Morgunblaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018
Tíminn líður hratt og eflaust mun
það koma sumum lesendum á
óvart að á næsta ári verða liðin
tuttugu ár frá því skartgripafyrir-
tækið Aurum hóf rekstur. Á þess-
um tveimur áratugum hefur Guð-
björgu Kristínu Ingvarsdóttur
tekist að byggja upp alþjóðlegt
fyrirtæki í kringum fallega og
vandaða hönnun.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í rekstrinum þessi misserin?
Fyrirtækið hefur stækkað mikið
á síðustu þremur árum og höfum
við þurft að aðlaga okkur að þeim
breytingum. Aurum-skartgripirnir
fást nú í yfir fjörutíu verslunum í
sjö löndum og hvert land hefur
sínar reglur sem við þurfum að
fylgja. Að verða alþjóðlegt fyr-
irtæki hefur líka krafist breytinga
innanhúss hjá okkur til að auka
framleiðslugetuna. Einnig þurft-
um við að fara yfir alla söluferla.
Hver var síðasti fyrirlesturinn
eða ráðstefnan sem þú sóttir?
Ég fór á fyrirlestur með Öldu
Karen í Hörpu. Var það hugmynd
elstu dótturinnar að taka okkur
foreldrana með og reyndist þetta
frábær skemmtun. Hún hefur ein-
staka hæfileika til að ná til fólks
og er góður fyrirlesari.
Hugsarðu vel um líkamann?
Ég borða hollt og fer reglulega
í líkamsrækt. Fer einnig í göngu-
túra flesta daga og það eru tveir
hundar á heimilinu sem minna
reglulega á sig.
Hvað myndirðu læra ef þú
fengir að bæta við þig nýrri
gráðu?
Ætli það yrði ekki vöruhönnun.
Það fag hefur alltaf vakið áhuga
minn og kom til greina að bæta
því við á sínum tíma þegar við
bjuggum í Kaupmannahöfn.
Hver myndi leika þig í kvikmynd
um líf þitt og afrek?
Reese Witherspoon myndi gera
það vel. Fyrir utan ljósa hárið þá
hefur hún, eins og ég, átt sterkar
kvenfyrirmyndir í sínu lífi sem
hafa kennt henni að styrkur og
sjálfsvirðing er hlutur sem við
gefum aldrei frá okkur.
Hvaða kosti og galla sérðu
við rekstrarumhverfið?
Þar sem við erum orðin al-
þjóðlegt fyrirtæki og erum að
versla með erlenda gjaldmiðla þá
getur það verið flókið, sérstaklega
þegar við erum að keppa við er-
lend fyrirtæki sem eru með stöð-
ugri gjaldmiðil.
Hvaða lögum myndirðu breyta
ef þú værir einráð í einn dag?
Ýmislegt kemur upp í hugann,
en ég tel að það mætti lækka
tryggingagjaldið strax.
SVIPMYND Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir eigandi Aurum
Keppa við erlend fyrirtæki
með stöðugri gjaldmiðil
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Guðbjörg segir hægara sagt en gert að reka alþjóðlegt fyrirtæki enda hvert land með sínar reglur.
NÁM: Sveinspróf í gullsmíði frá Copenhagen Polytechnic 1993;
meistararéttindi frá Tækniskólanum í Reykjavík 1994; nám við
skartgripahönnunardeild Institute for Precious Metals í Kaup-
mannahöfn 1996.
STÖRF: Skartgripahönnuður hjá Au-Art í Kaupmannahöfn 1996-
1999; frá 1999 eigandi Aurum í Reykjavík, skartgripahönnuður
og framleiðandi.
ÁHUGAMÁL: Ferðalög, útivist, skíði og laxveiði.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Ég er gift Karli Jóhanni Jóhannssyni,
MBA og M.Sc. Við störfum saman í Aurum. Ég á þrjár dætur: Ás-
gerði Diljá 21 árs, Karlottu Köru 15 ára og Ingibjörgu Æsu 5 ára.
HIN HLIÐIN
GRÆJAN
Fátt jafnast á við að koma heim eftir
langan vinnudag og sjá að lítil raf-
mögnuð hjálparhella er búin að fjar-
lægja allt ryk og gæludýrahár af
gólfinu. Verst að ryksuguróbotar
skuli vera bundnir við gólfið og geti
t.d. ekki fjarlægt óhreinindi af sóf-
anum, borðum og úr gluggasyllum.
Coral One vill breyta þessu.
Hönnuðir tækisins hafa fundið snið-
uga lausn sem sameinar í einni
græju ryksuguróbota sem hreinsar
gólfið og handryksugu sem má grípa
til þegar hreinsa þarf upp í hvelli
minniháttar slys og staði sem róbot-
inn nær ekki til. Er mótorhlutinn
einfaldlega losaður frá og settur á
hann ryksuguhaus.
Eins og það sé ekki nóg þá segjast
hönnuðir Coral One hafa búið tækið
leiftursnjöllum skynjunarbúnaði
sem hjálpar ryksugunni að rata um
hvaða herbergi sem er og hreinsa
stærri gólfflöt á skemmri tíma.
Vestanhafs kostar þetta tækni-
undur 699 dali og fæst á www.coral-
robots.com ai@mbl.is
Losa má mótorinn frá róbotahlut-
anum og nota sem handryksugu.
Ryksugu-
róboti sem
leynir á sér
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri
AUGLÝSINGAMARKAÐUR
Reynir Grétarsson, stofnandi og
eigandi upplýsingatæknifyrirtæk-
isins Creditinfo Group, er einn af
stofnendum tækni- og markaðs-
fyrirtækisins Svartagaldurs, sem
hóf rekstur nú nýlega. Fyrirtækið
sinnir annars vegar hefðbundinni
umsjón með efnismarkaðssetningu,
leitarvélabestun, umsjón samfélags-
miðla og keyptum auglýsingum á
netinu, og hins vegar mun fyr-
irtækið einbeita sér að þróun
tækninýjunga í markaðssetningu á
netinu. „Mig hefur lengi langað að
fjárfesta í þessum bransa þar sem
tækninni fleygir fljótt fram,“ segir
Reynir. „Það eru miklir vaxt-
armöguleikar fyrir Svartagaldur
bæði hér heima og erlendis. Gögn
eru nýja gullið og ég sé vannýtt
tækifæri sem Svartigaldur er að
fara að vinna með.“
Starfsfólk frá The Engine
Auk Reynis eru stofnendur þeir
Guðbjörn „Beggi“ Dan Gunn-
arsson, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri markaðsfyrirtækisins The
Engine, sem auglýsinga- og mark-
aðsfyrirtækið Pipar\TBWA samein-
aðist á dögunum, og Þór Matthías-
son, fyrrverandi auglýsingastjóri
hjá The Engine. Lilja Þorsteins-
dóttir, fyrrverandi deildarstjóri
efnismarkaðssetningar- og sam-
félagsmiðladeildar hjá The Engine,
er framkvæmdastjóri nýstofnaðs
félags. „Ég er auðvitað mjög
ánægð með nýja fyrirtækið,“ segir
Lilja í tilkynningu. „Svartigaldur er
á hraðri uppleið eftir einungis rúm-
an mánuð af fullri starfsemi. Eftir-
spurnin eftir okkar þjónustu er
mikil og það er ekki verra að orð-
spor starfsfólksins er mjög gott og
traust fólks á okkur er nú þegar
greinilegt.“ tobj@mbl.is
Svartigaldur mun þróa tækninýj-
ungar í markaðssetningu á netinu.
Stofnandi Creditinfo
með nýtt fyrirtæki