óskar nafnleyndar
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Nýr hlaðvarpsþáttur Snorra
Björnssonar ljósmyndara, The
Snorri Björns Podcast Show, hefur
vakið mikla eftirtekt í sumar, en um
30 þúsund manns hafa hlustað eða
horft á fyrsta þáttinn sem var gef-
inn út 15. maí sl.
Viðtalsform er á þáttunum og eru
þeir flestir einnar til tveggja
klukkustunda langir. Eiga viðmæl-
endur hans það sameiginlegt að
vera afreksfólk, hver á sínu sviði, en
hingað til hefur Snorri m.a. rætt við
bardagakappann Gunnar Nelson,
Kára Stein Karlsson, maraþon-
hlaupara og ólympíufara, crossfit-
hetjurnar Söru Sigmundsdóttur og
Björgvin Karl Guðmundsson og
Sindra Jensson, eiganda fataversl-
unarinnar Húrra Reykjavík.
Hefur komið víða við
Aðspurður segir Snorri að inn-
blásturinn að þættinum tengist
starfi hans að vissu leyti, en hann
megi þó einnig rekja lengra aftur.
„Ég held að það sé hægt að rekja
þetta til þess að ég hef alltaf verið
forvitinn og oft lent í löngum sam-
tölum við allskonar fólk sem ég hef
hitt. Mér hefur alltaf fundist mis-
munandi hlutir áhugaverðir. Þetta
finnst mér endurspeglast í ljós-
mynduninni þar sem ég hef myndað
svo margt fólk. Þegar ég hafði gert
það í nokkur ár áttaði ég mig á því
að ljósmyndunin var leið til að segja
sögur af hverju sem er, oftar en
ekki einstaklingum,“ segir hann.
„Ég hugsaði með mér að einn dag-
inn þyrfti ég að láta af því verða að
búa til podcast. Það er of margt fólk
sem mig langar að spjalla við til að
gera þetta ekki,“ segir Snorri sem
starfaði lengi vel með Baldri Krist-
jánssyni ljósmyndara áður en hann
fetaði eigin braut.
Á síðustu árum hefur hann m.a.
myndað íslenska karlalandsliðið fyr-
ir herferð CocaCola í aðdraganda
Evrópumótsins í knattspyrnu og
Eið Smára Guðjohnsen í Barcelona
fyrir herferð Skyr.is. Einnig hefur
hann lengi myndað fyrir Húrra
Reykjavík og vann svo nýlega fyrir
stóran styrktaraðila Söru Sig-
mundsdóttur í Bandaríkjunum.
Aðspurður segir hann að einfalt
hafi verið að hrinda hugmyndinni af
stað. „Áskorunin var bara að gefa
sér tíma til að gera þetta. Þetta er
eins og að fá sig til að mæta í rækt-
ina, það er alltaf einhver veggur
sem þarf að brjóta. Síðan var ég
farinn að fá smávinnuleiða í ljós-
mynduninni og þá skellti ég þessu
bara í gang og hringdi í fyrsta gest-
inn,“ segir hann.
Eftirspurnin kom á óvart
Viðbrögðin létu ekki á sér standa
og er þáttur Snorra nú meðal þeirra
vinsælustu á Íslandi. „Eftirspurnin
kom mér ótrúlega á óvart. Ég man
eftir því þegar ég var að setja upp
stúdíóið. Þá talaði ég um að ég yrði
sáttur við að 500 manns hlustuðu á
þáttinn. Fyrsti þátturinn er kominn
upp í 30 þúsund núna sem er tæp-
lega 10% Íslendinga. Það er aðeins
stærri markhópur en ég gerði ráð
fyrir,“ segir hann og hlær.
Margir viðmælendur Snorra
hingað til eru afreksfólk í íþróttum.
Hann segir að það sé þó ekki þema
þáttanna. Snorri segir að það hafi í
raun gerst óvart. „Ég er enginn
íþróttamaður og hef aldrei verið.
Það er bara eitthvað sem heillar
mig við fólk sem gerir eitthvað erf-
itt og tekst það. Í rauninni er þemað
bara áhugavert fólk. Þau tíu nöfn
sem ég er búinn að krota niður á
blað núna eru öll á fólki sem starfar
við eitthvað áhugavert, hefur gert
eitthvað áhugavert eða hefur
áhugaverða sögu að segja,“ segir
hann.
Tvær leiðir til að fylgjast með
Snorri tekur þætti sína einnig
upp á myndbönd og birtir á You-
Tube. Hann segir að þessi leið bjóði
upp á annan möguleika fyrir hlust-
endur til að taka inn frásagnir við-
mælendanna.
„Ég reyni að gera þetta eftir því
hvernig ég myndi vilja neyta svona
vöru. Stundum hlustar maður á
podcast með hálfum hug, t.d. þegar
maður er að keyra, elda o.s.frv.
Þegar maður hlustar á eitthvað sem
maður vill virkilega heyra er frá-
bært að geta séð aðra grundvallar-
þætti í samræðum, líkamstjáningu,
hvernig einstaklingurinn lítur út
o.s.frv.“ segir Snorri og bætir því
við að hann hafi almennt mikinn
áhuga á myndrænni framsetningu.
„Ég á líka endalaust af myndavélum
þannig að það var ekkert stórmál
fyrir mig að bæta við myndbandi.
Mér fannst þetta liggja beinast við.“
„Ég hef alltaf verið forvitinn“
Snorri Björns
slær í gegn með
hlaðvarpsþætti
Ljósmynd/Snorri Björnsson
Hlaðvarp Yfir 30 þúsund manns hafa hlustað á fyrsta þátt Snorra, en við-
mælendur hans eiga það sameiginlegt að vera afreksfólk af ýmsu tagi.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 641 KR. ÁSKRIFT 6.960 KR. HELGARÁSKRIFT 4.346 KR. PDF Á MBL.IS 6.173 KR. I-PAD ÁSKRIFT 6.173 KR.
1. Ösku Stefáns Karls dreift í hafið
2. Erótíkin reyndist dýr
3. Fjölskylda myrt í Gautaborg
4. Fann 28 ára íslenskt flöskuskeyti
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á þriðjudag Suðlæg átt 8-13 m/s og rigning eða skúrir, en lægir
suðvestantil um kvöldið. Hiti 8-13 stig, úrkomulítið norðanlands.
Á miðvikudag Hæg norðlæg átt og birtir til sunnanlands, en skýj-
að og lítilsháttar rigning á Norður- og Norðausturlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 3-8 m/s, skýjað með köflum og
stöku skúrir vestantil, bjartviðri á norðaustan- og austanlands.
VEÐUR
„Við vorum að spila á móti
einu besta liði í heimi og
gæðaleikmönnum. Þær voru
betri en við,“ sagði mið-
vörðurinn reyndi, Sif Atla-
dóttir, eftir leikinn gegn
Þýskalandi á laugardaginn.
Þjóðverjar unnu 2:0 og
vinna riðilinn takist þeim að
leggja Færeyjar að velli í
síðasta leik sínum. Ísland
nær öðru sæti riðilsins með
sigri eða jafntefli gegn
Tékklandi á morgun. »2
Nú voru þær
þýsku betri
Garðbæingar minnkuðu forskot Ís-
landsmeistara Vals niður í aðeins eitt
stig í toppbaráttu Pepsi-deildar karla
en fimm leikir fóru fram í gær. Stjarn-
an hafði betur 3:1 gegn Fjölni í Graf-
arvogi en Valur
gerði dramatískt
3:3 jafntefli gegn
KA á Akureyri þar
sem landsliðs-
maðurinn Birkir
Már Sævarsson
kom til bjargar.
»4-5
Forskot Vals á toppnum
komið niður í eitt stig
Handboltavertíðin er hafin á Íslandi
þótt september sé rétt genginn í
garð. Selfoss og FH léku bæði Evr-
ópuleiki á fyrsta degi mánaðarins og
gekk vel. Á Selfossi fór fram Evrópu-
leikur í fyrsta skipti í nærri aldar-
fjórðung þegar Selfyssingar skelltu
Dragunas frá Litháen 34:28 í 1. um-
ferð EHF-bikarsins. FH-ingar fóru á
hinn bóginn til Króatíu og unnu. »6
Vertíðin hófst á sigrum
í Evrópuleikjum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á