Morgunblaðið - 13.09.2018, Side 8

Morgunblaðið - 13.09.2018, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018 Varahlutir í allar Cummins vélar Fljót og áreiðanleg þjónusta Frá 1940 www.velasalan.is Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík Gaman hefur verið að fylgjast með þeirri miklu uppbyggingu sem orðið hefur úti á Granda á ógnarskjótum tíma. Þar hefur starfsemi Íslenska sjávarklasans verið ein helsta víta- mínsprautan og borgarhluti sem áð- ur var í niðurníðslu iðar núna af mannlífi og hefur laðað til sín bæði stór og smá fyrirtæki. Þór Sigfússon, stofnandi Íslenska sjávarklasans, segir klasann hafa orðið til við bestu mögulegu skilyrði. Öflugar stofnanir og metnaðarfull fyrirtæki hafi undirbúið jarðveginn fyrir svæði sem í dag mætti kalla Kís- ildal sjávarútvegsins: „Þegar Íslenski sjávarklasinn kemur fram á sjónar- sviðið fyrir sjö árum var búið að leggja gruninn að þeim megin- stofnunum sem sjávarútvegurinn reiðir sig á, og sem landið er í dag þekkt fyrir á alþjóðavettvangi. Með góðri fiskveiðistjórnun var búið að efla útgerðirnar og við gátum litið til sterkra fyrirmynda eins og Marels og Zymetech sem sýndu hvað væri hægt að gera með hugvitið að vopni.“ Gætu aukið á forskotið Sjávarklasinn mun á næstunni gefa út ítarlega skýrslu þar sem kynntar eru áhugaverðar hugmyndir um framtíð Grandans og hvernig þar gæti orðið til hugmyndaverksmiðja á heimsmælikvarða: „Sem þjóð erum við Íslendingar að átta okkur æ betur á því að við höfum algjöra sérstöðu í sjávarútvegsmálum. Bæði eigum við rannsókna- og fræðastofnanir sem hafa gert mjög góða hluti, en líka út- gerðar- og tæknifyrirtæki sem aðrar þjóðir líta til sem fyrirmynda um það sem koma skal. Spurningin sem við þurfum núna að reyna að svara er hvort við getum með einhverju móti nýtt okkur þetta forskot enn betur.“ Íslenski sjávarklasinn virðist hafa náð að leysa mikla krafta úr læðingi. Klasinn hefur vaxið jafnt og þétt og hýsir núna rösklega 60 fyrirtæki og frumkvöðla í 3.500 fermetra húsi, steinsnar frá Reykjavíkurhöfn. Þór telur samt hægt að gera miklu meira og það sé fjarri því búið að laða fram allan þann nýsköpunarmátt sem býr í greininni. „Hér væri klárlega hægt að byggja upp töluvert stærri kjarna í kringum aukna verðmætasköpun í sjávarútvegi,“ segir hann og bætir við að það virðist skipta miklu að reyna að safna sem flestum sjávar- útvegssprotum á einn stað frekar en að dreifa þeim um höfuðborgar- svæðið eða jafnvel um landið allt. „Við höfum séð það hjá fyrirtækj- unum sem hafa orðið til hjá okkur, stækkað og síðan flutt burt að þau sækja í að koma aftur niður að höfn- inni og vera í nálægð við bæði hafnarstarfsemina og nýsköp- unarstarfið.“ Eitthvað alveg sérstakt virðist gerast þegar fyrirtæki hópast saman í klasa og segir Þór sérstaklega áhugavert að sjá þá dýnamík sem myndast hefur innan Íslenska sjávarklasans þegar fyrirtæki af ólík- um stærðum og ólíkum gerðum eru undir sama þakinu. Nýjar hug- myndir verða til, samstarf fyrirtækja tekur á sig mynd sem enginn hefði getað séð fyrir og greinar sem í fyrstu gætu virst óskyldar finna sam- eiginlega snertifleti. „Reglulega ber- ast mér til eyrna skemmtilegar sögur af samstarfsverkefnum sem hófust með því að leiðir fólks lágu saman inni á kaffistofu þar sem menn fóru að ræða málin,“ segir Þór og bendir á að allt önnur orka verði til í klasa en t.d. með reglulegu funda- og ráð- stefnuhaldi. „Þegar fólk er á sama staðnum þá hjálpar það til að skapa traust og hvetur til samskipta, og greiðir þannig fyrir samstarfi á milli fyrirtækja.“ Möguleikar í ráðgjöf Þór kemur auga á sóknarfæri á ótal sviðum og segir þá miklu ný- sköpun sem á sér stað í íslenskum sjávarútvegi ekki bara geta nýst greininni hér á landi heldur líka skapað ómæld verðmæti erlendis. „Með þeirri þekkingu sem við búum yfir getum við hjálpað við að auka lífsgæði fólks í öðrum löndum, aukið umhverfisvitund og gæðavitund,“ segir hann. „Augljósasta tækifærið snýr að því að nýta aflann betur en víða úti í heimi er það helsti vandi sjávarútvegsfyrirtækja hve mikið af fiskpróteini fer til spillis og fyllir sorphauga frekar en að vera gert að vöru sem selja mætti fyrir gott verð.“ Grandinn gæti orðið Kísildalur sjávarút Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Stefnumótun og markviss uppbygging gæti eflt nýsköp- unarstarf úti á Granda enn meira og hjálpað Íslandi að ná afgerandi forystu í verðmætasköpun í sjávarútvegi. Við skipulag svæðisins þarf að gæta að því að atvinnulíf víki ekki fyrir íbúðabyggð en það gæti komið vel út ef hag- kvæmar íbúðir og minni vinnustaðir blandast saman. Til að nýsköpunarfyrirtæki í sjávar- útvegi geti þrifist þurfa þau á góðum aðgangi að fjármagni að halda. Þór segir að það geti hægt á uppbygg- ingu í greininni að skortur er á sér- hæfðum fjárfestum og því brýnt að hlúa vel að tengslunum við umheim- inn og reyna þannig að fá bæði er- lenda sprota og erlent fjármagn til landsins. Hann segir að ef stjórnvöld og at- vinnulíf mörkuðu stefnu um að gera Grandann leiðandi á heimsvísu myndi það virka eins og segulstál á erlent hæfileikafólk, rétt eins og heimsins færustu forritarar og hug- búnaðarfrumkvöðlar taka stefnuna á Kísildal. „Styrkjaumhverfið á Íslandi hefur batnað mikið og efling tækniþróun- arsjóðs hefur hjálpað mörgum öfl- ugum sprotafyrirtækjum að stíga fyrstu skrefin. Jafnvel bara nokk- urra milljóna stuðningur getur mun- að heilmiklu og hjálpað til við að leggja grunninn að stöndugum rekstri,“ segir Þór og bætir við að það gefi íslenskum sjávarútvegs- sprotum dýrmætt forskot að geta bæði átt möguleika á styrkjum en ekki síður að geta starfað með út- gerðum sem eru viljugar til að leyfa alls kyns tilraunir í fiskvinnslum sín- um og um borð í skipum. „Ég heyri frumkvöðla í öðrum löndum kvarta bæði yfir því að hafa lítinn stuðning á fyrstu metrunum og að eiga líka mjög erfitt með að fá að komast inn á vinnslugólf útgerðanna.“ Verða að laða til landsins sérhæfða fjárfesta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.