Morgunblaðið - 13.09.2018, Side 1
SKARTGRIPIRNIR Í 40VERSLUNUMMÆLIR BOLTAFÆRNI
Coral one ryksuguróbotinn mun létta lífið við heimilisstörfin 6
Un
Íslenska sprotafyrirtækið Soccer
Genius er tekið til við að þefa uppi
fótboltasnillinga framtíðarinnar.
VIÐSKIPTA
Það hefur reynst mikil áskorun að byggja upp fyrir-
tækið í kringum Aurum-skartgripina sem nú eru
seldir í mörgum verslunum í sjö löndum. 611
nið í samvinnu við
FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Vill stækka verulega
„Ég vildi að HB Grandi yrði í 12%
kvótaþakinu að minnsta kosti. En
það er fleira sem þarf að gerast. Við
munum án efa leita samstarfs við
sjávarútvegsfyrirtæki í nágranna-
löndunum og víðar. Og þá viljum við
líka fjárfesta í sölu- og markaðs-
fyrirtæki erlendis. Félagið er að
byrja vinnu við nýja stefnumótun í
þessum anda.“ Þannig lýsir Guð-
mundur Kristjánsson, forstjóri og
stærsti eigandi HB Granda, at-
burðarásinni sem leiddi til þess að
stærstu lífeyrissjóðir landsins
ákváðu að ganga ekki að yfirtöku-
tilboði hans á fyrirtækinu fyrr á
þessu ári.
Guðmundur segir að HB Grandi
sé vel í stakk búinn til að ráðast í
frekari fjárfestingar. Það sé m.a.
kostur þess að hafa félagið skráð á
markað að aðgengi að lánsfé á góð-
um kjörum sé auðsótt.
Hlutlaust mat á verðmætinu
Í ítarlegu viðtali á miðopnu Við-
skiptaMoggans í dag ræðir Guð-
mundur um kaupin á HB Granda,
forstjóraskiptin og þá framtíðarsýn
sem hann hefur fyrir hið sögufræga
útgerðarfélag. Hann gefur ekkert
fyrir gagnrýni á nýtilkynnt kaup HB
Granda á öllu hlutafé Ögurvíkur en
eigandi fyrirtækisins er Brim sem
Guðmundur er eigandi að.
„Við erum búin að fá nokkur hlut-
laus möt á verðgildi Ögurvíkur. HB
Grandi getur ekki verið að kaupa
eignir af stærsta eiganda fyrirtæk-
isins á einhverju yfirverði. Hvort
seljandinn er að hagnast eða tapa á
viðskiptunum skiptir ekki máli í
þessu sambandi. Það sem skiptir
máli er að hluthafarnir séu sáttir.“
Stjórn félagsins mun taka kaupin til
umfjöllunar á fundi sem boðaður
hefur verið í dag en Guðmundur
ítrekar að þá eigi hluthafafundur
einnig eftir að leggja blessun sína yf-
ir viðskiptin og þá verði ákvörðunin í
kjölfarið borin undir Samkeppnis-
eftirlitið.
Vill auknar heimildir
Gangi kaupin á Ögurvík eftir
verður aflamark HB Granda 11,19%
en lögum samkvæmt má það ekki
fara yfir 12%. Guðmundur segir að
félagið þurfi að geta náð meiri hag-
ræðingu út úr rekstrinum en það
þak setur félaginu.
„Félagið er skráð á markað, í
dreifðri eignaraðild og allir geta
keypt sig inn í það eða selt. Stjórn-
völd verða að ákveða hvar markið
liggur en ég sæi fyrir mér að skráð
félag eins og HB Grandi gæti haldið
á 20% aflaheimildanna í
landinu.“
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
HB Grandi mun stækka
með fjárfestingum heima
og erlendis á komandi ár-
um. Forstjórinn segir það
nauðsynlegt, ætli fyrirtækið
að standa styrkum fótum í
harðri samkeppni á alþjóð-
legum markaði.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Guðmundur segir gamlan draum hafa ræst þegar hann keypti stóran hlut í
HB Granda. Hann tók við forstjórastólnum í fyrirtækinu nú í lok júní.
12
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
1.400
13.3.‘18
13.3.‘18
12.8.‘18
12.9.‘18
1.764,86
1.617,02
135
130
125
120
115
122,75
131,75
Þótt markaðurinn voni enn að
leysa megi ágreining milli
Kína og Bandaríkjanna bendir
flest til að enn
muni syrta í álinn.
Kalt milli Kínverj-
ans og Kanans
14
Óraunhæfar væntingar um
himinhátt verð á Volvo Cars
virðist hafa sett strik í reikn-
inginn við hluta-
fjárútboð félagsins.
LEX: Verðlagning
á Volvo úr kortinu
15
Gæta þarf að því að atvinnulíf víki
ekki fyrir íbúðabyggð á Granda, að
sögn Þórs Sigfússonar, stofnanda
Íslenska sjávarklasans, sem á
næstunni mun gefa út skýrslu þar
sem kynntar eru áhugaverðar hug-
myndir um framtíð Grandans. Í
skýrslunni mun meðal annars
koma fram hvernig þar geti orðið
til hugmyndaverksmiðja á heims-
mælikvarða. Segir Þór að því fari
fjarri að búið sé að laða fram allan
þann nýsköpunarmátt sem býr í
greininni. Hins vegar geti það
komið vel út ef hagkvæmar íbúðir
og minni vinnustaðir blandist sam-
an. Brýnt sé þó að Reykjavík-
urhöfn verði fyrst og fremst at-
vinnusvæði og að dæmin sýni að
íbúðabyggð þrengi smám saman að
atvinnustarfsemi á hafn-
arsvæðum.
Morgunblaðið/RAX
Þór segir Grandann eiga mikil
tækifæri inni á komandi árum.
Höfnin
áfram at-
vinnusvæði
Íbúðabyggð þrengir smám
saman að atvinnustarfsemi
á hafnarsvæðum, að sögn
Þórs Sigfússonar.
8